24/12/2022
Hlökkum til að sjá ykkur á keppnum næsta sumars, mætum með allt í botni!
Team X er keppnislið sem stendur föstum fótum bakvið torfærubílinn Evu með Fjölni Guðmannsson ólaðann í sætið
Torfærubíllinn Eva er nú ekki ný af nálinni því fyrir 20 árum eða 1997 smíðaði Helgi Schiöth bílinn er þá hét Frissi Fríski. Þaðan fer bíllinn til Leó Viðars Björnssonar og verður þá að Iron Maiden og í dag á Fjölnir Guðmannsson bílinn og ber hann nú nafnið Eva
2019 var svo ný grind keypt sem er smíðuð af Hilmari B Þráinsson. Kramið úr gamla bílnum fært yfir og heitir nýji bíllinn Eva 2.0
548cid
24/12/2022
Hlökkum til að sjá ykkur á keppnum næsta sumars, mætum með allt í botni!
19/06/2022
Laugardagurinn á Egilsstöðum, nítró kom ekki inn í 1.braut, vinstri framöxull brotnaði í 2.braut, startari missti straum í 5.braut svo ekki var hægt að starta eftir að drapst á bílnum. Enduðum í 13 sæti af 19
Best of Team Eva - June 4th ,2022 Formula offroad Iceland Best of Team Eva - June 4th ,2022 Formula offroad Icelandtorfæran 22 www.torfaera.is #2022 ...
03/06/2022
Hægt að sjá flotta keppni í beinni útsendingu um helgina
31/05/2022
Keppnin á Hellu afstaðin, 11.sæti fyrri daginn og 7.sæti seinni daginn. Dempara og dekkjamál að stríða okkur, en ný vélartölva og háspennukefli að skila sínu, þannig að mótorinn náði að skila aflinu í fleytingu yfir ána.
Nú er það næst keppni á Egilsstöðum um helgina 4. og 5. júní. Við viljum hvetja fólk til að koma á staðinn og horfa, spáin er góð en fínt að hafa hlý föt og jafnvel regnheld. En aðalmálið er kannski að hafa skíðagleraugu til að hlífa augunum fyrir rykinu sem er oft á svæðinu í Mýnesgrúsum.
24/12/2021
Team Eva óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum veitta aðstoð og styrki á árinu og þökkum sérstaklega liðsmönnum en án þeirra myndi lítið gerast!
Stórgóð skemmtun að mæta á torfæru, eða horfa á hana í streymi heima!
06/08/2021
Torfæra á morgun! Mætið á staðinn, eða fylgist með í sófanum heima með poppkornið!
06/08/2021
Á morgun 7.ágúst er torfærukeppni í Hafnarfirði á svæði kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni sem hefst kl.11.
Við hvetjum alla sem áhuga hafa til að mæta og gæta sóttvarna, en skipt verður upp í hólf, og af þeim sökum er eingöngu hægt að kaupa miða í forsölu inná https://kvartmila.is/kfc-torfaeran-adgongumidar/
Það spáir 14 stiga hita og þurrviðri.
Svo er líka stórgóð hugmynd að horfa á keppnina heima í stofu, en https://motorsport.is/ er með streymi frá henni með beinni lýsingu og endursýningum, auk viðtala og kostar streymið 2500kr sem er ekki mikið á mann ef 5 horfa saman.
Við mætum til leiks og ætlum alls ekki að missa af því að taka þátt í spennandi keppni!