Góðan daginn
Næstkomandi mánudag 3 ágúst er frídagur verslunarmanna og verður helgaropnun þann dag. Opið frá kl 09:00 til 17:00
Kveðja
Starfsfólk ÍÞE
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
Sundlaug 25x12,5 2 heitir pottar,vaðlaug fyrir börn,barnvæn rennibraut,kaldur pottur,gufubað
02/07/2026
Taka tvö í fyrramálið 3 júlí
Íþróttamiðstöðin er inná þessu svæði sem verður rafmagnslaust næstu nótt.
Þegar svona er þá munum við missa hitann niður á öllum laugum/pottum hjá okkur.
Við ætlum samt að halda plani í fyrramálið og opna á venjulegum tíma. Við getum ekki lofað því að pottarnir verði nothæfir fyrst um sinn en sundlaugin verður klár á sínum stað en verður væntanlega 2-3 gráðum kaldari en hún er vön að vera.
Með bestu kveðju, starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar
‼️ Vegna vinnu í dreifistöð verður rafmagnslaust í Miðgarði, Útgarði og Tjarnarbraut á Egilsstöðum frá kl. 23:30 þann 2. júlí til 5:00 þann 3. júlí 2026.
⚡️ Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana.
ℹ️ Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof
25/06/2026
https://www.mulathing.is/is/frettir/rafmagnsleysi-a-egilsstodum-25-26-juni
Íþróttamiðstöðin er inná þessu svæði sem verður rafmagnslaust næstu nótt.
Þegar svona er þá munum við missa hitann niður á öllum laugum/pottum hjá okkur.
Við ætlum samt að halda plani í fyrramálið og opna á venjulegum tíma. Við getum ekki lofað því að pottarnir verði nothæfir fyrst um sinn en sundlaugin verður klár á sínum stað en verður væntanlega 2-3 gráðum kaldari en hún er vön að vera.
Með bestu kveðju, starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar
Rafmagnsleysi á Egilsstöðum 25.-26. júní Vegna vinnu í dreifistöð verður rafmagnslaust í Miðgarði, Útgarði og Tjarnarbraut á Egilsstöðum frá klukkan 23:45 þann 25. júní til 6:00 þann 26. júní 2026
Góðan daginn
Þjóðhátíðardagurinn 17 júní er sundlaug og rækt lokuð hjá okkur eins og alltaf.
Vegna veðurs færast hátíðarhöldin inní íþróttasalinn hjá okkur
Kveðja
Starfsfólk ÍÞE
Góðan daginn
Saunan okkar er því miður biluð.
Unnið er að viðgerð ekki víst hvenær hún verður komin í lag aftur.
Kveðja
Starfsfólk ÍÞE
24 maí og 25 maí er helgaropnun hjá okkur í sund og rækt frá 09:00 til 17:00
22/05/2026
Íþróttamiðstöðin lokar vegna viðhalds Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum verður lokuð frá 2. júní og opnar aftur þann 8. júní
Uppstigningardagur 14 maí á morgun helgaropnun hjá okkur í rækt og sund 09:00 til 17:00
Kveðja
Starfsfólk ÍÞE
04/05/2026
Í dag var mætur maður borinn til grafar 🤍
Steini hóf störf hjá sundlauginni á Egilsstöðum fyrir aldamót og vann hjá okkur allt til ársins 2021. Steini var mjúkur og góður maður en g*t látið í sér heyra þegar þess þurfti, sem svo sannarlega er fulkomin blanda í starfi sem þessu.
Steini var á heimavelli á þessum vinnustað þar sem mikið af fólki kom við og g*t oft verið mikið fjör. Hann var duglegur að stoppa við í kaffi eftir að hann hætti að vinna meðan hann hafði heilsu til.
Læt fylgja með eina skemmtilega sögu úr Íþróttahúsinu sem náði því að verða atriði á þorrablóti hér um árið.
Fyrir nokkrum árum var farið í mikla tiltekt í sundlaugarkjallaranum sem var orðinn yfirfullur af allsskonar drasli. Steini var fenginn með í þetta verkefni á landcruisernum og fengin stærsta kerran að láni sem áhaldahúsið á Egilsstöðum átti. Þegar búið var að fylla á kerruna var ákveðið að fá sér einn kaffibolla áður en lagt var á stað með allt góssið á ruslamóttökuna. Steini fékk tvo aðra starfsmenn til að koma með sér. Annar sat við hliðna á Steina og hinn sat í aftursætinu til þess að fylgjast með því að ekkert dytti nú af kerrunni. Steini keyrði mjög gætilega alla leiðina og fór sérstaklega varlega yfir hraðahindraninar. Þegar komið var á vigtina innfrá stóð þar starfsmaður sem var ekkert nema tvö stór augu og benti alltaf fyrir aftan bílinn. Þegar málið var kannað betur kom í ljós að það gleymdist að húkka kerrunni aftaní bílinn fyrir utan íþróttahúsið áður en lagt var af stað 😊
Við gerum fastlega ráð fyrir því að Steini hafi hlegið hátt af þessu þegar frá leið í það minnsta.
Elsku Tidda, Máni, Begga og fjölskyldur við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Minning um góðan mann lifir með okkur 🤍
Samúðarkveðjur frá starfsfólki Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Tjarnarbraut 26, Egilsstöðum
Egilsstaðir
700
Opening Hours
| Monday | 06:30 - 21:30 |
| Tuesday | 06:30 - 21:30 |
| Wednesday | 06:30 - 21:30 |
| Thursday | 06:30 - 21:30 |
| Friday | 06:30 - 21:30 |
| Saturday | 09:00 - 17:00 |
| Sunday | 09:00 - 17:00 |