Golfvöllurinn Glanni

Golfvöllurinn Glanni

Share

Golfvöllurinn Glanni, á bökkum Norðurár.

22/07/2025

Opna Glanna mótið verður haldið laugardaginn 9.ágúst. Búið er að opna fyrir skráningu. Spilaðar verða 18 holur. Leikfyrikomulag er punktakeppni með forgjöf, hámarksforgjöf er 36. einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skorið og nándarverðlaun á par 3 brautum.

GolfBox Tournament

Photos from Golfvöllurinn Glanni's post 10/05/2025

Við gáfum til kynna fyrir nokkrum vikum að völlurinn mundi opna 10. maí og við það stöndum við. Síðustu daga hafa ötulustu menn klúbbsins staðið í slætti og að gera allt klárt eins og þar stendur. Hér fylgja með myndir af hluta félagsmanna sem mættu í morgun svo hægt væri að standa við opnun vallarins þrátt fyrir kuldakast síðustu daga. Eins og þeir sem þekkja Glannavöll vita, eru allar brautir þurrar en vatn þar sem það má vera og gerir völlinn bara meiri áskorun. Spáin, ef hún gengur eftir, er hreint frábær. Þegar líður á næstu viku gerir spáin ráð fyrir "rauðum" kortum sem þýðir að hitinn getur farið í 18-20°. Verið því velkomin á Glannavöll í sumar og njótið golfsumarsins hjá okkur.

16/02/2025

Það er kominn golfhermir á Hótel Bifröst! Verðin hér eru opnunartilboð en verða verð fyrir meðlimi klúbbsins eftir að tilboðinu lýkur. 🏌️‍♀️

19/07/2024

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Opna Glannamótið 2024 :)
Mótið fer fram laugardaginn 10. ágúst.
Í fyrra komust færri að en vildu svo nú er rétti tíminn til að skrá sig!

GolfBox Tournament

09/06/2024

Sól og blíða á Glannavelli. Loksins birti upp og hlýnaði og þá stóð ekki á að völlirinn fylltist af golfþyrstum kylfingum. Völlurinn hefur tekið góðum framförum síðustu daga og er óhætt að hvetja golfara að koma og spila völlinn. Stækkun skálans kemur vel út og nú geta kylfingar og aðrir notið veitinga og horft út yfir 9 flötina og fylgst með golfinu eða staldrað við í logninu á pallinum. Þetta holl var að ljúka hring á vellinum um hádegisbilið.

20/05/2024

Mikið ávannst við stækkun golfskálans núna um hvítasunnuhelgina. Nokkrar hetjur félaga úr liði klúbbfélaga skiluðu miklu verki við að einangra og klæða viðbyggingu klúbbhússins. Hér er mynd af þeim sem lögðu hvað mest af mörkum en fleiri voru að verki en voru farnir þegar myndin var tekin. Bærilega viðraði til að spila völlinn og var umferð spilara nokkuð þétt þó hitastigið hefði mátt vera hærra. Það er einróma álit að stækkun skálans hafi tekist vel með gluggum sem sýna kylfinga slá inná níundu flötina. Völlurinn er kominn í gott ástand svo snemma sumars svo spilarar ættu að líta við og taka hring og fá í svanginn að leik loknum

16/05/2024

Búið er að opna fyrir allar 18.holurnar.
Völlurinn er í toppstandi.
Nóg laust af rástímum og glæsilegt golfmót um helgina.

15/05/2024

Opnun 18. maí

Opnað hefur verið fyrir rástímaskráningu frá laugardeginum 18. maí.
Völlurinn er í góðu standi og nú er um að gera að skrá sig á GolfBoxinu. ⛳️🏌️‍♀️

02/08/2023

Í dag fór fram útför Gísla Þorsteinssonar sem á fyrstu árum golfvallarins var mikilvirkur í starfi á vellinum. Sem fyrrum bóndi og vélamaður hélt hann sláttutækjum okkar gangandi og miðlaði þekkingu sinni af túnaslætti og áburðargjöf. Hann var réttur maður á réttum stað meðan hans naut við. Við sem störfuðum með Gísla þessi ár minnumst hans af virðingu og vottum aðstandendum samúðar. Það var skemmtilegt að á minningarborðinu í erfidrykkjunni var einmitt mynd af Gísla frá þessum tíma

Viðar Þorsteinsson

31/07/2023

Opna Glanna golfmótið 2023 verður haldið laugardaginn 12. ágúst nk. ⛳️🏌️
Skráning hér:

GolfBox Tournament

06/07/2023

Frábær spá um helgina og völlurinn hefur sjaldan verið betri.
Verið öll velkomin og munið að skrá rástímana í Golfboxinu! 🏌️‍♂️

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Borgarnes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


þjóðvegur Eitt Við Glanna Og Paradísarlaut
Borgarnes
311