19/07/2026
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Sauðárkróki dagana 30. júlí- 2. ágúst.nk. 🎉🎉
HSH greiðir fullt þátttökugjald fyrir sína keppendur og hvetjum við öll til að skrá sig og taka þátt í skemmtilegasta móti sumarsins 🤩
Yfir tuttugu fjölbreyttar keppnisgreinar eru í boði og hellingur af annarri skemmtun fyrir fólk á öllum aldri 👏🏼👏🏼
Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu UMFÍ og þar fer einnig skráning fram á hlekk sem leiðir inná skráningarforritið Abler.
Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir UMF Grundarfirði verður keppnisstjóri HSH og er hægt að leita til hennar ef eitthvað er 😃
Sjáumst hress og kát á Unglingalandsmóti 🥰
ÁFRAM HSH 👏🏼👏🏼👏🏼✨
Ungmennafélag Íslands er landssamband ungmennafélaga. UMFÍ var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907. Innan UMFÍ eru 27 sambandsaðilar. Félögin eru 480 og félagsmenn rúmlega 290 þúsund.