Happy Hips

Happy Hips

Share

Happy Hips er einstakt kerfi þar sem unnið er markvisst að liðkun og opnun liðamóta með bandvefsvinnu

Kennari:
Sigrún Haraldsdóttir
Höfundur Happy Hips

Yoga Tune Up Kennari
Roll Model Method Practitioner
ÍAK einkaþjálfari
Jóga kennari
Yin Yoga kennari

06/06/2026

SOGÆÐALEIÐANGUR VINNUSTOFA 💦🔋🩸

Viltu læra skilvirkar æfingar og bandvefsnudd til þess að virkja sogæðakerfið og fræðast um eitt vanmetnasta kerfi líkamans?!

Hvað er sogæðakerfi líkamans !?
Hvert er hlutverk þess !?
Hvernig getur sogæðakerfið orðið vanvirkt !?
Hvernig er hægt að virkja sogæðakerfið !?
Hvernig tengist sogæðakerfið krónískum bólgum!?
Hvernig tengist sogæðakerfið ónæmiskerfinu!?
Fascia/bandvefurinn og sogæðakerfið !!

Sogæðakerfið er sérstakt því það er ekki hringrás eins og blóðæðakerfið, heldur er það einstefna (lokað í annan endann). Engin sérstök dæla líkt og hjarta sér um að pumpa vessann um líkamann, heldur flæðir hann áfram fyrir tilstuðlan hreyfinga líkamans, djúpöndun og nuddi.

Sogæðakerfið gegnir mikilvægu hlutverki í vökvajafnvægi líkamans.
Sogæðakerfið tekur þátt í varnar- og ónæmiskerfi líkamans gegn framandi frumum og örverum.

Þessi vinnustofa er blanda af fyrirlestri, öndunaræfingum og bandvefsnuddi.
Innifalið aðgangur að myndböndum og fræðslu eftir vinnustofu.

Hvar: Kirkjulundi 19, Garðabæ
Hvenær: 14. JÚNÍ 2026
Tími: 11:00 - 14:00
Verð: kr. 12.900,-
Kennari: Sigrún Haraldsdóttir
Skráning: https://happyhips.is/sogaeda-leidangur/

Photos from Happy Hips's post 13/05/2026

VAGUS LEIÐANGUR - SUNNUDAG 17. MAÍ KL. 12:00

Hvað er Vagustaugin og ósjálfráðan taugakerfið.
Af hverju er mikilvægt að finna jafnvægi á milli drifkerfis (sympatiska) og sefjakerfis (parasymptatíska).

Hvað er innri vitund og líkamsvitund, af hverju er mikilvægt að skynja sjálfið og umhverfið til þess að ná jafnvægi og auka seiglu.

Námskeiðið hentar einkar vel fólki sem:
🧠Hefur að einhverju leyti aftengst sjálfu sér, gengið á eigin mörk og þar með taugakerfi, þjást hugsanlega af POTS, long covid, orkuleysi, kulnun eða langvarandi streitu.
🧠Hefur þörf fyrir að læra að þekkja betur eigin mörk og standa með þeim.
🧠Vill auka vitund á áhrifaþáttum streitu, jafnt innri sem ytri.
🧠Vill eignast nýjar leiðir til að stýra líkama og huga úr valdi of mikillar streitu.
🧠Vill auka seiglu og styrkja innri vellíðan
🧠Langar til að prófa nýjar leiðir til að vinna með (róa og styrkja) taugakerfið.
🧠Vill auka vitund á eigin taugakerfi og skilja skilaboð líkamans.

ERTU FORVITIN SKRÁNING HÉR 👇
https://happyhips.is/vagus-leidangur/

05/05/2026

BANDVEFSNUDD OG HREYFIFÆRNI
5 VIKUR 11. MAÍ - 15. JÚNÍ 🔋💥
SKRÁNING 👉 https://happyhips.is/hreyfifaerni-og-bandvefsnudd/

Vertu besta útgáfan af sjálfri/um þér !
Ekki gleyma að líkaminn þarf hvíld, tíma til að endurnærast og byggja sig upp svo ÞÚ getir náð topp árangri.

Fascia/bandvefurinn er vefur sem hjúpar ekki aðeins vöðva og líffæri heldur einnig taugar, æðar, bein, sinar, liðpoka og liðbönd. Hann bæði tengir saman allan líkamann og aðskilur með hlaupkenndu grunnefni sem virkar eins og smurning á milli vefjalaga sem nuddast saman t.d. undir húð, kringum sinar og taugar og milli hinna ýmsu himna.

Bandvefurinn er með mjög þétt taugakerfi sem er eitt stærsta skynfæri líkamans.
Spenna eða þurrkur í bandvef getur því skapað þrengra rými fyrir vöðva, líffæri og taugar til að starfa sem best- minni hreyfigeta (sliding) og/eða skerðir skilaboð.

