Dyrfjallahlaup

Dyrfjallahlaup

Share

Trail run Festival in Víknaslóðir, Borgarfjörður eystri 🏃‍♀️

Utanvegahlaupa-hátíð um Víknaslóðir, Borgarfirði eystra 🏃‍♀️

Dyrfjallahlaup 2026 | Netskraning.is 31/05/2026

The Trail-Battle of the Nordics!

Andrea Kolbeinsdóttir, Þorbergur Jónsson og Þorsteinn Roy Jóhannsson verða öll á ráslínunni í 24 km í Dyrfjallahlaupinu. Tove Alexandersson fær alvöru samkeppni og það er klárt að það er alvöru keppni á leiðinni.

Sögulegur viðburður í uppsiglingu og eitthvað sem engin íþróttaunnandi ætti að láta fram hjá sér fara!

Dyrfjallahlaup 2026 | Netskraning.is Ungmennafélag Borgarfjarðar Kt. 660269-5339 Fjarðarborg 720 Borgarfjörður eystri Olgeir Pétursson Símanr.: 7882030 [email protected]

Dyrfjallahlaup 2026 | Netskraning.is 27/05/2026

Það styttist í Dyrfjallahlaupið 2026 sem verður haldið 4 Júlí og við sjáum okkur ekki annað fært að henda í gjafaleik.

Merktu besta hlaupafélagann þinn og þið gætuð unnið 2 miða í 12 eða 24 km leiðirnar okkar ásamt 2 miðum í hina alræmdu matarveislu í Já Sæll Ehf Fjarðarborg eftir hlaupið.

Ef þið verðið dregin út og eigið miða nú þegar, þá endurgreiðum við ykkur til baka 🎟️

Drögum út í næstu viku, föstudaginn 5 Júní.

Dyrfjallahlaup 2026 | Netskraning.is Ungmennafélag Borgarfjarðar Kt. 660269-5339 Fjarðarborg 720 Borgarfjörður eystri Olgeir Pétursson Símanr.: 7882030 [email protected]

04/05/2026

Vinir okkar í The Puffin Run sýndu okkur það í ár að það má aldrei gefast upp þrátt fyrir mótlæti! Þau fengu að kynnast því í ár eftir hreint ótrúlega atburðarrás í samgöngumálum að það er ekkert sjálfgefið í þessu og það eina sem kemur okkur áfram er þrautseigjan og viljinn fyrir verkinu.

Svolítið svipað og hlauparara sem standa á ráslínunni í utanvegahlaupi. Það koma ýmsar hindrarnir upp á leiðinni en það sem skilar okkur í mark er viljinn 💪🏻

Til hamingju með flott hlaup og takk fyrir frábæra útsendingu með Snorra og Garp, frábært að geta fylgst með hinumegin á landinu.

The Puffin Run 2026 fór fram laugardaginn 2.maí í góðu veðri. Keppendur voru vel stemmdir og margir þeirra settu persónuleg met.

Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í fimmta sinn í röð í kvennaflokki í The Puffin Run og sló eigið brautarmet. Hún bætti metið, sem hún átti frá 2023, um rúmar 6 mínútur og fór hringinn á 1:20:00. Magnaður árangur þessara frábæru íþróttakonu. Halldóra Huld Ingvarsdóttir var önnur á næstbesta tíma í níu ára sögu hlaupsins fór á 1:25:22 og Elísa Kristinsdóttir var þriðja á tímanum 01:27:03.

Arnar Pétursson kom fyrstur í mark í fjórða sinn og var nálægt því að slá brautarmet. Hann kom í mark á tímanum 1:15:10. Akureyringurinn Þorbergur Jónsson, sem var að taka þátt í fyrsta sinn, var annar á 01:16:30. Sigurjón Ernir Sturluson sem sigraði í hlaupinu 2020 mætti aftur til leiks og var þriðji á 1:20:20.

Þrátt fyrir erfiðleika í samgöngum milli lands og Vestmannaeyja tóku um 500 hlauparar þátt. Upphaflega höfðu um 1800 skráð sig, en vegna aðstæðna var keppendum boðið að færa skráningu sína til næsta árs sem flestir kusu að gera.

