📣Tilkynning frá aðalstjórn📣
Aðalfundur Ungmennafélagsins Hvatar á Blönduósi verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar 2025 í Norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi að Melabraut 2, Blönduósi. Fundurinn hefst kl. 17:00.
Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar og aðrir velunnarar Ungmennafélagsins Hvatar eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á málefni félagsins.
f.h. aðalstjórnar Umf. Hvatar
Grímur Rúnar Lárusson, formaður
Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi, Sports, Húnabraut 4, Blönduós.
27/11/2024
🥳🥳
Áfram Hvöt! Afmælishátíð Ungmennafélagsins Hvatar, sem haldin var í Íþrótta-miðstöðinni á Blönduósi, gekk vonum framar. Skaut formaður félagsins, Grímur Rúnar Lárusson
Við viljum þakka öllum fyrir komuna sem sáu sér fært að mæta í 100 ára afmæli félagsins í gær. Það var virkilega gaman að sjá svona marga og við vonum að allir hafi skemmt sér vel á báðum viðburðum. Þá viljum við þakka sérstaklega þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu við undirbúning og frágang afmælisins. Án ykkar hefði þetta ekki verið mögulegt.
Áfram Hvöt!
19/11/2024
🥳
21/10/2024
Stuð og stemmning framundan 🥳
23/05/2024
Netdagar Errea x Hvöt
13/05/2024
Ungmennafélagið Hvöt óskar eftir sjálfboðaliðum til þess að starfa í meistaraflokksráði félagsins.
Meistaraflokksráð starfar í umboði aðalstjórnar og hefur það hlutverk að halda utan um meistaraflokk Kormáks/Hvatar í knattspyrnu. Spennandi sumar er í vændum í 2. deildinni og því er tilvalið tækifæri nú til þess að hafa áhrif!
Áhugasamir einstaklingar mega gjarnan hafa samband með því að senda skilaboð hér að neðan.
25/04/2024
Ungmennafélagið Hvöt kynnir:
Stuðningsmannalagið "Áfram Hvöt"
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið ‚Áfram Hvöt‘. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
„Það er mikill heiður að hafa fengið að spreyta sig á þessu verðuga verkefni. Mér þykir að sjálfsögðu afar vænt um Ungmennafélagið Hvöt, enda æfði ég og lék knattspyrnu með félaginu upp alla yngri flokka. Ég náði meira að segja að standa í markinu í tvo eða þrjá leiki í meistaraflokki sumarið 1995. Það var þá sem ég áttaði mig á því að tónlistin hentaði mér líklega betur. Það er virkilega gaman og gefandi að vinna tónlist með syni sínum. Við Baldur erum bæði spenntir og stressaðir að vita hvernig viðtökur þetta nýja lag fær. En við vonum auðvitað að það hljómi á Blönduósvelli í sumar og sem víðast þar sem Hvatarfólk er á ferð.“
-Einar Örn Jónsson
“Ungmennafélaginu Hvöt hefur lengi vantað gott stuðningsmannalag en þónokkur ár eru síðan “Ekki vera löt, allir í Hvöt” kom út. Þegar ég hafði samband við Einar Örn og Baldur síðsumars 2023 stóð ekki á svörum. Úr varð þessi frábæri hittari sem mun án efa fá góðar viðtökur hjá félagsmönnum Hvatar, íbúum Húnabyggðar og bara öllum öðrum. Áfram Hvöt!”
-Grímur Rúnar Lárusson, formaður Ungmennafélagsins Hvatar
Áfram Hvöt!
Áfram Hvöt Löður, Balduuuuur · Song · 2024
22/04/2024
3 dagar!
Því draumar geta ræst á Blönduósvelli
20/04/2024
5 dagar!
Blanda af orku og anda
13/06/2023
Gleðidagur í dag þegar hafin var vinna við lagningu tartans á langstökksbrautina á Blönduósvelli. Við viljum þakka þeim sem styrktu þetta verkefni okkar kærlega fyrir en þeir voru eftirtaldir:
Landsvirkjun
Rannís
Glaðheimar
Einnig verðum við að þakka Steinunni Huldu sérstaklega en hún hefur keyrt þetta verkefni áfram undanfarin ár.
Áfram Hvöt!
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Húnabraut 4
Blönduós
540