Viðburðarsíða Stjörnunnar

Viðburðarsíða Stjörnunnar

Share

Á þessarri síðu munu birtast tilkynningar um viðburði og skemmtanir sem tengjast félagsstarfi liðsins.

15/12/2017

Kæra Stjörnufólk, ilmurinn er farinn að færast nær TM-Höllinni. Skötuveisla Stjörnunnar er að sjálfsögðu á sínum stað á Þorláksmessu

05/10/2017

Manstu hvað það var gaman í fyrra?
Endurtökum leikinn saman 21. okt. en færum okkur upp á næsta level 💥

Miðasalan er farin á fullt. Tryggðu þér miða í tíma. Miðapantanir á [email protected].

Hlökkum til að sjá ykkur 👄

20/09/2017

Minnum á að það styttist í Herrakvöld Stjörnunnar en það verður haldið 20. Október. Árið í ár er þrítugasta skiptið sem Herrakvöldið er haldið svo þetta verður tímamóta kvöld í ár. Miðapantanir fara fram á [email protected]

Herrakvöld Stjörnunnar. Þessi síða er til að halda utanum herrkvölds viðburði sem haldið eru af handknattleiksdeild Stjörnunar.

14/08/2017

Mikið fjör í TM höllinni í vikunni. Hvetjum alla til að mæta og sjá flotta leiki

Í næstu viku verður haldið Subway mót Stjörnunnar í TM-höllinni.
Fullt af leikjum og frábært fyrir fólk að koma og kíkja á leikina.
Verður gaman að sjá hvernig strákarnir koma undan sumrinu.

Skíni Stjarnan.

11/08/2017

Þann 14.ágúst hefst seinna handboltanámskeið Stjörnunnar fyrir yngstu kynslóðina 6-12 ára (2004-2010). Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá þar sem farið verður yfir öll helstu grunnatriði handboltans.
Frábær leið fyrir áhugasama og metnaðarfulla handboltakrakka til að byrja tímabilið

Photos 15/05/2017

Stjörnukonur kunna svo sannarlega að búa til spennandi og skemmtileg einvígi. Eftir fimm leikja rimmu við Gróttu er nú komið að fjórða leik við Fram um Íslandsmeistaratitilinn. Fram hafði betur í fyrstu tveimur leikjunum sem voru jafnir og spennandi en svo sýndi Stjarnan mátt sinn í þriðja leiknum og gjörsamlega valtaði yfir Fram liðið. Vörnin var svo þétt og markvarslan svo góð að annað eins hefur varla sést í íslenskum handbolta enda höfðu Fram stúlkur ekki skorað meira en tvö mörk þegar 18 mínútur voru liðnar af þriðja leiknum. Ef stelpurnar leika eins og þær léku seinasta leik er augljóst hvaða lið lyftir bikarnum í lokinn. Við skulum mæta á pallanna og hvetja þær til dáða! Leikurinn er í Safamýrinni kl 20:00 miðvikudaginn 17. maí. Nú mæta allir Stjörnumenn og allar Stjörnukonur og draga alla með! Áfram Stjarnan!

23/12/2016

Okkur langar að þakka öllum þeim sem komu í skötuveislu Stjörnunnar kærlega fyrir samveruna og það er óhætt að segja að veislan hafi gengið vonum framar í ár. Skatan í ár var alveg geggjuð og sérstakar þakkir fær Kristján Berg aka Fiskikóngurinn fyrir að styrkja okkur um skötuna og ekki bara það heldur handvaldi hann bestu bitana fyrir okkur :) Gísli Einarsson stóð sig eins og hetja og verður skemmtilegri með hverju árinu.
Nú mega jólin koma. Gleðilega hátið

22/12/2016

Þá er búið að draga úr happahylnum fyrir skötuveisluna og í þetta skiptið er það enginn annar en Unnar Atli Guðmundsson sem var dreginn út. Til hamingju og njóttu vel

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Garðabær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Stjörnuheimilið
Garðabær
210