Golfklúbbur Borgarness

Golfklúbbur Borgarness

Share

Hamarsvöllur er 18. holu golfvöllur í Borgarnesi

Nýjir félagar - GOLFKLÚBBUR BORGARNES | Hamarsvöllur | Borgarnes Golf Club, Hamri, 310 Borgarnes, Iceland 09/05/2026

Golfklúbbur Borgarness bíður upp á fjölbreyttar félagsaðildir. ⛳ Endilega kíkið á möguleikana sem eru í boði á https://gbgolf.is/nyjir-felagar/

Félagsaðild fyrir 19-26. ára á aðeins 45.000.- kr.

Sjáumst á Hamarsvelli í sumar🏌️

Nýjir félagar - GOLFKLÚBBUR BORGARNES | Hamarsvöllur | Borgarnes Golf Club, Hamri, 310 Borgarnes, Iceland Nýjir félagar Njótið skemmtilegrar og krefjandi golfupplifunar á vellinum okkar! Upplýsingar um nýjan félaga Fullt nafn * Kennitala * Farsími * Netfang * Sótt er um eftirfarandi aðild: * Félagsaðild fyrir vildarvini GB - 150.000 krFélagsaðild fyrir 26 til 66 ára - 125.000 krFélagsa....

04/05/2026

* Uppfærðar upplýsingar um opnun Hamarsvallar *

Við höfum opnað Hamarsvöll fyrir félagsmenn, með smá takmörkunum. Í ljósi næturfrosts í þessari viku verður einungis hægt að spila völlinn frá kl. 11:00. Ekki er búið að opna inn á 9. flöt, en hún er mjög blaut eftir veturinn og opnar vonandi á næstu dögum.

Að sama skapi neyðumst við til að seinka opnun fyrir aðra gesti til 15. maí. Því miður kemur næturfrostið á leiðinlegum tíma fyrir okkur og viljum við hafa vaðið fyrir neðan okkur.

Við þökkum Björgvini Óskari (Bob) kærlega fyrir uppfærða mynd af Hamarsvelli, eins og hann verður spilaður í sumar!

30/04/2026

Kæru félagsmenn og verðandi gestir Hamarsvallar

Sumarið er handan við hornið og styttist óðum í opnun vallarins. Veðrið síðustu daga hefur verið okkur hagstætt; góður hiti, rok og rigning og hefur völlurinn tekið vel við sér, þó blautur sé á köflum. Áætlaður opnunardagur fyrir almenning er helgin 8.-10. maí, en nokkrum dögum fyrr fyrir félagsmenn.

Nýtt tímabundið klúbbhús

Okkar frábæru sjálfboðaliðar hafa verið í óða önn að koma nýja húsinu í stand fyrir sumarið, ásamt afbragðs iðnaðarmönnum. Gaman hefur verið að sjá hversu margir félagsmenn eru tilbúnir að mæta til okkar og aðstoða okkur við að koma aðstöðunni upp, enda mun skapast þarna dýrmæt félagsaðstaða fyrir okkur sem hefur sárlega vantað og félagsmenn kallað eftir. Ásamt því að klára frágang innandyra þannig hægt verði að opna móttökuna, þá er framundan smíði timburpalls fyrir framan þar sem kylfingar geta sest niður eftir hring og horft á 18. flöt líkt og hefur verið.

Líkur eru á að móttakan okkar verði ekki fullkláruð fyrstu dagana sem völlurinn verður opin og vonumst við til að því verði sýndur skilningur.

