Góðan daginn gott fólk.
Þá erum við komin í sumarleyfi eftir frábæran vetur.
Bestu þakkir til ykkar fyrir jákvæðni, gleði og samvinnu, og ekki síst fyrir frábæra mætingu.
Það er ómetanlegt að hlakka til að mæta í vinnuna á hverjum degi 😘
Vona að þið njótið sumarsins, sjáumst hress og kát í haust.
Mýrin vatnsleikfimi
Vatnsleikfimi sem hentar fólki á öllum aldri, kennari er Jóna Örlygsdóttir íþróttakennari
Gleðilegt sumar kæru vinir, takk fyrir frábæran vetur.
Góðan daginn gott fólk,
þá er páskaleyfi lokið og vatnsleikfimin byrjar aftur í dag.
Eru ekki allir búnir að skrá sig?
Hlakka til að hitta ykkur hress og kát.
01/04/2026
Langar þig að prófa hressandi vatnsleikfimi?
Í Mýrinni í Garðabæ er kennd á vatnsleikfimi sem er sniðin að fólki sem hefur áhuga á að hreyfa sig frísklega í góðum félagsskap.
Vatnsleikfimi er skemmtileg leið til líkamsræktar, frábær aðferð til að styrkja vöðva, bæta úthald og auka liðleika, og það kemur mörgum á óvart hvað hægt er að gera fjölbreyttar æfingar í vatninu.
Ný námsskeið hefjast strax eftir páskana. Margir hópar eru í boði og nokkur pláss laus.
Ekki hika við að senda skilaboð ef þú hefur áhuga á að vita meira, hægt er að senda póst á [email protected], eða senda einkaskilaboð hér á síðunni
Hlakka til að heyra frá ykkur,
Jóna íþróttakennari.
Gleðilegt ár gott fólk, takk fyrir góðar stundir á liðnu ári.
Skráning á næstu námsskeið eru í fullum gangi og enn er hægt að bætast í hópinn. Stundaskráin er sú sama og áður, og hægt að velja um ótal tímasetningar.
Næsta námsskeið stendur í 5 vikur og hægt er að velja um að vera 2x í viku eða 1x í viku. Námsskeiðin byrja 7. janúar.
Ekki hika við að vera í sambandi fyrir nánari upplýsingar.
Best er að senda póst á netfangið g-jona@internet eða senda einkaskilaboð hér á síðunni.
Hlakka til að heyra í ykkur,
kv Jóna íþróttakennari.
Langar þig að prófa hressandi vatnsleikfimi?
Í Mýrinni í Garðabæ er kennd á vatnsleikfimi sem er sniðin að fólki sem hefur áhuga á að hreyfa sig frísklega í góðum félagsskap.
Vatnsleikfimi er skemmtileg leið til líkamsræktar, frábær aðferð til að styrkja vöðva, bæta úthald og auka liðleika, og það kemur mörgum á óvart hvað hægt er að gera fjölbreyttar æfingar í vatninu.
Ný námsskeið hefjast 7. Janúar og skráning er hafin.
Ekki hika við að senda skilaboð ef þú hefur áhuga á að vita meira, hægt er að senda póst á [email protected], eða senda einkaskilaboð hér á síðunni
Hlakka til að heyra í ykkur,
Jóna íþróttakennari.
29/12/2025
Góðan daginn gott fólk.
Vonandi hafa allir haft það sem best yfir jólin, við slökun, hreyfingu og góða samveru með ykkar fólki.
Ný námsskeið í vatnsleikfiminni hefjast að nýju 7.janúar samkæmt stundaskránni.
Skráning er í fullum gangi og laust í einhverjum hópum.
Verið endilega í sambandi fyrir frekari upplýsingar, hlakka til að heyra frá ykkur.
með heilsukveðju,
Jóna vatnsleikfimikennari
[email protected]
06/11/2025
Langar þig prófa að æfa í vatni til að styrkja þig, liðka og bæta úthaldið?
Í sundlauginni í Mýrinni í Garðabæ er kennd hressandi vatnsleikfimi fyrir fólk á öllum aldri, sem hefur áhuga á skemmtilegri og fjölbreyttri hreyfingu í góðum félagsskap. Margir hópar í boði og hægt að velja um að vera 1x eða 2x í viku.
Kannaðu málið, það er laust í örfáum hópum.
Jóna íþróttakennari,
[email protected]
Sæl öll sömul.
Núna er búið að ákveða að loka Mýrinni ekki seinna en kl 15.00 í dag vegna versnandi veðurspár. Það verða því ekki tímar í dag, hlakka til að sjá ykkur hress og kát næst.
Munum eftir heimaæfingunum,
bestu kveðjur til ykkar, Jóna
Góðan daginn gott fólk.
Ný námsskeið í vatnsleikfiminni byrja í næstu viku og það eru laus pláss í örfáum hópum.
Ekki hika við að senda mér línu fyrir frekari upplýsingar,
[email protected]
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Garðabær