05/08/2026
🚵 Fjallahjólanámskeið HFA — seinna tímabil er komið í loftið!
https://www.abler.io/shop/hfa?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjI3MzA=
Í þetta sinn hjólum við í Hlíðarfjall Bike Park — og dagskort í lyftuna er innifalið á öllum æfingum 🎢
📅 11. ágúst – 3. september
🗓️ Þriðjudaga & fimmtudaga, 17:00–19:00
📍 Allar æfingar byrja við Fjarka
👦👧 Krakkar 8–16 ára
Skipt í hópa eftir getu svo allir fá kennslu við sitt hæfi. Foreldrar og aðstandendur eru hvattir til að koma með, hjóla og aðstoða 🙌
📝 Skráning fer fram á Abler
30/07/2026
Þvílíkir snillingar í útisport! skella sér á glænýtt gravel hjól og taka þátt í skemmtilegum gravel-viðburði :)
Það verður Gravel veisla í Eyjafirði 8. ágúst. Og ef þig vantar hjól til að taka þátt ætlum við að bjóða 50% afslátt af Giant Revolt 2 og Liv Devote 2.
Nú hefur þú enga afsökun fyrir að taka ekki þátt. Allar stærðir í boði (þegar þetta er skrifað)
Margar vegalengdir, rafhjólaflokkur og skemmtiflokkur.
Allar upplýsingar og skráning á Fimm skóga gravel:
https://www.hfa.is/fimm-sk%C3%B3ga-gravel-riders-guide
30/07/2026
Upplýsingar: https://www.hfa.is/fimm-sk%C3%B3ga-gravel-riders-guide
Skráning: https://netskraning.is/fimmskoga-gravel/
Fimm Skóga Gravel | HFA
Lagt er af stað úr Kjarnaskóg og hjólað yfir Vaðlaheiði í Fnjóskadal í Skuggabjargaskóg, Vaglaskóg, Lundskóg, Þórðarstaðaskóg og til baka.
28/07/2026
Fimm Skóga Gravel er alvöru malarhjóla viðburður með því besta sem Norðurland hefur uppá að bjóða.
Lagt er af stað úr Kjarnaskóg og hjólað yfir Vaðlaheiði í Fnjóskadal í Skuggabjargaskóg, Vaglaskóg, Lundskóg, Þórðarstaðaskóg og til baka.
Allir keppendur fá miða í skógaböðin.
Nánar á HFA.is https://www.hfa.is/fimm-sk%C3%B3ga-gravel-riders-guide
27/07/2026
Fjallabrunshelgi HFA!
HFA heldur tvöfalda fjallabrunshelgi í Hlíðarfjalli dagana 29.-30. ágúst! Við munum keyra DH brautina á laugardegi og gömlu DH á sunnudegi. Mótin verða bæði haldin sem bikarmót.
Keppnisgjöld vegna DH mótsins sem var aflýst þann 19. júlí ganga að fullu upp í keppnisgjöld fyrir DH mótið laugardaginn 29. ágúst. Keppnisgjöld verða ekki endurgreidd.
Skráningu verður hent upp mjög fljótlega.
25/07/2026
Til hamingju meistari Hafdís!
17/07/2026
Ungduro HFA Hliðarfjalli 2026 🎉
17/07/2026
Ungduro HFA Hlíðarfjalli 2026🎉