Bandvefsnudd - með því að rúlla líkamann eykst blóðflæðið til vöðvanna sem leiðir af sér betri hreyfanleika, minnkar harðsperrur, flýtir fyrir bata í vöðvum eftir æfingar og bætir þannig árangur og líkamsástand. Við örvum vökvaflæði um vefjakerfin, örvum sogæðakerfið og taugakerfið. Komum jafnvægi á starfsemi helstu líkamskerfa. Eykur líkamsvitund til muna!
Við eflum orkuflæði líkamans og nærum taugakerfið, sogæðakerfið, djúpvefi, líffæri, bein og liðamót.

Hreyfiflæði - blanda af jóga og mobility æfingum til að hita upp líkamann, opna á helstu liði og mýkja líkamann.

Djúpteygjur - með því að leggja meðvitað álag á liðina með djúpri öndun gefum við vöðvum, festum og bandvef tækifæri á að mýkjast upp og losa um spennu. Djúpteygjur róar hugann og eikur líkamvitund.

Dásamleg endurheimt fyrir líkamann - taugakerfið, sogæðakerfið og stoðkerfið!
- Bætt líkamsvitund
- Linar sársauka
- Minni vöðvaspenna
- Betri líkamsstaða
- Bætt frammistaða
- Minnkar stress og streitu
Tímar eru:
Mánudaga og miðvikudaga 19:30
2x í viku, 5 vikur 22.900kr
INNIFALIÐ AÐGANGUR AÐ MYNDBÖNDUÐ ÚT JÚLÍ

SKRÁNING 👉 https://happyhips.is/hreyfifaerni-og-bandvefsnudd/ See less

Photos from Happy Hips's post 12/04/2026

FULLT ER Á BÆÐI STAÐARNÁMSKEIÐ

ENN ER HÆGT AÐ SKRÁ SIG Á NETNÁMSKEIÐ

💥Opnast á upptöku á tíma hvern þriðjudag í 8 vikur
💥Hefst 14. apríl 2026. Þú færð póst með link inn á nýtt efni í hverri viku.
💥Facebook grúbba þar sem ég deili auka fræðslu, ég veiti stuðning og hvatningu!
💥1x í viku í 8 vikur – opnast á fræðslu og styttri tíma vikulega á netinu!
💥Eftir 8 vikur er aðgangur að öllu efni í 3 mánuði í viðbót.

Verð: 24.900kr
SKRÁNING 👉 https://happyhips.is/nullstilla/

Photos from Happy Hips's post 01/04/2026

Takk fyrir frábærar viðtökur - aðeins örfá pláss laus á NÚLLSTILLA LÍKAMANN staðarnámskeið kl. 20:00 á þriðjudögum 👏🫶

SKRÁNING HÉR: https://happyhips.is/nullstilla/

Photos from Happy Hips's post 17/03/2026

VAGUS LEIÐANGUR - SUNNUDAG 22. MARS 12:00

Hvað er Vagustaugin og ósjálfráðan taugakerfið.
Af hverju er mikilvægt að finna jafnvægi á milli drifkerfis (sympatiska) og sefjakerfis (parasymptatíska).
Hvað er innri vitund og líkamsvitund, af hverju er mikilvægt að skynja sjálfið og umhverfið til þess að ná jafnvægi og auka seiglu.

Námskeiðið hentar einkar vel fólki sem:
🧠Hefur að einhverju leyti aftengst sjálfu sér, gengið á eigin mörk og þar með taugakerfi, þjást hugsanlega af POTS, long covid, orkuleysi, kulnun eða langvarandi streitu.
🧠Hefur þörf fyrir að læra að þekkja betur eigin mörk og standa með þeim.
🧠Vill auka vitund á áhrifaþáttum streitu, jafnt innri sem ytri.
🧠Vill eignast nýjar leiðir til að stýra líkama og hug úr valdi of mikillar streitu.
🧠Vill auka seiglu og styrkja innri vellíðan
🧠Langar til að prófa nýjar leiðir til að vinna með (róa og styrkja) taugakerfið.
🧠Vill auka vitund á eigin taugakerfi og skilja skilaboð líkamans.

ERTU FORVITIN SKRÁNING HÉR 👇
https://happyhips.is/vagus-leidangur/

26/02/2026

BANDVEFSNUDD - DJÚPÖNDUN - MJÚKT HREYFIFLÆÐI - TEYGJUR - SLÖKUN !

💥 AÐEINS 2 LAUS PLÁSS 💥
Þegar við núllstillum styrkjum við öll grunn kerfi líkamans og sköpum JAFNVÆGI. Heildræn nálgun - blóðrás, sogæðakerfið, stoðkerfi, melting og innkyrtlakerfi nær jafnvægi og vinnur saman í að styrkja og viðhalda innra jafnvægi/HOMEOSTASIS!