Ný uppröðun hola

Í sumar munum við breyta uppröðun hola á vellinum og spila völlinn í annarri röð en áður. Röð hola í sumar verður eftirfarandi:

1. braut – Gamla 17. braut (verður par 4)
2. braut – Gamla 18. braut
3.-7. braut – Gömlu 12.-16.
8. braut – Gamla 2. braut (Við Hamarsbæinn)
9.-17. braut – Gömlu 3.-11.
18. braut – Gamla 1. braut

Það er ýmsar ástæður fyrir þessari breytingu. Okkur finnst eðlilegt að uppröðun vallarins sé í samræmi við staðsetningu móttöku, þ.e. að 1. teigur og 18. flöt séu nálægt móttökunni / klúbbhúsi enda slíkt alþekkt á golfvallarsvæðum hérlendis sem erlendis. Einnig mun þetta fyrirkomulag hlífa framkvæmdasvæðinu okkar á nýju par 3 holunni og nýjum teigum á 1. braut. Að sama skapi þá er þessi skipting vallar hentug upp á salerni, nesti o.fl. en labbað er framhjá móttökunni frá 7. flöt að 8. teig,

Samhliða þessu eru ný teigmerki á leiðinni, en við ætlum aftur í litakerfið í stað talna þar sem að lengd vallarins mun taka örum breytingum á næstu árum. Öftustu teigar verða svartir, næstu grænir, svo vínrauður og að lokum silfur. Við vildum ekki fara aftur í gömlu litina enda er stefna GSÍ að útrýma öllu tali um gula sem karlateiga og rauða sem kvennateiga, og erum við t.a.m. að elta GKG í litavali á teigum.

Við gerum okkur grein fyrir að breytingin mun ekki falla í kramið hjá öllum, en við erum mjög spennt fyrir að prófa þetta fyrirkomulag í sumar og reiknum með að stemningin á pallinum við 18. flöt verði rafmögnuð.

Rástímar

Örlítil breyting verður á rástímaskráningu í sumar. Til að byrja með mun tíminn milli rástíma lækka úr 10 mínútum í 9 mínútur, en þetta er gert til að fjölga rástímum fyrir félagsmenn og aðra gesti enda völlurinn þétt setinn. Einnig munum við lengja rástímaskráningu, en í sumar verður hægt að skrá sig á rástíma frá kl. 6:00 til 23, en það er lenging frá 7:00-20:50. Margir voru að spila golf snemma á morgnanna eða seint á kvöldin án þess að geta skráð sig og leysir þetta þann vanda. Að sama skapi opnar þetta á möguleika fyrir kylfinga til þess að spila miðnæturgolf hjá okkur yfir hásumarið.

Æfingasvæðið

Fyrir þá sem hafa komið á vallarsvæðið síðustu mánuði hafa tekið eftir þonokkru magni efnis sem við fengum frá Borgarverk á svæðinu við hliðina á range-inu, þar sem par 3 völlurinn var áður. Þar munum við byggja upp flotta æfingaaðstöðu fyrir styttri höggin, en þarna verða stór púttflöt, flöt fyrir vippsvæði og svo innst svokallað pitch svæði þar sem hægt verður að æfa mismunandi lengdir af styttri höggum (

Photos from Golfklúbbur Borgarness's post 16/03/2026

Andlát: Símon Páll Aðalsteinsson

Í dag var borinn til grafar Símon Páll Aðalsteinsson, fyrsti framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness, en hann lést þann 5. mars sl. Símon var framkvæmdastjóri GB á árunum 1997-2007 og var helsta driffjöðurin í þeirri miklu framkvæmd sem stækkun Hamarsvallar í 18 holur var.

Símon smitaðist af golfbakteríunni í kringum 1990 og tók fljótt þátt í starfi GB, m.a. í vallarnefnd. Í afmælisblaði GB, Hamarinn – Golfklúbbur Borgarness 50 ára, er rifjað upp kaffistofuspjall þeirra Símons og Jóns Haraldssonar þáverandi gjaldkera klúbbsins. Jón stakk upp á því að fá Símon í vinnu fyrir klúbbinn enda væru næg verkefni fyrir mann með hans reynslu, en Símon var bifvélavirki að mennt. Sá Jón fyrir sér að Símon færi í 25% starf, en áður en Símon vissi af var búið að ráða hann sem framkvæmdastjóra í fullt starf.

