Körfuboltaakademían

Körfuboltaakademían

Share

Ægir Þór Steinarsson býður uppá körfuboltaakademíu í sumar, frá 13. júní - 16 júní og 15. ágúst - 19. ágúst.

Fyrir stelpur og stráka úr öllum liðum, frá 10-17 ára.

30/06/2023

Nú förum við inn í síðasta dag vikunnar í Körfuboltaakademíunni. Krakkarnir hafa lagt hart að sér og ætla sér greinilega stóra hluti næsta vetur.

Ungir og efnilegir þjálfarar akademíunnar fengu hlutverk að setja saman myndband eftir vikuna. Glæsileg útkoma með áhugaverðu lagavali.

Takk fyrir vikuna.

18/06/2023

Ægir Þór Steinarsson snýr aftur og býður aftur uppá körfuboltaakademíu í sumar fyrir 2009-2013 vikuna 26-30 júní.

Akademían hefur notið mikilla vinsælda og mikið af krökkum úr mörgum mismunandi liðum skráð sig.

https://www.sportabler.com/shop/stjarnan/korfubolti

16/06/2022

Frábær vika að baki hjá okkur í akademíunni. Mikill metnaður í krökkunum en það sem stóð upp úr voru þau Zahkhar Studenikin og Karolina Prozhoha frá Úkraínu. Þau höfðu aldrei spilað körfubolta áður og hoppuðu heldur betur ofan í djúpu laugina í sterkum miðjuhóp akademíunnar. Stóðu sig virkilega vel og bættu sig með hverjum deginum 💪🏼 Sjáumst aftur 15. ágúst

14/06/2022

Fyrsta vikan fer vel af stað!

24/05/2022

We are back!

08/08/2021

Síðasta vikan þetta sumarið hefur runnið sitt skeið hjá okkur í Körfuboltaakademíunni.

Við viljum þakka öllum metnaðarfullum krökkum sem létu sjá sig og lögðu sig fram.

Sportvörur eiga skilið mikið þakklæti því þeir gerðu það kleift að við fengum hágæða æfingatæki sem bættu mismunandi atriði körfuboltans.

Solestory sá um veglega vinninga sem voru meðal annars keppnistreyjur, sokkar og derhúfur.

Justin Shouse kom sem gestur og gaf krökkunum gjafabréf á just wingin it.

Takk fyrir skemmtilegt sumar og við hlökkum til að sjá ykkur næsta sumar.

08/08/2021

Kristófer Acox mætti á inniskónum og blokkaði krakka. Krakkarnir tóku það hins vegar í reynslubankann og munu finna leiðir til þess að skora gegn honum.

08/08/2021

Tryggvi Snær Hlinason mætti síðustu vikuna í akademíunni. Krakkarnir fengu tækifæri til þess að reyna að skora á hann og það gekk svona vel.

Photos from Körfuboltaakademían's post 02/08/2021

Við fáum góða heimsókn í vikunni en þeir Kristófer Acox og Tryggvi Hlinason koma til okkar. Þeir taka við flautunni í nokkra stund og spjalla við okkur um það sem skiptir máli.

Það er ekki of seint að skrá sig

https://www.sportabler.com/shop/stjarnan/körfubolti

29/07/2021

Við höldum áfram með Akademíuna eftir helgi. Það var frábær mæting í júní en iðkendur fengu skemmtilega öðruvísi æfingar og landsliðsfólk í heimsókn. Við byrjum á þriðjudaginn 3. ágúst og ætlum að vera með krefjandi æfingar fyrir komandi tímabil.

Skráning hér
https://www.sportabler.com/shop/stjarnan/k%C3%B6rfubolti

25/06/2021

Strákarnir í Sportvörum eru búnir að láta okkur fá ýmsan varning sem mun hjálpa okkur í sumar við æfingarnar.

Við byrjum á mánudaginn. Ekki missa af tækifærinu að bæta þig fyrir komandi tímabil!

Skráning
https://www.sportabler.com/shop/stjarnan/k%C3%B6rfubolti

02/06/2021

Til hamingju yngri flokkar með frábært tímabil! 🏀🏆
Gott er að hafa í huga hvað skal gera næst.
Körfuboltaakademían er að leggja lokahönd á skipulag sumarsins en mikilvægt er að skrá sig til að missa ekki af þessari veislu.

https://www.sportabler.com/shop/stjarnan/k%C3%B6rfubolti

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Garðabær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Ásgarður
Garðabær
210