15/08/2017
Aflamynd eftir góðan seinni part í ánum í síðustu viku. Átta dregnir á land, en þessir voru teknir heim á grillið.
Ódýr lax- og silungsveiði í fallegu umhverfi
15/08/2017
Aflamynd eftir góðan seinni part í ánum í síðustu viku. Átta dregnir á land, en þessir voru teknir heim á grillið.
04/08/2016
Ágústmánuður fer vel af stað í Fáskrúðsfirði! Í fyrradag veiddust 22 bleikjur og 5 í gær. Þessar voru teknar heim á grillið.
09/08/2015
Góð veiði í Dalsá í Fáskrúðsfirði. Ánægður veiðimaður sendi þessar myndir af aflanum, en hann fékk 16 bleikjur. Áður hafði annar veiðimaður fengið 7 bleikjur og lax! Þetta lofar góðu fyrir framhaldið í ánni. Alltaf gaman að fá fréttir frá veiðimönnum.
30/06/2014
Dalsáin opnuð í dag með hvelli! Veitt var í eina og hálfa klukkustund og voru 8 fallegar bleikjur dregnar á land! Þessar voru teknar í soðið en öðrum sleppt.
23/05/2014
Forsala hafin í Dalsá Fáskrúðsfirði!
Hafin er forsala á veiðileyfum Hafin er forsala á veiðileyfum í Dalsá Fáskrúðsfirði. Þeir sem vilja tryggja sér veiðileyfi í tíma hafi samband í síma 861-2154 Þeir sem vilja tryggja sér gistingu, hringi í síma 892-1374 Ódýr og f...
Veiðimenn sem voru í Dalsá í dag heyrðu í umsjónarmanni árinnar, þá voru þeir nýbúnir að tapa 1,5 klst viðureign við 12-14 punda lax í hyl nr. 37. Engu að síður voru þeir hæstánægðir með daginn og höfðu fengið 3-4 punda bleikjur fyrr um daginn á neðra svæði. Þess má geta að veiðimaðurinn var með nettar silungagræjur nr. 6 og endaði viðureignin á að laxinn sleit hjá honum.
23/06/2013
Dalsá formlega opnuð í dag í blíðskapar veðri. Töluvert líf að sjá og athygli vakti að áin mældist 10°C heit og var fyrsta bleikja sumarsins dregin á land. Ekki amaleg á grillið þessi.
Sala veiðileyfa í fullum gangi í Söluskála Stefáns Jónssonar, Fáskrúðsfirði. Sími: 475-1490
Byrjað er að taka við pöntunum veiðileyfa í Dalsá Fáskrúðsfirði fyrir sumarið 2013
Hægt er að panta í síma: 861-2154
eða senda tölvupóst á netfangið: [email protected]
Fyrsti laxinn sást í Dalsánni í morgun og menn urðu varir við bleikju í hyl nr. 2 :)
07/04/2012
Forsala veiðileyfa hafin fyrir veiðisumarið 2012.
Nánari upplýsingar á www.dalsa.wordpress.com
Einnig í síma 861-2154
Dalsá Fáskrúðsfirði Dalsá Fáskrúðsfirði
07/04/2012
Myndir teknar af Dalsá
07/04/2012
Myndir teknar af Tungudalsá