17/09/2026
Æfingar fara frábærlega af stað hjá minnibolta 6–7 ára hópunum okkar!
Við erum afar stolt af viðtökunum í haust, en nú þegar eru 77 iðkendur skráðir í 6–7 ára karla og 42 iðkendur í 6–7 ára kvenna, auk þess sem margir nýir iðkendur eru að koma og prófa.
Til að mæta þörfum hópsins og veita sem besta þjónustu höfum við tekið upp nýtt fyrirkomulag hjá þessum aldri í samstarfi við hinar deildir Stjörnunnar:
-Hverfisæfingar: Ein æfing á viku fer fram í hverfi iðkenda.
-Helgaræfingar: Ein stór helgaræfing þar sem allir hóparnir koma saman.
Skráning fer fram í gegnum Abler en við hvetjum alla áhugasama krakka til að mæta og prófa!
Í boði eru skemmtilegar og gefandi æfingar undir stjórn reynslumikilla þjálfara. Við hlökkum til að sjá ykkur!
Hér má sjá æfingartímana hjá hópnum:
MB.6-7 ára. KK - 2019-2020
Þriðjudagar 15:00-16:00 - Urriðaholt(Urriðaholtsskóli)
Miðvikudagar 15:00-16:00 - Mýrin(Hofsstaðaskóli)
Fimmtudagar 15:00-16:00 - Ásgarður, gamli salur(Flata-, Sjálands-, Alþjóða- og Hjallaskólinn)
Laugardagar 10:30-11:30 - Ásgarður, stóri salur( Allir skólar- 6 ára 2020)
Laugardagar 11:30-12:30 - Ásgarður, stóri salur( Allir skólar- 7 ára 2019)
MB.6-7 ára. KVK - 2019-2020
Þriðjudagar 14:00-15:00 - Urriðaholt(Urriðaholtsskóli)
Miðvikudagar 14:00-15:00 - Mýrin(Hofsstaðaskóli)
Fimmtudagar 14:15-15:15 - Ásgarður, gamli salur(Flata-, Sjálands-, Alþjóða- og Hjallaskólinn)
Laugardagar 09:30-10:30 - Ásgarður, stóri salur (Allir skólar- 6-7 ára, 2019-2020)
SKÍNI STJARNAN 💙