Aðdáendasíða Kormáks

Aðdáendasíða Kormáks Aðdáendasíða besta knattspyrnuliðs í Húnaþingi, Kormáks Hvatar Aðdáendasíða Kormáks Hvatar, flaggskips knattspyrnu á Norðurlandi vestra.

Höfum verið í loftinu frá 2012 og fylgt liðinu þúsundir kílómetra og upp um tvær deildir - en aldrei fallið!

Miðjumaðurinn Pere Belmonte var valinn besti leikmaður Kormáks Hvatar á lokahófi nýlega. Hlutlaust mat er að hann spilað...
22/09/2026

Miðjumaðurinn Pere Belmonte var valinn besti leikmaður Kormáks Hvatar á lokahófi nýlega. Hlutlaust mat er að hann spilaði hreint stórkostlega í sumar og gladdi gesti og gangandi með snilli sinni. Sjaldan eða aldrei höfum við séð leikmann sem var jafn lunkinn við að finna svæði þar sem flestir fundu ekkert svæði og langskotin hans glöddu hal og sprund.

Pere skoraði 11 mörk í deildinni og fimm til viðbótar í bikurunum. Ofan á þessi 16 mörk í 27 leikjum bætti hann 11 stoðsendingum, sem gerði hann bæði markahæsta mann tímabilsins og stoðsendingahæsta.

Þeir uppgjörsmenn sem hafa hann ekki í liði ársins í 2. deild ættu að skoða sín mál - hann var algerlega frábær í sumar og vonumst við til að sjá hann aftur í bleiku sem fyrst!

Á lokahófi Kormáks Hvatar var Trausti Þorgilsson valinn besti ungi leikmaður Kormáks Hvatar eftir sumarið. Trausti átti ...
22/09/2026

Á lokahófi Kormáks Hvatar var Trausti Þorgilsson valinn besti ungi leikmaður Kormáks Hvatar eftir sumarið. Trausti átti algert breakout tímabil og spilaði hreint frábærlega í sumar. Hann gerði vart við sig strax í fyrstu leikjum sumarsins og varð einn af þremur leikmönnum á Íslandi sem skoraði í gegn bikarmeisturum Breiðabliks í þeirri keppni.

Trausti lék á miðjunni og gaf mun eldri og reyndari leikmönnum ekkert eftir, færði sig svo í bakvarðarstöðurnar og hélt áfram að spila vel. Framtíðin er sannarlega núna í Trausta, sem verður lykilmaður í liði Kormáks Hvatar í áframhaldandi uppgangi sínum og liðsins.

Vel gert Trausti!

KSÍ hefur heiðrað þessa sómamenn með gull- og silfurmerkjum sínum, en nælurnar fóru í þá síðastliðinn þriðjudag.Allir ha...
21/09/2026

KSÍ hefur heiðrað þessa sómamenn með gull- og silfurmerkjum sínum, en nælurnar fóru í þá síðastliðinn þriðjudag.

Allir hafa þeir lagt lóð á skálar knattspyrnunnar í Húnaþingum og bætast í hóp þeirra fjögurra fyrrum stjórnarmanna frá Kormáki Hvöt sem hafa verið verðlaunaðir á síðustu árum.

Hipp hipp húrra fyrir Sigga, Jóni og Vigni!

Stjórn Kormáks Hvatar þakkar samfélaginu og gestum frábærar undirtökur við söfnuninni sem sett var af stað í lok ágúst, ...
17/09/2026

Stjórn Kormáks Hvatar þakkar samfélaginu og gestum frábærar undirtökur við söfnuninni sem sett var af stað í lok ágúst, þar sem öll innkoma rann til Bergrósar. Heildarupphæðin var rúnnuð upp í 250.000 kr. og afhent á Skagaströnd nýlega.

Bestu þakkir til allra sem lögðu hönd á plóg og sýndu samfélagsstyrk í verki - ást og friður til ykkar allra!

Í dag klukkan 14:00 mæta Austfirðingar og etja þar kappi við okkur Húnvetninga. Þetta er næst síðasti heimaleikurinn í deildinni þetta árið og í dag viljum við láta gott af okkur leiða inni á vellinum og utan hans.

Söfnun er í gangi fyrir leik, á meðan og eftir hann. Gómsætar vöfflur í vallarskúr, miðaverð allt í gott málefni og vonandi geta okkar menn glatt augu innan vallar.

Eins og oft vill verða hjá fámennum leikmannahópum þá er farið að kvarnast, meiðsli, bönn og heimþrár farin að gera vart við sig. Þá er nú enn mikilvægara að allir leggist á eitt og ýti vagninum yfir línuna.

