06/06/2026
Úrslit úr fyrstu umferð í Thule liðakeppni GO í ár hafa verið birt. Liðið Sveiflugengið átti frábæran dag og sigraði með nokkrum yfirburðum 80 punktum, þökk sé aðallega ótrúlega góðu skori hjá Líney sem skellti í 48 punkta til að hífa sitt lið í toppsætið. Skammt var í næstu lið með 77 punkta samanlagt og hægt að fara yfir helstu úrslit og skor leikmanna í hlekk á frétt í ummælum.
05/06/2026
Við viljum minna á að lokafrestur til að skrá sig í holukeppni GO í karla og kvennaflokkum er í dag klukkan 20:00
04/06/2026
Það er laust á þessi námskeið hjá Auði ef áhugi er að koma sér vel af stað inn í sumarið.
01/06/2026
Um helgina fór fram fyrsta mót sumarsins á GOLF14 mótaröð GSÍ á Nesvellinum. Frábær umgjörð og metþátttaka var í mótinu og GO krakkarnir áttu frábæran dag og nældu sér í fimm verðlaun, þar af voru sigrar í tveimur flokkum. Þökkum Nesklúbbnum og GSÍ fyrir flotta umgjörð og óskum öllum okkar þátttakendum til hamingju með frábært mót og verðlaunahöfum til hamingju.
https://www.oddur.is/magnadir-odds-krakkar-a-fyrsta-golf14-moti-sumarsins/
01/06/2026
HOla mathús hefur aldeilis farið vel af stað í upphafi golftímabilsins hér á Urriðavelli og golfskálinn hér og veitingastaðurinn opinn öllum gestum, golfandi og gangandi. Hér er matseðilinn, margt spennandi þar á ferð, sjáumst í sumar.
29/05/2026
Við vorum að opna fyrir skráningu í Holukeppni karla og kvenna, innanfélagsmót og hægt að smella á þessa frétt á heimasíðu GO og klára skráningu. https://www.oddur.is/holukeppni-go-skraning-hafin-2/
25/05/2026
Hér er smá tilkynning frá kvennanefnd GO vegna kvennamótsins í Sandgerði
🚨 ATH – skráningu seinkar um einn dag, hefst þriðjudaginn 26. maí kl. 13:00
(vegna tæknilegra örðugleika)
Kæru Oddskonur 💚
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomnar á skemmtilegt og spennandi 4-manna Texas Scramble mót sem fram fer á Kirkjubólsvelli í Sandgerði ✨
📅 Skráning
🚨 ATH – skráning hefst þriðjudaginn 26. maí kl. 13:00
(vegna tæknilegra örðugleika)
Skráning fer fram í
Golfbox → Mótaskrá → Opin mót → Vorferð Oddskvenna
• Opnar: 26. maí kl. 13:00
• Lýkur: 1. júní kl. 13:00
👉 Hægt er að skrá sig:
• Sem lið (holl)
• Eða sem einstaklingur og kynnast nýjum golfvinkonum 💫
⛳️ Fyrirkomulag
• Leikfyrirkomulag: 4-manna Texas Scramble
• Golfbox reiknar forgjöf liðsins
• Hámarksforgjöf einstaklings: 36
💳 Þátttökugjald
• 15.000 kr. greiðast í Golfbox við skráningu
🚌 Samgöngur & dagskrá
• Mæting við Fífuna (Breiðablik) eða Sporthúsið kl. 09:30
• Rúta fer frá Sporthúsinu kl. 10:00
• Ræst út kl. 12:00 á öllum teigum
• Áætluð heimför frá Sandgerði kl. 20:00
✉️ Ferðast þú ekki með rútunni?
Vinsamlegast láttu vita á [email protected] svo ekki verði beðið að óþörfu.
Athugið að sama verð gildir fyrir alla.
🎩 Þema dagsins
Hattaþema!
Mætum með skemmtilegan hatt eða derhúfu – leyfum hugmyndafluginu að njóta sín 🎉
🏆 Verðlaun
• 1., 2. og 3. sæti í liðakeppni
• Nándarverðlaun á holu 2 og holu 15
📧 Fyrirspurnir
[email protected]
✨ Við hlökkum mikið til að sjá ykkur – þetta verður frábær dagur fullur af gleði, samveru og góðu golfi! ⛳️💚 með hlýrri kveðju, kvennanefndin.
23/05/2026
Úrslit liggja fyrir í opnunarmóti GO sem leikið var við mun betri aðstæður en veðurspár vikunnar reyndu að hræða kylfinga með og 120 keppendur nutu dagins og máltíðar á HOla mathús sem var í boði fyrir keppendur að loknu móti. Við óskum verðlaunahöfum og öllum keppendum til hamingju með sinn árangur. Sjáumst hress í næsta móti, Liðakeppni GO, skráning liða hefst á mánudag og fyrsta mót ráðgert 2. júní.
Úrslit eru að finna á heimasíðu GO - https://www.oddur.is/urslit-i-opnunarmoti-go-2026/
Myndir frá deginum eru inn á myndasíðu GO https://gogolf.smugmug.com/Myndir-2026/Opnunarm%C3%B3t-GO-2026/Opnunarm%C3%B3t-GO-2026
22/05/2026
Hér dropar aðeins á Urriðavelli en okkur líður eins og það rigni inn tilkynningum um holu í höggi þessa fyrstu daga golfsumarsins😀 Ægir Vopni var rétt í þessu að afreka þetta svo við vitum best í þriðja sinn þegar hann kláraði 15 holu með glæsilegu höggi sem rétt snerti flöt áður en kúlan hvarf ofaní holuna. Til hamingju Ægir 🏌♀️🔥
21/05/2026
Það eru komnar nýjar gervigrasmottur í alla bása á Lærlingi. 🏌♀️☀️🔥 P.s. endilega verið dugleg að ganga frá boltakörfum að loknum slætti, hjálpumst að við að halda svæðinu góðu.