Olsen Offroad

Olsen Offroad

Share

Torfærulið úr Fellabæ. Formula Offroad team from Fellabær, Iceland.

Photos from Olsen Offroad's post 23/06/2026

Fyrsta fréttabréf sumarsins loksins komið í hús.
Var óvart flokkað sem ruslpóstur sem skrifast möglega á frammistöðuna... allavega Hella 2026, gjöriðisvovel!

Á Hellu fór bara allt lauslegt í skrúfuna. Bjarnþór velti í fyrstu tveim brautunum og hafði viðgerðarliðið því nóg annað að gera en að éta egg og beikon (já og pönnukökur, skulum ekki gleyma þeim). Það var vesen á nítróinu í fyrstu braut og kviknaði í bílnum sem er í besta falli sóðalegt. Stýrið fór svo í döðlur í veltunni í annarri – þurfi að skipta um dælu, tjakk og rótor.
Ekki var það skárra hjá Gulla, hann velti í fyrstu braut og öll hjól læst þegar hann var dreginn í pitt. Fljótt á litið fannst ekkert að annað en bogin felga sem var slípuð í horfið. Í annarri braut sat okkar maður svo með stýrið í höndunum í fyrstu brekku. Ef vel er að gáð í útsendingunni má sjá hann grípa um stýristúbuna og reyna að stýra með annarri og stýrið í hinni! Ekki beint vænlegt til árangurs það og kennir vonandi gömlum hundi að tékka hvort stýrið sé splittað fast áður en haldið er í braut.
Þriðja braut skítslapp hjá þeim báðum, Bjarnþór rétt náði í tæka tíð, keyrði úr pitt þegar það var komið grænt í braut og sá því ekki hvernig hún var búin að keyrast. Gulli kláraði hana en bíllinn eitthvað skrítinn. 4 brautin var svo bara Laugavegur.
Tímabrautin var mjög flott hjá Bjarnþóri, 5 besti tíminn og hitti á endahlið 😉 Gulli hefði eflaust náð flottum tíma líka ef bíllinn hefði ekki dottið tvisvar úr gír. Þá var orðið nokkuð ljóst að eitthvað verulega mikið var að skiptingunni og fyrsti gírinn alveg farinn.
Bjarnþór nær svo þriðja besta tímanum í ánni sem er ekkert annað en geggjaður árangur! Gulli keyrði ánna í öðrum gír, sem virkar auðsjáanlega ekki og það þarf ekkert að reyna það aftur.
Hefðum betur skipt um skiptingu í bílnum hjá Gulla eftir fyrstu braut en það er svo auðvelt að vera vitur eftirá. Þegar við rifum hana kom í ljós að það hafði brotnað tönn úr parkhringnum og hún síðan búin að mylja sig í gegnum skiptinguna. Veisla.

Skildum útgerðina eftir fyrir sunnan fram að næstu keppni. Mögulega skilar fréttabréfið úr henni sér innan tíðar.

Austurríki ehf
Benny's Racing
Bílanaust
BJ Vinnuvélar
G. Ármannsson
Go East
HS. Vélaverk
Landsverk Verktakar ehf
MVA ehf
Myllan ehf. Egilsstöðum
Orka ehf
Sillikokkur.is
Smári Skipper
Súperlagnir ehf
Sæti ehf
Tanni Travel
VSV Verkstæði Svans ehf
Þotan Bolungarvík

03/06/2026

❤️
Frábært framtak hjá Torfæruklúbbnum!

Látum gott af okkur leiða❤️
Þeir sem sigra sérútbúna flokkinn á keppnum á vegum Torfæruklúbbsins í sumar velja sér góðgerðarmál sem Klúbburinn styrkir.
Í síðustu keppni sigraði Bjarnþór Elíasson á Olsen Olsen og færði hann ásamt formanni Klúbbsins Neistanum styrktarfélagi hjartveikra barna ávísun upp á 100.000 kr.💛

18/03/2026

þetta er svo geggað!!!!

18/03/2026

350

14/03/2026
Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Egilsstaðir?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Egilsstaðir
700