Áfram Kormákur Hvöt - sjáumst á vellinum!

16/09/2026

Já það var boðið upp á rokk og ról fótbolta í blíðskaparveðri á Blönduósvelli í gær þegar okkar menn duttu út í fjögurra liða úrslitum Gatorade bikarnum með síðustu spyrnu í vító. Mál manna var að bæði lið hefðu átt skilið að fara áfram, en þannig virkar það víst ekki í boltanum. Frábær skemmtun.

Leikurinn var fram og til baka og verulega hart barist, en þó þannig að menn skildu sáttir í leikslok. Meira er vart hægt að biðja um (nema kannski sigur).

Leikmenn, aðstandendur og áhorfendur Kormáks Hvatar mega vera stolt af liðinu í ár. Mesta hrós sem hægt er að fá er hrós andstæðinganna og af því höfum við fengið góðan skammt í sumar. Frá fleiri en einni átt og fleiri en þremur höfum við fengið að heyra hrós fyrir góðan leik og ákaflega gott lið.

Við gerum upp tímabilið á komandi dögum, en í dag klárum við að sleikja sárin.

Áfram Kormákur Hvöt!

Þriðjudaginn 15. september klukkan 16:15 stígum við aftur inn í hringinn. Íslandsmóti er lokið, en fjögurra liða úrslit ...
13/09/2026

Þriðjudaginn 15. september klukkan 16:15 stígum við aftur inn í hringinn. Íslandsmóti er lokið, en fjögurra liða úrslit neðri deildar bikarsins eru framundan. Bleiku boxhanskarnir eru komnir á kjúkurnar og reimarnar festar.

Þetta er í annað skiptið sem við erum með og í annað skiptið erum við meðal fjögurra bestu í Gatorade bikarnum. Nú bíða okkar nýkrýndir deildarmeistarar Hauka. Rifjum upp ferðalagið.

- Í fyrstu umferð slógum við út ríkjandi neðrideildarbikarmeistara Víkings frá Ólafsvík í framlengdum leik 3-2. Knockout í fyrstu umferð og hasar eftir leik. Alltaf gaman að slá út þá sem halda á krúnunni, en áfram var haldið.
- Næst tókum við Kára frá Akranesi í vítakeppni (enda eigum við Uros). Káramenn voru í sumar eitt af þremur liðum sem bitust um að fara upp úr deildinni og þóttu öflugir. Við unnum þá tvisvar og gerðum eitt jafntefli.
- KFA komu að austan og gáfu okkur harðan leik, sem var útkljáður með ekta framherjamarki frá Sten Reinkort. Iðnaðarsigur er orð sem er oft notað og gerum það hér. KFA alltaf erfiðir.

Allt hörku leikir og á þriðjudaginn verður annað eins. Ólíkt árinu í fyrra þá höfum við bara fengið heimaleiki í ár. Áhorfendur og lið saman á okkar velli.

Látum okkur ekki vanta á völlinn - þetta er síðasti heimaleikurinn og því kjörið að þenja flautur og garga liðið áfram á Laugardalsvöllinn! Tökum jákvæðu orkuna úr öllu sem við erum búin að gera í sumar og fleytum henni inn á völlinn!

13/09/2026

Síðasti kafli 2. deildarinnar þetta árið var skrifaður á Blönduósvelli í gær, þegar Fjölnismenn komu í heimsókn. Fyrir leik voru liðin með jafn mörg stig, en við betri markatölu.

Skemmst er frá því að segja að leikurinn endaði 1-2 fyrir aðkomumenn í leik þar sem við komumst yfir en enduðum undir. Mark okkar skoraði Bilal Kamal eftir ljúfa stoðsendingu frá Guzman.

Uros Ðuric sýndi okkur enn á ný að hann er mesti vítabani deildarinnar (landsins?) þegar hann varði tvö slík í leiknum. Urosinn er tilbúinn í bardagann á þriðjudaginn þegar Haukar koma í heimsókn í fjögurra liða úrslitum Gatorade-bikarsins, þar sem til mikils er að vinna. Nánar um það síðar!

Kormákur Hvöt endaði því í 8. sæti 2. deildar, sem er vel viðunandi árangur fyrir okkar lið. Meira um uppgjör sumarsins, með löðrandi tölfræðiupplýsingum og hlutdrægum skoðunum, þegar sumrinu er lokið. Því er nefnilega ekki lokið. Það er einn bardagi sem bíður.

Mætið á þriðjudaginn!