Fljótlega eftir að Símon hóf störf var fljótt byrjað að huga að stækkun Hamarsvallar og var fyrsti áfanginn að gera nýjar flatir sem nú eru á 9, 10 og 11. holu. Eftirminnilegt var að flatirnar voru þökulagðar í slyddu og snjókomu að hausti. Annað minnistætt verkefni var mikil aðgerð við að fjarlægja grjót upp úr vellinum sem höfðu leikið vélar klúbbsins grátt. Áætlað er að yfir 100 tonn af grjóti hafi náðst af vellinum, sem nýttist síðar við landmótun í stækkun vallarins. Á framkvæmdarárunum 2003-2006 bar Símon hitann og þungann af landmótun Hamarsvallar, en það kom í hlut hans að ýta því heilmikla efni sem þurfti til landmótuninnar ásamt því að móta brautirnar á jarðýtu sem klúbburinn keypti.

Símon var útnefndur heiðursfélagi GB árið 2007.

Við sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur til Þuríðar og fjölskyldu. Minning um góðan mann og dugnarfork lifir! Flaggað er á Hamarsvelli í dag.

Fh. Golfklúbbs Borgarness
Þorkell Már Einarsson, formaður

Photos from Golfklúbbur Borgarness's post 30/01/2026

Heiðursfélgar GB 2026

Á aðalfundi GB þann 16. janúar síðastliðinn voru Jón Haraldsson og Þóra Björgvinsdóttir gerð að heiðursfélögum GB. Hjónin hafa unnið síðustu áratugi mjög óeigingjarnt starf í þágu klúbbsins, m.a. stjórnarsetu og nefndarstörfum. Síðastliðin ár hafa þau verið fljót að bjóða hjálp sína í hvaða verkefnum sem klúbburinn óskar eftir.
Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra starf í þágu klúbbsins.
Áfram GB

Nýjir félagar - GOLFKLÚBBUR BORGARNES | Hamarsvöllur | Borgarnes Golf Club, Hamri, 310 Borgarnes, Iceland 28/01/2026

Golfklúbbur Borgarness bíður upp á fjölbreyttar félagsaðildir. ⛳ Endilega kíkið á möguleikana sem eru í boði á https://gbgolf.is/nyjir-felagar/

Frelsisaðild er ein af þeim aðildum sem slegið hefur í gegn hjá okkur! Hlökkum til þess að sjá þig á Hamarsvelli í sumar🏌️

Nýjir félagar - GOLFKLÚBBUR BORGARNES | Hamarsvöllur | Borgarnes Golf Club, Hamri, 310 Borgarnes, Iceland Nýjir félagar Njótið skemmtilegrar og krefjandi golfupplifunar á vellinum okkar! Upplýsingar um nýjan félaga Fullt nafn * Kennitala * Farsími * Netfang * Sótt er um eftirfarandi aðild: * Félagsaðild fyrir vildarvini GB - 150.000 krFélagsaðild fyrir 26 til 66 ára - 125.000 krFélagsa....

24/12/2025

Gleðlilega hátíð kæru golfarar og vinir!

Þökkum samveruna á árinu sem er að líða og hlakkar okkur til að taka á móti ykkur á nýju ári.

18/11/2025

Allir kylfingar með virka félagsaðild ættu að fá tilkynningu um að ný uppfærsla á appi GSÍ og GolfBox sé nú aðgengileg í App Store eða Play Store. “Mitt Golf” appið var þróað í samstarfi við GolfBox og Danska Golfsambandið. Með nýja appinu fæst betri notendaupplifun og auknir stafrænir möguleikar fyrir golfhreyfinguna til framtíðar.

Allar þær aðgerðir sem kylfingar eru vanir að nota verða áfram aðgengilegar í Mitt Golf. Virkni núverandi GolfBox-apps er innbyggð í nýja appið og hægt er að nálgast hana á sama hátt og áður.

