04/03/2020
Götuþríþraut var frábær viðburður sem fór fram á Eskifirði fyrstu helgi í júní frá 2010-2018.
Þetta voru frábær ár, þar sem mikill fjöldi tók þátt, börn og fullorðnir, yngsti keppandi 5 ára og elsti 71 árs.
Í mjög mörgum tilfellum voru einhverjir að taka sín allra fyrstu skref í þátttöku í þríþraut. Við vorum líka með þátttakendur sem höfðu aldrei áður tekið þátt í íþróttakeppni, eða æft nokkra íþrótt. Skemmtilegast var þó að fylgjast með börnunum og þegar börn og fullorðnir voru saman í liði og æfðu saman fyrir keppni. Þau voru því mörg gæsahúðaraugnablikin þegar þátttakendur komu í mark og settu persónuleg met.
Þetta var skemmtilegt ferli, ótalmargir lögðu hönd á plóginn til að þetta gæti orðið að veruleika öll þessi ár og við þökkum keppendum, sjálfboðaliðum og styrktaraðilum fyrir allt. En hætta ber leik þá hæst stendur, við þökkum fyrir frábærar móttökur og vonum að allir þeir sem tóku þátt og aðrir, stundi hreyfingu við hæfi og njóti lífsins.
08/06/2018
Myndir teknar við sundlaugina þar sem keppendur hófu og luku keppni.
06/06/2018
Sjálfboðaliðar (vantar samt nokkra) í Götuþríþraut gerðu sér dagamun og gerðu upp keppnina 2018 með mörgum góðum hugmyndum um betrumbætur fyrir 2019.
TAKK FYRIR ALLT SJÁLFBOÐALIÐAR, ÞIÐ ERUÐ BEST!
04/06/2018
Það þarf samfélag til að halda flotta viðburði og okkar samfélag er svo sannarlega að standa sig í tengslum við Götuþríþraut.
Við þökkum öllum sjálfboðaliðum frábærlega vel fyrir þeirra framlag, án þeirra væri Götuþríþraut ekki neitt. Einnig þökkum við styrktaraðilum stórum og smáum mjög vel fyrir, það er ómetanlegt að eiga slíka að í okkar samfélagi. Síðast en ekki síst þökkum við keppendum stórum og smáum, byrjendum og lengra komnum fyrir þátttökuna, það er magnað að taka á móti ykkur ár eftir ár með brös á vör og gleðina í fararbroddi.
TAKK TAKK TAKK TAKK, VIÐ SJÁUMST AÐ ÁRI, 1. JÚNÍ 2019 :-)
02/06/2018
Nokkrar myndir frá deginum (fleiri síðar), sem tókst frábærlega í alla staði, blíðskaparveður og allir kátir.
Við óskum öllum þátttakendum til hamingju, ekki síst sigurvegurunum og þökkum fyrir daginn.
Keppnistima má sjá inni á www.timataka.net/gotu3_2018
Sjáumst aftur 1. júní 2019 👏
01/06/2018
Ágætu Eskfirðingar og nærsveitungar! Á morgun höldum við okkar 9. Götuþríþraut á Eskifirði.
Keppni hefst að morgni kl. 08:00 og lýkur um hádegi. Á því tímabili er fólk að hjóla og hlaupa í bænum hjá okkur. Okkur langar að hvetja ykkur til að fylgjast með þessu duglega fólki, en jafnframt að aka varlega, yngstu keppendurnir eru 8 ára gamlir.
Við vekjum athygli á því að öll bílastæði við sundlaugina eru lokuð og ekki er ætlast til að lagt sé þar sem rauðmerkt er á myndinni. Það er nóg af stæðum upp við kirkju vilji fólk koma og fylgjast með í lauginni.
ÞETTA ER ALLTAF STEMNING - ÁFRAM VIÐ!
01/06/2018
Verið að leggja lokahönd á undirbúning, hlökkum til að sjá ykkur á morgun!!
27/05/2018
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í Götuþríþraut 2018 - skráningarfrestur rennur út á miðnætti!! www.gotu3.com
Endilega deilið og látið vita í kringum ykkur, ef einhver er að gleyma sér!