27/01/2026
RIG var haldið í karate síðastliðinn laugardag. KFA átti tvo keppendur. Ruofang vann Gull í kumite🥇og Alex brons í kata og kumite🥉🥉 Flottir strákarnir okkar frá Akureyri 👊
haust 2021
Æfingar:
yngri hópur 5-9 ára. þri og fim kl 17:00-18:00
eldri hópur 10-13 ára . e-mail: [email protected]
Heimasíða: karateakureyri.is
mán og mið kl 17:00-18:00 og fim kl 18:00-19:00
unglingar/fullorðnir mán,þri,mið,og fim kl 18:00-19:30
Sensei: Magnús Sigþórsson, s. 698 5350
Umsjón barnastarfs: Rut Guðbrandsdóttir, s. 690 7886.
27/01/2026
RIG var haldið í karate síðastliðinn laugardag. KFA átti tvo keppendur. Ruofang vann Gull í kumite🥇og Alex brons í kata og kumite🥉🥉 Flottir strákarnir okkar frá Akureyri 👊
20/12/2025
Siðastliðinn fimmtudag 18 des við beltaafhendingu í lok annar var félaginu afhent viðurkenningu sem fyrirmyndafélag ÍSÍ í nýjum æfingasal í kjallara íþróttahallarinnar. Mikilvægur áfangi fyrir félagið og erum afar stollt. Einnig voru afhent verðlaun fyrir bikarmeistaramót ársins. Alex, Júlía, Roufang og Freyja.
Haustönn er að hefjast.
Eldri og yngri hópur sem æft hafa áður hefja æfingar 1 september.
Byrjendur eru velkomnir að prófa frá og með 8 september samkvæmt stundarskrá. Prófa má án þess að skrá sig í sportabler í 1 viku. Bara mæta í íþróttahöllina á æfingartíma skv. aldri.
Yngri hópur er á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:00 -18:00 aldur 6 - 10 ára
Eldri hópur eru á mánudögum og miðvikudögum kl 17:00 - 18:30 og fimmtudögum kl 18:00 - 19:30. 11 - 18 ára.
Fullorðinshópur styrktar og liðkunaræfingar æfir á mánudögum og miðvikudögum kl 18:30 - 19:45.
Nánari upplýsingar gefur Magnús í síma 6985350
27/04/2025
Grand prix 2 í gær og allir okkar keppendur í toppbaráttunni 🤩👊🥋 Vantar myndir af Júíu og Auði.
27/01/2025
RIG á laugardaginn og kfa með 4 keppendur. Stóðu sig rosalega vel. Freyja og Júlía 3 sæti kata u 14 ára. Alex 3 sæti kumite cadet , Roufang 3 sæti u14 kumite og Júlía 2 sæti kumite u14. Vantar myndir af stelpunum. Allir keppendur á pall 💪❤️
Æfingar hefjast á nýju ári hjá öllum hópum skv. sömu stundaskrá og var fyrir áramót.
Yngri hópur 6 - 10 ára á þriðjudag og fimmtudag 17:00 -18:00
Eldri hópur 11- 17 mánudag og miðvikudag kl 17:00-18:30 og fimmtudag kl 18:00-19:30.
Byrjendur velkomið að prófa frítt áður en skráð er í sportabler.
Sportabler verður tilbúið fljótlega.
25/11/2024
Karatefélag Akureyrar verður á afmælishátíðinni!
Hefur þig langað til að æfa karate áður? Karatefélag Akureyrar verður í Boganum og kynnir starfsemi félagsins fyrir gestum og gangandi. Hægt verður að spreyta sig og prófa íþróttina fyrir áhugasama!
Meira auglýst seinna á:
www.iba.is
www.karateakureyri.is
09/11/2024
Íslandsmeistaramót í kumite var í dag og áttum við 3 flotta keppendur sem stóðu sig mjög vel. Öll komust á pall í 3 sæti í sterkum flokkum. Frá hægri Ruofang, Sóley og Alex.
05/10/2024
Grand prix 3 var í dag. Við vorum með 4 keppendur sem allir komust á pall. Júlía gull kumite og kata. Ruofang gull kata og silfur kumite, Alex brons kata og Kumite. Sóley silfur kumite. Frábær árangur hjá þeim 🥰💪
Nú er næsta önn að hefjast hjá yngri og eldir hóp þann 2 september. Stundartafla er eins og frá síðustu önn hjá báðum hópunum. En vegna smæðar á sal verðum við að hafa byrjendur á sér æfingatímum í september.
Yngri hópur 6 ára - 9 ára æfir þriðjudaga og fimmtudaga kl 17:00-18:00.
Eldri hópur 10 ára og eldri æfir mánudaga, miðvikudaga kl 17:00 - 18:20 og svo fimmtudaga kl 18:00-19:20.
Þeir sem aldrei hafa æft áður karate geta hafið æfingar með því að skrá sig á byrjendanámskeið í sportabler sem hefst 10 september. Aldur frá 6 ára og uppúr.
Byrjendur æfa á þriðjudögum og fimmtudögum kl 16:00-17:00. Að loknu byrjendanámskeiði sem stendur yfir í 4 vikur og iðkandi er ákveðin í að halda áfram flyst hann yfir á æfingatíma í sínum aldurshóp.
Skráning og greiðsla æfingagjalda er í gegnum sportabler og hægt verður að skrá frá og með 26 ágúst.
Velkomið er að koma í íþróttahöllina og horfa á æfingu vikuna 2 - 6 september ef einhver er óviss ☺️
Beltapróf og beltaafhending hjá báðum hópum komið í sportabler.
28/04/2024
Frábær árangur á Grand prix 2 í dag. Fjórir keppendur og öll komust á pall bæði í kata og Kumite. Alex gull kumite og brons kata. Júlía gull kumite og brons kata. Sóley silfur kumite og brons kata. Ruofang brons kumite og kata.