Við þökkum ykkur sem tókuð þátt og þeim fjölmörgu sem störfuðu við hlaupið. Þið voruð frábær🧡

📷 Erlingur Birgir Richardsson

Dyrfjallahlaup 2026 | Netskraning.is 28/04/2026

Tove Alexandersson er staðfest í 24 km leiðina í Dyrfjallahlaupinu!
Stigahæsta kona ITRA - International Trail Running Association og núverandi heimsmeistari í utanvegarhlaupum 🏃🏻‍♀️

Komdu og hlauptu með okkur þann 4 júlí 🗓️

Miðasala á www.dyrfjallahlaup.is

Dyrfjallahlaup 2026 | Netskraning.is Ungmennafélag Borgarfjarðar Kt. 660269-5339 Fjarðarborg 720 Borgarfjörður eystri Olgeir Pétursson Símanr.: 7882030 [email protected]

18/04/2026

Okkar allra besti Benni (Björn Benedikt) ætlar að henda sér í “lauflétta” 70 km til styrktar Krabbameinsfélagi Austurlands þann 2 maí. Virkilega fallegt framtak til styrktar góðum málstað hjá þessum efnilega hlaupara 🫶

Þið getið fylgst með hlaupinu hérna: https://www.facebook.com/share/1HfjrxE9HZ/?mibextid=wwXIfr

Þið getið lagt ykkar til málefnisins með því að leggja inn á reikning sem er sýnilegur á viðburðinum hérna fyrir neðan

29/12/2025

Nýtt ár framundan með nýjum áskorunum 🗓️
Dyrfjallahlaupið ætti klárlega að vera ein af þeim áskorunum sem þú setur á listann þinn fyrir 2026!

Miðasala er hér: www.netskraning.is/dyrfjallahlaup

Borgarfjörður eystri 28/11/2025

Norðurljósa-madness á Borgarfirði ❇️
Eigum við ekki að henda í miðnætur-norðurljósahlaup næsta vetur?

📷: Kinan Kadoni & Hafþór Snjólfur Helgason

Borgarfjörður eystri Borgarfjörður eystri 24. nóv 2025 Photo: Kinan Kadoni

Photos from Dyrfjallahlaup's post 10/09/2025

Gulur september - samstaða og umhyggja

Dyrfjallahlaupið 2025 gekk ótrúlega vel fyrir og við erum þakklát öllum sem komu og hlupu með okkur í drauma aðstæðum. Í ár buðum við öllum hlaupurum og aðstendendum á fría tónleika, þar sem Jóipé X Króli vöktu athygli á málstað Píeta samtakanna sem sinna ótrúlega mikilvægu starfi í geðrækt og sjálfsvígaforvörnum.

Samfélagið á Austurlandi hefur orðið fyrir áföllum í ár sem hafa markað djúp spor í hjörtu okkar allra. Í hlaupinu í sumar hljóp stór hópur til minningar um ungan mann sem kvaddi alltof snemma, ættaður frá Borgarfirði eystra og hafði tvisvar lent í 3ja sæti í Dyrfjallahlaupinu. Þau sýndu okkur öllum að það er ljós í myrkrinu og það er alltaf von.

Viðburður eins og Dyrfjallahlaupið er mikilvægur einn og sér en það mikilvægasta er fólkið sem tekur þátt í þessari áskorun, fólkið sem kemur saman á ráslínunni og hvetur hvort annað áfram yfir marklínuna í blíðu og stríðu, fólkið eins og stór-fjölskyldan hans Jóns Braga.

Þessi viðburður hefði aldrei orðið að veruleika án stuðnings góðra fyrirtækja sem styrktu okkur og við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra framlag: Alcoa, Tanni Travel, Loðnuvinnslan hf. og Icelandic Down

Saman söfnuðum við 650 þúsund krónum sem runnu til Píeta samtakanna og nýtast vonandi vel í áframhaldandi starfi þeirra á Austurlandi. Takk kærlega fyrir hjálpina, við erum ekkert án ykkar hlaupara og við erum sterkari saman.

Munum að það er alltaf von og hugum að okkur sjálfum og þeim sem standa okkur næst.

Sími Píeta er 552-2218 og er opinn allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Photos from Dyrfjallahlaup's post 11/08/2025
Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Bakkagerði?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Fjarðarborg
Bakkagerði
720