Gleðifréttir!
Sundlaugin nú komin aftur í fulla virkni.
Verið velkomin - hlökkum til að sjá ykkur! :)
Íþróttamiðstöðin í Búðardal
Íþróttamiðstöðin, Miðbraut 8b, 370 Búðardal.
Samanstendur af tæplega 700fm fjölgreina parketsal, líkamsrækt, meðferðaherbergi (sjúkraþjálfun, nudd o.s.frv.) ásamt 25 metra útisundlaug með einstöku útssýni, heitum pottum, vaðlaug, sauna og köldu keri.
Athugið!
Því miður er sundlaugin lokuð frameftir degi vegna bilnunar, óljóst hve lengi. Opið er í pottanna og saunu.
Uppfærum ykkur þegar laugin er kominn í virkni.
Góðan daginn!
Á morgun, 17. júní er lokað, líkt og aðra stórhátíðisdaga.🎈
Gleðilegan þjóðhátíðardag – njótið dagsins með fjölskyldu og vinum! 🇮🇸
03/06/2026
Falleg gjöf frá krökkunum í Kátadal 🎨🖌
Listaverk frá Kátadal - Dalabyggð Krakkarnir í Kátadal komu færandi hendi í íþróttamiðstöðina og afhentu glæsilegt listaverk sem þau höfðu unnið saman að á liðnum vetri. Verkið er afrakstur góðrar samvinnu og sköpunargleði barnanna. Verkið er unnið af: Ölbu Ingibjörgu Snævarsdóttur, Breka Frey Andrasyni,...
Í dag verður hluti bílastæðisins framan við íþróttamiðstöðina lokað til klukkan 11.00 vegna hjólasýningar hjá skólanum. En stæðin við endan á Dalabúð og Stjórnsýsluhúsið eru opin.🚲
Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Í dag verða óskilamunir frammi í andyrri á kaffiborðinu og biðjum við alla foreldra að líta við fyrir eða eftir skólaslit, og athuga hvort þeir kannsit við einhverja muni. Eftir helgina verður það sem legið hefur lengst gefið í rauðakrossin.
Njótið dagsins 😎
21/05/2026
📣Sumaropnunartími 🌞
Frá og með 1. júní tekur gildi sumaropnun í íþróttamiðstöðinni sem gildir til og með 31. ágúst. Með nýjum opnunartíma er leitast við að koma til móts við óskir íbúa um aukið aðgengi um helgar.
Sumaropnunartími er eftirfarandi:
Mánudaga–föstudaga: kl. 07:00–21:00
Laugardaga og sunnudaga: kl. 10:00–18:00
Opnunartíminn á við bæði sali og sundlaug.
Viðtökur við íþróttamiðstöðinni hafa verið afar góðar og markmið breytinganna er að efla þjónustu og bæta aðgengi enn frekar yfir sumartímann, í takt við aukna notkun og umferð á svæðinu.
Verið hjartanlega velkomin í íþróttamiðstöðina í sumar - hlökkum til að sjá ykkur!😎🌞
20/05/2026
Opnunartími um helgina
Laugardagur: 10–16
Sunnudagur (hvítasunnudagur): Lokað
Mánudagur (annar í hvítasunnu): 10–16
📣Tilkynning.
Á morgun, uppstigningardag, verður opið skv. helgaropnunartíma í íþróttamiðstöðinni líkt og aðra sérstaka frídaga.
🕘Opnunartími: 10:00–16:00
Hlökkum til að sjá ykkur! 🏊🏾🏋🏽♀️😀
Á verkalýðsdaginn, föstudaginn 1. maí, verður opið samkvæmt helgaropnunartíma í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal.
Opið verður frá kl. 10:00 - 16:00. Komdu og njóttu dagsins í sundi , slökun og hreyfingu. Við hlökkum til að sjá ykkur! ☀️🏊♀️🏋♀
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Address
Miðbraut 8b
Búðardalur
370
Opening Hours
| Monday | 07:00 - 21:00 |
| Tuesday | 07:00 - 21:00 |
| Wednesday | 07:00 - 21:00 |
| Thursday | 07:00 - 21:00 |
| Friday | 07:00 - 21:00 |
| Saturday | 10:00 - 18:00 |
| Sunday | 10:00 - 18:00 |