💥 Viltu læra hvernig ÞÚ getur bætt umhverfið innra með þér svo að líkaminn geti gert við sig sjálfur 🔋🧠🧬

💥Viltu læra skilvirka tækni til þess að;
-🔋draga úr stress og streitu.
-🔋minnka liðverki og bjúg.
-🔋vinna á stoðkerfisverkjum.
-🔋bæta meltinguna.
-🔋auka svefngæði.
-🧠 minnka höfuðverk, pirringi og þokukenndar hugsanir.
-🔋minnka þreytu og slen.
-🔋efla til muna ónæmiskerfið.
-🔋auka blóðflæði og vökva vefjakerfið.

Með því að styrkja taugakerfið skapast jafnvægi í orkubúskap líkamans og meðvitund okkar um líkamann eykst, sjálfsvitund eflist og styrkist.

Á námskeiðinu förum við yfir
-Hvernig sogæðakerfið virkar og hvernig við getum opnað á helstu rásir þess.
-Hvað er flökkutaugin og hvernig virkar hún. Hvað getum við gert til að virkja og styrkja þessa mikilvægu taug.
-Notum hreyfiflæði og boltanudd til að vinna í stoðkerfi líkamans. Finna hvar okkar ójafnvægi liggur og hvar við þurfum að opna á eða styrkja svæði.
-Hreint mataræði og venjur til að auka betri meltingu. Frá Ásdísi Grasalækni.

Áhersla er að losa um spennu sem oft stelur frá okkur orku. Með því að rúlla og þrýsta á þessi spennusvæði koma fram jákvæð áhrif á orkukerfið, blóðrásarkerfið, sogæða- og ónæmiskerfið og uppskeran er slökun og jafnvægi.

Fyrsti tíminn þriðjudag 14. APRÍL 18:30.
1x i viku í 8 vikur - ÞRI 18:30

AÐGANGUR AÐ ÖLLU EFNI 3 MÁNUÐI EFTIR NÁMSKEIÐI
LÝKUR.Kennari: Sigrún Haraldsdóttir, Eigandi og höfundur.
Hvar: Garðabæ, Kirkjulundi 19
Staðarnámskeið verð: 28.500kr
Netnámskeið verð: 23.500kr

SKRÁNING: https://happyhips.is/nullstilla/

Photos from Happy Hips's post 18/02/2026

NÆSTA KENNARANÁMSKEIÐ 13.-15. MARS ‼️
NÚ ER AÐEINS 1 LAUST PLÁSS Á ÞESSA FRÆÐANDI OG ENDURNÆRANDI HELGI 🕸️🧠🫀🫁

Photos from Happy Hips's post 31/01/2026

BANDVEFSNUDD OG HREYFIFÆRNI KENNARANÁMSKEIÐ, helgi sem inniheldur einstaka fræðslu um vefjakerfi líkamans/bandvefinn, Vagus-taugina, sogæðakerfið, anatómíu og boltanudd. Námskeiðið mun dýpka til muna þína kunnáttu um bandvefinn og hans mikilvæga hlutverk og tengingu við öll kerfi líkamans. Hvernig við notum nuddbolta, öndun, teygjur og hreyfiflæði til þess að losa um spennu í bandvef, auka vökvaflæði, teygjanleika og taugavirkni!

Föstudag 13. MARS ZOOM 17:00-20:00
Laugardag 14. MARS 9:30 – 16:30
Sunnudag 15. MARS 9:30 – 16:30

Kirkjulundi 19, Garðabær.

Þessi helgi verður bæði fræðandi og skemmtileg . Förum bæði í bóklega og verklegar lotur, vinnum saman í hóp og skemmtum okkur að fræðast um ótrúlega fyrirbærið bandvefinn eða vefjakerfi líkamans. Förum einnig í tenginguna við sogæðakerfið, taugakerfið og djúpöndun.

Þessi einstaka aðferðin linar verki, róar taugakerfið, örvar sogæðakerfið, bætir líkamsvitund, eykur frammistöðu og hjálpar okkur að lifa betur í eigin líkama!

SKRÁNING OG FREKARI UPPLÝSINGAR:
https://happyhips.is/rmm-kennararettindi/

31/12/2025

Takk fyrir að mæta í tíma, takk fyrir dásamlegar vinnustofur, takk fyrirtæki sem boðuðu mig í heimsókn, takk yndislegu sálir sem sóttu kennaranámskeið, takk fyrir allar skráningar á netnámskeið, takk allir sem heimsóttu mig í Heilsuskúrinn og takk fyrir allar dásamlegu heilsustundirnar, fallegu samtölin og tengingar á árinu sem er að líða 🫶
Kveð árið 2025 full af þakklæti 🎆

Óska öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir allar fallegu stundirnar á árinu sem er að líða 🫶

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Garðabær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Hóptímar Kirkjulundur 19/Einkatíma Klausturhvammi 1
Garðabær

Opening Hours

Monday 19:45 - 21:00
Tuesday 18:15 - 21:00
Wednesday 19:45 - 21:00
Sunday 14:00 - 14:00