Karatefélag Garðabæjar

Karatefélag Garðabæjar

Share

Sh*to Ryu karate í boði fyrir alla aldurshópa. Við leggjum metnað í að börn geti fengið útrás
í traustu umhverfi.

Photos from Karatefélag Garðabæjar's post 14/05/2026

Íslandsmeistaramót barna og unglinga í Kata var haldið í Íþróttahúsinu Austurbergi um síðastliðna helgi þann 9. og 10. maí. Það var ringing alla þá helgi svo það var fullkomið veður til að halda sig inni og nýta tíma í að mingla við aðra karate iðkendur og spreyta sig í því að keppa við þá í leiðinni.
Sumir voru vel vanir því að keppa en aðrir að stíga sín fyrstu skref í því að taka þótt í stóru móti en þetta gekk alveg ljómandi vel fyrir sig og allir stóðu sig mjög vel, félaginu til sóma.
Til leiks voru mættir á laugardeginum um 90 keppendur, 12 ára og eldri, og um 160 á sunnudeginum, börn 11 ára og yngri, frá 12 félögum.
Frá okkur mættu í heildina 24 keppandur og því heilmikið sem þurfti að huga að til að allt gengi vel fyrir sig og vil ég þakka þeim foreldrum sem aðstoðuðu sérstaklega fyrir hjálpina. Einnig eiga ungu aðstoðaþjálfararnir okkar sérstakt hrós skilið fyrir sitt framlag á mótinu, þetta hefði ekki gengið eins vel án þeirra!
Hér að neðan má sjá myndir af okkar snillingum og þeirra árangri en þar má meðal eru tveir íslandsmeistarar,
Hinrik Lár í flokki pilta 7 ára og yngri og Indíana Rún í flokki stúlkna 7 ára og yngri og óskum við þeim innilega til hamingju með titilinn!
Aðrir sem nældu sér í sæti eru eftirfarandi:
Arnar Daði 2. sæti í flokki 8 ára pilta
Klara Ýr 3. sæti í flokki 7 ára og yngri stúlkna
Kría María 3. sæti í flokki 9 ára stúlkna
Maren 2. sæti í flokki 10 ára stúlkna
Karen 2. sæti í flokki 13 ára stúlkna
Guðmundur Frosti 3. sætir í flokki 13 ára pilta
Þar að auki var keppt í hópkata þar sem þrír keppendur keppa saman í hóp og hlutu 3 hópar sæti á palli,
í hópkata 9 ára og yngri var það bæði 2. og 3. sæti og svo í hópkata 12 og 13 ára. Nöfn þeirra fylgja myndunum hér að neðan.
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn!
Frábær helgi að baki með okkar frábæru iðkendum sem öll stóðu sig virkilega vel og við erum mjög stolt af þeim!

Photos from World Karate Federation's post 06/05/2026

❤️🥋💙

25/04/2026

Íslandsmeistaramót í Kata framundan!
Mikilvægar upplýsingar til iðkenda og foreldra komnar inn á lokaða hópinn

Photos from Karatefélag Garðabæjar's post 18/04/2026

Grand Prix 2 var haldið í íþróttahúsinu Fagralundi í dag🥋 hópmynd gleymdist en hér eru myndir af þeim sem enduðu á palli, óskum þeim innilega til hamingju með sinn árangur👏👏

02/04/2026

Gleðilega páska og hafið það gott í fríinu!
Æfingar hefjast aftur þriðjudaginn 7. apríl🥋

14/02/2026
Photos from Karatefélag Garðabæjar's post 14/02/2026

Fyrsta Grand Prix mótið var haldið í dag og voru 115 keppendur skráðir til leiks. Frá okkur voru 8 keppendur sem stóðu sig frábærlega og erum við mjög stolt af þeim öllum.
Það komu í heildina 6 verðlaun í hús, 4 gull, 1 silfur og eitt brons en þau skiptast eftirfarandi:
Maren Pálsdóttir Miura 1. sæti í Kata 11 ára stúlkna
Alex Dagur Turner 3. sæti í Kata 11 ára pilta
Orri Steinn Bárðarson 1. sæti í Kata 12 ára pilta
Karen Pálsdóttir Miura 1. sæti í Kata 13 ára stúlkna
Orri Steinn Bárðarson 1. sæti í Kumite 12 ára pilta
Piyusha D. Herath Mudiyanselage 2. sæti í Kumite 12 ára pilta
Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn!

13/02/2026

https://www.facebook.com/share/1ArxMDB4o5/?mibextid=wwXIfr

Karate and the Developing Brain

One of the lesser-known benefits of traditional karate is its effect on the brain.

When we practise structured movement — stances, coordination, timing, balance — we stimulate something called neuroplasticity.

Neuroplasticity is the brain’s ability to adapt, form new connections, and strengthen neural pathways through repetition and focused practice.

For children, this supports:
• coordination and motor control
• attention and concentration
• emotional regulation
• confidence built through skill development

For teenagers, it strengthens:
• discipline and impulse control
• decision-making under pressure
• body awareness and posture

For adults, it helps maintain:
• cognitive sharpness
• memory and learning capacity
• reaction time
• mental clarity

Traditional karate is not random movement.
It is structured, repetitive, and deliberate — which is exactly how the brain grows stronger.

We are not just training bodies.
We are strengthening the nervous system for life.

— Mark and Libby
Shi-Gaku-Kan Karate

Photos from World Karate Federation's post 07/02/2026

Smá laugardags inspo🥋🫶

Photos from Karatefélag Garðabæjar's post 25/01/2026

RIG eða Reykjavík International Games var haldið á laugardaginn síðastliðinn þar sem 5 af okkar iðkendum kepptu.
Þau stóðu sig virkilega vel og tóku heim ein gullverðlaun og tvö silfur verðlaun. Við óskum þeim innilega til hamingju!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Garðabær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Ásgarður
Garðabær
210

Opening Hours

Monday 13:00 - 20:00
Tuesday 13:00 - 20:00
Wednesday 13:00 - 20:00
Thursday 13:30 - 20:00
Friday 13:00 - 20:00
Saturday 10:00 - 12:00