Jógabíllinn

Jógabíllinn

Share

Jógabíllinn er húsbíll sem keyrir sinn fyrsta hring í kringum landið okkar fagra í maí 2020.

21/07/2022

Haldiði að við séum ekki FYRIR BESTAN!

Jóga á helginni?

Jóga og hugleiðslunámskeið á Ísafirði 28/05/2021

Hæææ, þetta er Íris :)
Ef þú ert/verður eða langar að vera á Ísafirði 22,23 og 24 júní þá verð ég með þetta næs og djúhúsí kvöldnámskeið kl 18:15-20:15.

Meira um það hér:

Jóga og hugleiðslunámskeið á Ísafirði Kennari Íris Ösp Heiðrúnardóttir. Lærðu að opna inn á þreyttustu svæðin í líkamanun þínum með öndun, teygjum og þægilegum jógastöðum.

17/05/2021

Jógabíllinn er einsárs og því ber að fagna, finnst ykkur ekki?
Hvernig myndir þú vilja fagna með okkur í júní?

21/11/2020

Baaara aðeins að tékka
AUSTFIRÐIR
Er stemning fyrir námskeiði í desember?
Nei bara pæla..

21/10/2020

HÆ!! LANGT SÍÐAN!

Nýjast í fréttum er að í lok sumars, rétt eftir Jógabíllinn ævintýrið fékk ég yfir mig nóg af þessu cov*d drama og eirðarleysi. Í einhverjum æsingnum sótti ég um í nuddskóla í Kaupmannahöfn sem ég komst inn í og hér er ég nú: í Köben, með málningar penslana og jógadýnuna að læra nudd og búin að kasta mér út í það að kenna sjálfri mér að renna keramik (ó díses).

Námið er stutt en ég hyggst samt vera hér eitthvað fram á næsta ár eða lengur en það jafnvel.

Svo, til að auðvelda mér (lesist: mömmu, sem sér um lagerinn núna) hefur YOGER fengið sinn egin link inná Ísafold Design síðunni. Hér er því loksins hægt að kaupa spil beint af mér í gegnum netið.

LINKUR: https://www.isafolddesign.is/smmunir/yogerspil-islenska

Ég hef ákveðið að hafa sendingarkostnað 0kr fram að jólum svo nú er um að gera að drífa í að panta jólagjafir eða þinn egin spilastokk fyrir þriðju, fjórðu og fimmtu bylgju af you-know-what.

Annað í fréttum: BARNA YOGER er rétttttt ókominn á markað. Hann er í prófarkalestri as we speak og ætti að vera kominn í búðir um miðjan Nóvember.

Ég lofa að láta heyra meira í mér,
ykkar,
Íris

25/06/2020

Heimalingajóga? Væri það kannski gaman!? 😍😍😍

Photos 19/06/2020

Drekkum bara úr lækjum hér. (Að sjálfsögðu áfylling á flöskuna okkar)

19/06/2020

Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni.

Photos 16/06/2020

Við erum alveg snarspenntar að komast aftur á Vestfirði ekki á morgun heldur hinn!! Jóga retreatið hefst á föstudaginn og við getum ekki beðið!!
Það er UPPSELT á þetta fyrsta retreat en við erum rosa mikið að bralla og bardúsa svo við getum haldið annað sem allra fyrst. 👏👏👏

08/06/2020

Minnum á tímann á morgun kl 17:30 á Selfossi!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Egilsstaðir?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Egilsstaðir