Síðasti deildarleikur ársins fer fram á Blönduósvelli klukkan 14:00 laugardaginn 12. september. Strákarnir okkar sigla l...
10/09/2026

Síðasti deildarleikur ársins fer fram á Blönduósvelli klukkan 14:00 laugardaginn 12. september. Strákarnir okkar sigla lygnan sjó rétt sunnan við miðja deild, en með réttum úrslitum geta þeir endað í allt að fimmta sæti.

Mótherjinn er stórlið Fjölnis. Þeirra lið lék í deild þeirra bestu síðast árið 2020 og enduðu fyrir sléttum 10 árum í 4. sæti þar, aðeins nokkrum stigum frá Íslandsmeistaratitlinum.

En hér erum við í dag, Fjölnir og Kormákur Hvöt, með jafn mörg stig en við ofar með betri markamun. Þessir síðustu leikir þegar fall er frá og uppferð útilokuð eru oft pínu skrýtnir og búast má við hverju sem er á Blönduósvelli. Vissulega eru okkar menn við hugan við stórslaginn í 4 liða bikarnum á þriðjudaginn, en frá með hann í bili.

Mætum á völlinn og sýnum stuðning - klárum þetta mót með sigri gegn Fjölni!

Kormákur Hvöt gerði strandhögg í Mosfellsbæ í dag, þar sem heimamenn í Hvíta Riddaranum börðust fyrir lífi sínu í 2. dei...
05/09/2026

Kormákur Hvöt gerði strandhögg í Mosfellsbæ í dag, þar sem heimamenn í Hvíta Riddaranum börðust fyrir lífi sínu í 2. deild. Okkar menn voru kannski ekki á lygnum sjó, því með ömurðar úrslitum hefðum við sogast í óþarfa fallbardaga eftir herfilegt gengi að undanförnu.

Ljóst var frá byrjun að hlekkir voru af okkar mönnum. Liðið mun meira léttleikandi en upp á síðkastið og unun að horfa á á köflum. Sten Reiknkort kom okkur yfir á 13. mínútu með silkimjúku marki eftir langan bolta frá Uros í markinu. Pere Belmonte negldi honum inn korteri seinna og átti svo geggjaðan undirbúning í öðru marki Sten rétt fyrir hálfleik. Sá er að vakna á hárrréttum tíma!

Í seinni hálfleik hresstust Eyjólfar í Hvíta Riddaranum og þjörmuðu að Húnvetningum. Mjög tók dómarinn að fara í taugarnar á þeim á síðasta fjórðungi leiksins, en slíkt verð oft verða þegar menn eru með bakið upp við vegginn.

Í uppbótartíma tók Pere vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á honum sjálfum og skoraði örugglega. Áhorfendur fengu þó enn meira fyrir sitt pund og mörkin urðu að lokum sjö - Hvíti Riddarinn 3 Kormákur Hvöt 4.

Með þessu féllu nýliðarnir úr Mosfellsbæ um deild og óskum við þar velfarnaðar. Okkar bíða Fjölnismenn í síðustu umferðinni á Blönduósi, en liðin eru með jafn mörg stig í deildinni.

Mörkin eru í kommentum, hvert öðru fegurra!

Þá er það síðasti útileikur ársins og það er Mosfellsbær.  Gestgjafarnir eru okkar forni fjaldi í Hvíta Riddaranum, en m...
05/09/2026

Þá er það síðasti útileikur ársins og það er Mosfellsbær. Gestgjafarnir eru okkar forni fjaldi í Hvíta Riddaranum, en mun þetta vera 12. leikur liðanna í deildarkeppni, sem sennilega er met hjá okkur. Höfum við einmitt unnið fimm af síðustu s*x þeirra, svo let's go!

Upp og niður deildarstigann hafa þessi lið farið saman og í sitthvoru lagi, en sérstaklega á fyrri árum þá var att hörðu kappi í gömlu góðu 4. deildinni.

Okkar lið hefur heldur látið undan síga eftir að möguleiki á uppferð hvarf út fyrir sjóndeildarhringinn. Þó er full dramatískt að segja að við værum komnir í fallbaráttu, sem þeir Riddarar sannarlega eru. Þetta ætti því að verða hörku skrattans leikur og áhugafólk um barning ætti að fá mikið fyrir skildinginn.

Sjáumst þar, uppspilið fyrir undanúrslitin í Gatorade bikarinn hefst í dag!

Address

Blönduósvöllur
Blönduós
540

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Aðdáendasíða Kormáks posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Aðdáendasíða Kormáks:

Shortcuts

Share