27/01/2016
Dagskrá helgarinnar - alltaf gaman að skella sér á dansmót :)
Dansíþróttafélag Borgarfjarðar er aðili að UMSB, DSÍ, ÍSÍ og UMFÍ.
27/01/2016
Dagskrá helgarinnar - alltaf gaman að skella sér á dansmót :)
12/01/2016
Jæja - nú er komið að því :) Fyrsta dansmót ársins.
05/12/2015
Borgfirðingurinn Daði Freyr Guðjónsson er úti ásamt dans dömu sinni Mörtu Carrasco í Vilnius í Litháen að keppa fyrir Íslandshönd á heimsmeistaramótinu í standarddönsum fullorðinna.
Áfram Borgarfjörður - Áfram Ísland :)
Stór helgi framundan!
Daði Freyr Guðjónsson og Marta Carrasco eru stött í Vilnius í Litháen en þar fer fram WDSF heimsmeistaramót fullorðinna í standarddönsum.
Við óskum þeim góðs gengis - ÁFRAM ÍSLAND!
04/11/2015
Spennandi mót um helgina - en þar munu fimm borgfirskir dansarar taka þátt.
Velkomin á Lottó Open helgina 7.-8.nóv.
Welcome to Lottó Open 7.-8 of November.
14/10/2015
Það styttist í keppni!!!
Við birtum hér dagskrá UMSK - dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
29/04/2015
Ótrúlega skemmtilegt dansmót var haldið um helgina. Síðasta dansmót vetrarins og Íslandsmeistaramót í standard hjá meistaraflokki og jafnframt íslandsmeistaramót í hæsta stigi grunnspora.
Það er gaman að segja frá því að borgfirsku krakkarnir okkar stóðu sig svakalega vel, eins og þeim er von og vísa.
Anton og Arna (DÍH) urðu Íslandsmeistarar í flokknum Unglingar II grunnsporum latín og í því þriðja í standard.
Allir borgfirskir meistaraflokkskeppendur komust í úrslit í sínum keppnum.
Birgitta og Daníel (DFB) dönsuðu í meistaraflokki Unglinga II og náðu 5. sæti í standard og 6. í latín.
Daði og Marta (HVÖNN) dönsuðu í meistaraflokki fullorðinn í standard og latín og náðu 4. sæti.
Arnar og Laufey (HVÖNN) dönsuðu í meistaraflokki fullorðinna í standard og náðu 7. sæti.
Við erum afskaplega stolt af krökkunum okkar í héraði :) Til hamingju Borgfirðingar!
Unglingar II, 4 dansar latin:
Íslandsmeistarar Anton E Einarsson og Arna J Jökulsdóttir DÍH, 2. sæti Sæþór B Ásgeirsson og Þórdís Ó Jónsdóttir DÍH, 3. sæti Aron Eiríksson og Elísa G Ómarsdóttir DFB, 4. sæti Fróði Þórðarson og Victoria Dydula DFB
20/04/2015
Spennandi dansmót um næstu helgi :) Íslandsmeistaramót í standard dönsum með frjálsri aðferð og Íslandsmeistaramót í grunnsporum í hæsta getustigi.
06/03/2015
21/01/2015
Spennandi danshelgi framundan. Fyrsta mót ársins :)
21/01/2015
Það var rosafjör hjá Loga í gær - þrátt fyrir að við söknuðum 7. bekkinga sem eru á Reykjum þessa viku.
Enn er hægt að skrá sig og við höldum áfram næsta þriðjudag :)
18/12/2014
Dansíþrótttasamband Íslands hefur valið dansparið Sigurð Má Atlason og Söru Rós Jakobsdóttur sem Dansíþróttapar ársins 2014.
Sigurður og Sara eru bæði fædd árið 1992 og hafa dansað saman síðan árið 2000.
Sigurður og Sara unnu Íslandmeistaratitil í standard dönsum árið 2014. Þau fóru á tvö heimsmeistaramót á árinu.
Á stigalista WDSF (Alþjóða dansíþróttasambandið)eru þau nr. 316 í latin og nr. 133 í 10 x dönsum.
Á árinu 2014 náðu þau eftirfarandi árangri:
Íslandsmeistaramót í standard dönsum fullorðinna. 1. sæti.
Íslandsmeistaramót í 10 x dönsum fullorðinna. 2. sæti.
Íslandsmeistaramót í latin dönsum fullorðinna 2. sæti.
Bikarmeistarar í standard og latin dönsum fullorðinna.
HM 10 x dansa sem haldið var í Riga í Lettlandi, hlutu 25. sæti.
HM latin sem að haldið var í Ostrava í Tékklandi, hlutu 59. sæti.
Sigurður og Sara eru góðar fyrirmyndir fyrir önnur danspör, hvort sem er við þjálfun eða ástundun.