Golfklúbburinn Vestarr

Golfklúbburinn Vestarr GOLF

Bændaglíma Vestarr var spiluð i flottu veðri í dag. Bændur voru þau Anna María Reynisdóttir  og Ásgeir Ragnarsson   13 l...
20/09/2026

Bændaglíma Vestarr var spiluð i flottu veðri í dag.

Bændur voru þau Anna María Reynisdóttir og Ásgeir Ragnarsson

13 leikmenn tóku þátt í skemmtilegu móti.

Lið Önnu Maríu vann keppnina og var vel fagnað að keppni lokinni.

Öllum var svo boðið upp á hamborgara og pulsur í skála.

Þær Steinunn og Nikkí stóðu vaktina í skála á meðan mótinu stóð og Heimir Jóns kom og grillaði fyrir keppendur og gesti.

Garðar, formaður fór yfir líðandi starfsár, framkvæmdir , mót og árangur í Sveitakeppni GSÍ en Vestarr sendi 3 lið til keppni. Hann þakkaði starfsfólki, sjálfboðaliðum og velunnurum fyrir allt það frábæra starf og framlag á árinu.

Anna María, gjaldkeri sagði frá því að síðasta greiðsla á láni vegna kaupa á Grundarfjarðarvelli hafi verið greidd 18 september og væri því Vestarr skuldlaus.

Var því vel fagnað af viðstöddum.

Stjórn Vestarr þakkar öllum fyrir gott starfsár.

19/09/2026

Opið verður fyrir skráningu í bændaglímu til kl. 09.00 í fyrramálið .
20 september.

Opið verður fyrir skráningu til kl. 09 í fyrramálið. Hvetjum kylfinga til að skrá sig.Bændur draga í lið að lokinni skrá...
19/09/2026

Opið verður fyrir skráningu til kl. 09 í fyrramálið.
Hvetjum kylfinga til að skrá sig.

Bændur draga í lið að lokinni skráningu.

Flott veður fyrir golf á morgun.
Að móti loknu eru grillaðir Hamborgarar og pulsur, nóg til fyrir gesti og alla þá sem langar í góða hamborgara. Bara að mæta á Grundarfjarðarvöll.
Golf.is

16/09/2026
15/09/2026

Bændaglíma á sunnudaginn. Klukkan 13.00
Mæting 12.30 í skála
Skráning á Golf.is

Eftir mót er boðið upp á hamborgara og sumarið gert upp.

Félagar skrá sig í mótið.
Bændur, Anna María Reynisdóttir og Ásgeir Ragnarsson, draga í lið.

Ræst út á öllum teigum, holukeppni með texas fyrirkomulagi. Tveir saman, með forgjöf.

Félagar hvattir til að skrá sig sem fyrst,

Stjórn Vestarr

13/09/2026

Bændaglíma Vestarr 2026

Verður haldið Sunnudaginn 20 september og mótið byrja klukkan 13:00.

Skráning í mótið í golfboxinu. Félagar skrá sig, bændur draga í lið

Bændur eru Anna María Reynisdóttir og Ásgeir Ragnarsson.

Leikinn verður 18 holu holukeppni, spilað eftir texas fyrirkomulagi, tveir saman, ræst út á öllum teigum kl. 13.00. Mæting í skála kl. 12.30

Eftir mót verður boðið upp á grillaða hamborgara og sumarið gert upp

Þátttökugjald 3000

Stjórn GVG

04/09/2026

⛳️ Pálínuboð í golfmóti hjá Golfklúbbnum Vestarr! 🏌️‍♀️🏌️‍♂️

Við ætlum að hafa smá pálínuboð að loknu minningarmótinu á morgun og langar okkur að fá félagsmenn til að leggja hönd á plóg og koma með eitthvað gott á sameiginlegt veisluborð. 🥳

Þið megið koma með hvað sem ykkur dettur í hug – heimabakað, salat, snittur, köku, brauð, eitthvað sætt eða bara uppáhaldið ykkar. 😋
Hugmyndin er að allir komi með eitthvað smá, þannig að saman myndum við eitt glæsilegt veisluborð fyrir félagsmenn.

Engin krafa um að vera kokkur ársins – bara mæta með eitthvað gott! 😉

Hlökkum til að sjá ykkur á vellinum og við veisluborðið! 💚⛳️

Afsaka stuttan frest en ég hef fulla trú á því að við getum græjað þetta 🥰

Skráningin er ennþá opin 🤩

Mótanefnd Vestarr

Íslandsmót golfklúbba 50+ 2 deild kvenna var spilað á Grundarfjarðarvelli 20 og 21 ágúst. 9 sveitir kepptu, keppni skemm...
22/08/2026

Íslandsmót golfklúbba 50+ 2 deild kvenna var spilað á Grundarfjarðarvelli 20 og 21 ágúst.

9 sveitir kepptu, keppni skemmtileg og góð
Golfklúbbur Akureyrar stóð uppi sem sigurvegarar, þær unnu rétt til að spila í 1 deild að ári.
Sameiginlegt lið GHD og GFB voru í öðru sæti
Heimakonur í Vestarr voru í þriðja sætinu og
Golfklúbbur Borgarness í fjórða sæti.

Liðin sem tóku þátt voru.
Golfklúbbur Kiðjabergs
Golfklúbur Akureyrar
Golfklúbbur Setberg
Golfklúbburinn Vestarr
Golfklúbbur Öndverðarness
Golfklúbbur Húsavíkur
GHD - GFB sameiginlegt lið
Golfklúbbur Selfoss
Golfklúbbur Borgarness

Spilaðar voru þrjár 18 holu umferðir í holukeppni og fjögur efstu liðin fóru í umspil um 1 til 4 sæti.
Vegna veðurútlits á laugardaginn, þegar fimmta og síðasta umferð átti að spilast, ákvað mótsstjórn að 4 og 5 umferð væru spilaðar 9 holur. Og voru þær báðar spilaðar eftir hádegi á föstudag.

Mikil ánægja var hjá keppendum með framkvæmd mótsins, umgjörð vallar og veitingar í skála.
Mótsstjórn þakkar keppendum, starfsmönnum og sjálfboðaliðum fyrir þeirra framlag í mótinu.

Address

Grundarfjörþur
350.PÓSTHÓLF95

Telephone

+3548340497

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Golfklúbburinn Vestarr posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Golfklúbburinn Vestarr:

Shortcuts

Share

Category