Allt þetta og meira til geturðu gert í appinu:

⛳að bóka rástíma í GolfBox
⛳að lesa fréttir frá golfklúbbnum þínum
⛳að lesa nýjustu fréttir af vefsíðunni Golf.is
⛳skoða forgjöfina þína og helstu útreikninga
⛳að fletta upp á golfreglunum á íslensku
⛳fengið tilkynningar frá kerfinu, golfklúbbum eða GSÍ

Náðu þér í nýja appið fyrir Android og Apple!

Ný uppfærsla á GolfBox appinu⛳

Allir kylfingar með virka félagsaðild ættu að fá tilkynningu um að ný uppfærsla á appi GSÍ og GolfBox sé nú aðgengileg í App Store eða Play Store. “Mitt Golf” appið var þróað í samstarfi við GolfBox og Danska Golfsambandið. Með nýja appinu fæst betri notendaupplifun og auknir stafrænir möguleikar fyrir golfhreyfinguna til framtíðar. Frétt í athugasemd

20/10/2025

Kæru kylfingar,

Tekin hefur verið sú ákvörðun að loka Hamarsvelli fyrir veturinn.

Við þökkum kærlega fyrir sumarið og hlökkum til að sjá ykkur næsta sumar.

01/10/2025

🌟🏌️‍♂️ GB-félagi vikunnar 🏌️‍♀️🌟

Nafn: Júlíana Jónsdóttir

Aldur: 65 ára

Forgjöf: 23,4

Hvenær byrjaðiru í golfi og af hverju: Ég byrjaði í golfi sumarið 1990. Golfklúbburinn bauð konum að koma á golfnámskeið sem var allt sumarið mjög skemmtilegt og endaði á golfmóti. Þá var ekki aftur snúið. Golfbakterían var mætt og hefur ekki horfið síðan.

Í einu orði, hvernig myndirðu lýsa golfsveiflunni þinni: Misjöfn.

Uppáhalds kylfan í settinu: 7 tréið.

Uppáhalds holan á Hamarsvelli og af hverju: Áttunda holan af því hún er krefjandi og svo er hún svo falleg.

Síst uppáhalds holan á Hamarsvelli og af hverju: Engin, finnst þær allar skemmtilegar hver á sinn hátt.

Ertu með einhverja hjátrú eða rútínu áður en þú slærð? Nei, bara að reyna að muna að horfa á boltann.

Besta golfveðrið: Þurrt, skýjað og logn má samt vera smá andvari.

Uppáhalds golfarinn og af hverju: Bjarki Pétursson af því að hann er frábær kylfingur.

Drauma hollið: Fjölskyldan saman; Hallbera, Trausti og Eva Linda, náði að spila með þeim öllum um daginn og það var mjög gaman.

29/09/2025

Veðrið lék við GB-félaga og Hamarsvöllur var í sparifötunum þegar Bændaglíma GB fór fram á laugardaginn.

Bændurnir í ár voru jarðaberjabændurnir – Einar Pálsson og Kristjana Jónsdóttir (Nanna) 👩🏻‍🌾🍓🧑🏻‍🌾

Glíman endaði 13–13, en samkvæmt hefð gildir viðureign bænda tvöfalt þegar jafnt er.
Rauða liðið undir stjórn Nönnu tryggði sér því sigurinn í ár!
(Sjá mynd af sigurliðinu 📸)

Um kvöldið var haldið lokahóf GB þar sem sumarið var gert upp, rætt um næstu skref og verðlaunahafar ársins heiðraðir.

🏆 Úrslit úr Örninn mótaröðinni voru einnig kynnt – við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Þátttakan í mótaröðinni var frábær í ár!

Við erum þakklát fyrir golfsumarið 2025 – Áfram GB! 💚

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Borgarnes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hamar
Borgarnes
311

Opening Hours

Monday 08:00 - 22:00
Tuesday 08:00 - 22:00
Wednesday 08:00 - 22:00
Thursday 08:00 - 22:00
Friday 08:00 - 22:00
Saturday 08:00 - 22:00
Sunday 08:00 - 22:00