Taekwondo Akureyri

Taekwondo Akureyri

Share

Ef þú eða barnið þitt hafið áhuga á bardagalistum eða langar að fara í einhvers konar bardagaíþrótt ættirðu endilega að skoða Taekwondo.

Taekwondo er kóreskur bardagastíll sem byggir fyrst og fremst á því að nota fæturna Taekwondo-deild Þórs var stofnuð 1998. Við æfum Taekwondo bæði sem hefðbundna bardagalist og nútíma íþrótt.

Æfingartímar eru eftirfarandi:
Yngri (2015 - 2018): mánudaga og fimmtudaga kl 16.10 - 17.00
Eldri (2014 og eldri): þriðjudaga kl 18-19.30 og fimmtudaga kl 17-18.30
Skrímsli (2019 og 2020): sunnudagur kl 10.3

04/06/2026

Nú styttist í að Guðmundur Flóki Sigurjónsson keppi fyrstur Íslendinga fyrir Íslands hönd á Grand Prix móti með þeim allra sterkustu. Okkar maður keppir á föstudag. Hvetjum alla til að fylgjast með þessum stóra áfanga. Allar upplýsingar settar hérna að neðan þegar þær berast. Áfram Ísland !!!

Photos from Taekwondosamband Íslands's post 26/05/2026

Við mættum 7 frá Þór fóru á æfingar með Master Allan 😄

Fjölmennasta beltapróf síðari ára 05/05/2026

Beltapróf 1. maí 💪

Fjölmennasta beltapróf síðari ára Síðastliðinn föstudag þreyttu 24 nemendur Þórs og Völsungs beltapróf fyrir 10.–2. gráðu hjá Taekwondodeild Þórs undir stjórn kwanjangním Sigursteins Snorrasonar, en um er að ræða fjölmennasta próf deildarinnar á síðari árum.

22/08/2025

Æfingar hefjast á mánudaginn!

26/05/2025

Sæl veriði

Nú er vorönninni lokið og við komin í sumarfrí. Ég þakka kærlega fyrir okkur og vonast til að sjá sem flesta þegar við byrjum aftur í haust.

Bestu kveðjur
Þjálfarar

08/05/2025

Sigursteinn Snorrason, meistari deildarinnar, var heiðraður á ársþingi TKÍ í gær. Við óskum honum innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu

Á ársþingi TKÍ í gær var Sigursteini Snorrasyni veitt Gullmerki ÍSÍ. Það var Ragnheiður Ríkharðsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem afhennti Sigursteini merkið fyrir hönd ÍSÍ. Sigursteinn Snorrason

Sigursteinn Snorrason hefur verið stórt nafn í íslensku Taekwondo starfi í yfir 30 ár.

Hann var meðlimur í undirbúningsnefnd um stofnun Taekwondosambands Íslands sem vann að myndun sérsambands á árunum 1994-2002.

Sigursteinn var stofnmeðlimur í stjórn Taekwondosambands Íslands (TKÍ) árið 2002 og hefur verið af og til í gegnum árin stjórnarmaður TKÍ.

Hann hefur stofnað og verið kennari fjölmargra félaga á landinu og verið þar með einn af máttarstólpum Taekwondosamfélagsins í áratugi. Hann hefur einnig gefið út kennsluefni fyrir Taekwondo, þ.m.t. dómara og þjálfunarefni. Hann er hæðst gráðaði Taekwondomaður landsins og einn þeirra sem hefur sótt sér hvað mesta menntun og þekkingu erlendis. Hann bjó meðal annars í Kóreu í ár til að öðlast svartbelti og sækir þangað reglulega í meiri þekkingu. Hann hefur verið landliðsþjálfari Íslands, dómari, komið að mótahaldi og öllu grunnstarfi sambandsins í áratugi. Einnig hefur hann haldið fjölmargar æfingarbúðir með heimsklassa þjálfurum og keppendum sem er meðal annars stór partur af velgengni okkar fólks seinustu árin.

Sigursteinn stofnaði Taekwondo deildir eftirfarandi félaga:

· 1994 Fjölnir

· 2000 Keflavík

· 2002 Afturelding, Mosfellsbæ

· 2003 Selfoss

· 2003 Grindavík

· 2006 KR

· 2011 Hörður Ísafirði

· 2013 Geislinn, Hólmavík

· 2014 Völsungur, Húsavík

· 2016 Hekla, Hellu

· 2016 Þorlákshöfn

· 2016 Taekwondofélag Kópavogs/Mudo Gym

Hann kom að stofnun og/eða starfsemi eftirfarandi Taekwondodeilda og liða hjá TKÍ:

· 2004 Þór, Akureyri

· 2008 HK, Kópavogi

· 2016 Fimleikafélagið Björk, Hafnarfirði

· 2009-2013 Yfirmaður dómaramála TKÍ.

· 1996- Yfirdómari/mótsstjóri á um 50 mótum innanlands

· landslið í Poomsae (formæfingar) á árunum 1998-1999

· landsliðsþjálfari í tvígang, árin 1998-2001 og 2010-2012.

· stofnun sýningarliðs TKÍ 2023

· þjálfari Ungra & Efnilegra TKÍ 2023.

TKÍ óskar Sigursteini innilega til hamingju með Gullmerkið og þakkar fyrir allt góða starfið í gegnum árin.

https://tki.is/sigursteinn-snorrason-saemdur-gullmerki-isi/

Photos from World Taekwondo's post 05/05/2025
Belta- og randapróf 03/05/2025

Belta- og randapróf í dag.

Belta- og randapróf Í dag tóku fimmtán iðkendur beltapróf og átta randapróf. Prófin gengu vel og greinilegar bætingar eru hjá hópnum. Sigursteinn Snorrason var prófdómari

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Oddeyrarskóla
Akureyri
600