Sjóvá Smábæjaleikar Blönduósi

Sjóvá Smábæjaleikar Blönduósi

Share

Smábæjaleikar eru knattspyrnumót sem haldið er á Blönduósi. Þetta er vel skipulagt og skemmtilegt mót fyrir 8-4. flokk og er fyrir bæði kyn.

Síðustu ár hafa verið 500-800 keppendur og mikil stemmning myndast í bænum þessa helgi :)

03/11/2025

Stutt myndband frá Sjóvá Smábæjaleikunum 2025 hlökkum til að taka á móti gestum á árinu 2026. Mótið verður haldið þá helgina 12-14 júní.
Skráning hefst í janúar á næsta ári.

15/06/2025

Sjóvá Smábæjaleikum Blönduósi 2025 er lokið og heppnaðist mótið mjög vel í ár. Veðrið lék við þátttakendur og aðra alla helgina (okei, allavega í dag) ÁGÚST kom og spilaði á kvöldvökunni við mikinn fögnuð þátttakenda og foreldra. Mótslok voru svo um 12:30 í dag þar sem allir fengu grillaðar pylsur, mótsgjöf og verðlaunapening. Knattspyrnudeild Hvatar vill þakka þátttakendum, foreldrum, sjálfboðaliðum og styrktaraðilum kærlega fyrir því án ykkar væri ekkert mót. Hlökkum til að taka á móti ykkur a næsta ári.

(Mynd - Kristmundur Elías Baldvinsson)

14/06/2025

Frábær dagur að baki! Allir keppendur stóðu sig hrikalega vel 🤩

Við minnum á að frítt er í sund fyrir keppendur og jafnframt er frítt á leik Kormáks/Hvatar - Víðis Garði sem hefst á Blönduósvelli kl. 18. Við minnum einnig á kvöldvökuna kl. 20:15 þar sem ÁGÚST kemur fram!

Leikjaplan sunnudagsins er klárt og komið inn á hvot.torneopal.com ásamt upplýsingum um fyrirkomulag í hverjum flokki fyrir sig.

14/06/2025

Það verður skemmtilegur Loppumarkaður í íþróttahúsinu á meðan á mótinu stendur hægt að gera kjarakaup á flottum vörum 🤑

13/06/2025

Kjörbúðin er með lengri opnun alla helgina fyrir gesti á Smábæjaleikunum 🥳

13/06/2025

Nú er leikjaplan komið inn á vef mótsins á hvot.torneopal.com!

Hvetjum alla til þess að kíkja hvenær þeirra leikir eru. Ef það eru einhverjar ábendingar/athugasemdir við leikjaplanið þá má senda póst á [email protected] eða hafa samband við mótsstjórn í s. 693-3131 eða 857-7038.

Hér má svo jafnframt sjá vallarplanið.

Þetta er alveg að bresta á!

12/06/2025

Viljum minna þátttakendur og aðra sem eru á svæðinu á þennan viðburð hjá Skáksambandi Íslands í félagsheimilinu á morgunn. Gott að byrja helgina á smá hugarleikfimi ♟

Photos from Sjóvá Smábæjaleikar Blönduósi's post 11/06/2025

JÆJA! Nú eru Smábæjaleikar Sjóvá 2025 að bresta á. Hér meðfylgjandi er dagskrá og matseðill mótsins. Við erum ekkert eðlilega spennt og hlökkum til að taka á móti ykkur öllum!🥳🥳🥳

Sjóvá Smábæjaleikarnir á Blönduósi 15-16 Jun 2024 16/06/2024

Sjóvá Smábæjaleikar Blönduósi 2024 er lokið og heppnaðist mótið mjög vel í ár. Veðrið lék við þátttakendur og aðra alla helgina. VÆB komu og spiluðu á kvöldvökunni við mikinn fögnuð þátttakenda og foreldra. Mótslok voru svo um 13:00 í dag þar sem allir fengu grillaðar pylsur, mótsgjöf og verðlaunapening. Knattspyrnudeild Hvatar vill þakka þátttakendum, foreldrum, sjálfboðaliðum og styrktaraðilum kærlega fyrir því án ykkar væri ekkert mót. Hlökkum til að taka á móti ykkur a næsta ári.
Pavol A Sylvia Johančíkovi tók skemmtilegar myndir af mótinu gerði skemmtilegt vídeó af þeim endilega kíkið á það.

Sjóvá Smábæjaleikarnir á Blönduósi 15-16 Jun 2024

16/06/2024

Við vekjum athygli allra liða á því að verðlaunaafhending hvers liðs fer fram eftir síðasta leik hjá hverju liði hjá vallarskúrnum þar sem sjoppan er til húsa.

15/06/2024

Óskilamunir verða í sjoppunni á morgunn þar til mótið klárast.

15/06/2024

Leikjaniðurröðun vegna sunnudagsins 16. júní er komin inn á hvot.torneopal.com

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Blönduós?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Blönduós
540