Dafna-Markþjálfun & ráðgjöf

Dafna-Markþjálfun & ráðgjöf

Share

Dafna býður uppá markþjálfun og ráðgjöf fyrir þá sem vilja auka vellíðan sína og ná betra jafnvægi.

Unnið er með jákvæðar tilfinningar, styrkleika og hugarfar sem eiga þátt í því að einstaklingurinn blómstrar,vex og dafnar.

30/08/2022

Ég elska að bæta við mig verkfærum og var ég að ljúka kennsluþjálfun í námsefni um núvitund og velferð fyrir börn og unglinga á vegum Núvitundarsetursins 🧡

05/04/2022

Ég dreif mig loksins í þessu!
Núna get ég stolt kallað mig ACC vottaðan markþjálfa👏

25/01/2022
12/10/2021

Núna ( noona) er hægt að bóka tíma hjá mér í gegnum noona appið 🤍

Ég býð uppá:
-Markþjálfun
-Markþjálfun fyrir börn & ungmenni
-Ráðgjöf
-Ráðgjöf fyrir börn og ungmenni

https://www.noona.is/dafna

Gæti ekki verið auðveldara að panta sér tíma 🤩

Vona að þið eigið yndislegan dag 😊

Dafna - dafna.is 06/10/2021

*Aukin vellíðan & núvitund*

Kæru mæður og verðandi mæður.

Ég og Sara hjá .markthjalfun.saratosti ætlum að bjóða uppá námskeið sem ber heitið Aukin vellíðan & núvitund.

Fyrirlestrarnir eru ætlaðir mæðrum og verðandi mæðrum til að auka vellíðan og jafnvægi í móðurhlutverkinu.

Það verður farið yfir hvað jákvæð sálfræði er og hvers vegna aðferðir innan þeirrar nálgunar eru gagnlegar. Einnig verður skoðað hvernig nýta megi núvitund til að hjálpa okkur að hlúa að sjálfum okkur og um leið hvernig við aukum samkennd í eigin garð.

Mögulegur ávinningur:
*Aukin vellíðan
*Aukin núvitund
*Aukin samkennd í eigin garð
*Aukin hamingja
*Meiri bjartsýni
*Aukið jafnvægi
*Innri friður.

Námskeiðið er 4. skipti og hefst þriðjudaginn 9. nóvember. Næstu tímar þar á eftir eru: 16.nóvember, 23.nóvember og 30.nóvember.

Tími: 10.30-12.00.
Verð: 15.990kr.

Skráning fer fram á [email protected] eða [email protected]

Börnin eru að sjálfsögðu velkomin með 🤍

Staðsetning: Vellíðanarsetrið
Hlýjar kveðjur
Yrja

Dafna - dafna.is ÞAÐ ERU leiðir til að dafna & Blómstra Á ÖLLUM SVIÐUM LÍFSINS! Vertu heila útgáfan af þér Bókaðu tíma " Vertu heila útgáfan af þér Hafðu samband Um DAFNA Blómstra, vaxa og dafna Dafna sérhæfir sig í börnum, unglingum og fullorðnum sem vilja auka vellíðan sína og n....

23/08/2021

Svo ótrúlega gaman að hafa átt skemmtilegt spjall um móðurhlutverkið/foreldrahlutverkið, jákvæða sálfræði, markþjálfun og svo margt fleira hjá ♥️ Takk fyrir mig & ♥️

25/06/2021

✨Gleðiskruddan er komin✨
Ég er svo óendanlega þakklát og stolt af bókinni okkar ♥️
Loksins er afrakstur vinnu síðasta 1,5 árs að líta dagsins ljós.
Við getum ekki beðið eftir að afhenda þær (Í næstu viku). Við hefðum ekki getað þetta án flottra kvenna sem hjálpuðu við að gera Gleðiskrudduna fallegri og glæsilegri en við höfðum vonað.
Hægt er að kaupa Gleðiskrudduna á glediskruddan.is

Takk

17/05/2021

Ég og Marit hjá Gleðiskruddunni erum með námskeið fyrir börn á aldrinum 8-12 ára í sumar.

Námskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan.

Helstu áherslur eru að efla;
Sjálfsþekkingu
Bjartsýni og von
Trú á eigin getu
Gróskuhugarfar
Styrkleika

Dagsetningar í boði:
11-18 júní
21-25 júní

Námskeiðið fer fram í Vellíðanarsetrinu, Urriðaholtsstræti 18.

Nánari upplýsingar og skráning fer fram á [email protected]

11/05/2021

*Þakklát*

Ég lauk framhaldsnámi í markþjálfun hjá Profectus núna um helgina og er óendanlega þakklát.
Þakklát fyrir samnemendur mína.
Þakklát fyrir kennarana okkar.
Þakklát fyrir þessa mögnuðu aðferð sem aðstoðar fólk í leit sinni að aukinni sjálfsþekkingu og vexti.

Takk fyrir mig ♥️

10/05/2021

27/04/2021

*NBI-þjálfi*

Ég býð uppá NBI-huggreiningu til að skilja hugsnið okkar!

NBI-hugsnið gefa vísbendingar um hvernig:
• við komum fram við aðra
• við stundum viðskipti
• við eigum samskipti
• við leysum vandamál
• við kjósum að forgangsraða
• við myndum tengsl

Hugsnið okkar gefur vísbendingu um hvernig við hneigjumst til að eiga samskipti, stjórna, læra, kenna, leiða, leysa vandamál, taka ákvarðanir og mynda sambönd og margar fleiri hliðar lífsins.

Nánari upplýsingar á [email protected]

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Garðabær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Urriðaholtsstræti 18
Garðabær
210