27/08/2021
Jæja þá er undirbúningur hafinn fyrir komandi önn og allt að verða klárt í Mánagarði. Æfingar hefjast 6. september nk. og við hlökkum mikið til að sjá ykkur😁
Kveðja, stjórn og þjálfarar.
Fimleikadeild Sindra er staðsett á Höfn í Hornafirði þar æfa rúmlega 100 iðkendur á aldrinum 2-16 ára
27/08/2021
Jæja þá er undirbúningur hafinn fyrir komandi önn og allt að verða klárt í Mánagarði. Æfingar hefjast 6. september nk. og við hlökkum mikið til að sjá ykkur😁
Kveðja, stjórn og þjálfarar.
24/05/2019
Fimleikadeild Sindra lauk sínu þriðja og síðasti móti nú í kringum síðustu mánaðarmót. Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum var skipt í tvö mót. Þrjú lið fóru frá Sindra á fyrra mótið sem haldið var í Digranesi, Kópavogi. 5. flokkur lenti í 7. sæti í b.deild, stóðu sig með stakri prýði á sínu öðru móti í fimleikum. Kke eða eldri strákarnir okkar lentu í 4. sæti og voru að venju flottir. 4. flokkur mix lenti í 1. sæti og bættu sig á öllum áhöldum milli móta. Seinna mótið var haldið í Mosfellsbæ en þar voru tvö lið að keppa frá Sindra. 3. flokkur lenti í 9. sæti og stóðu sig vel. 1. flokkur keppti síðan í b deild og enduðu í 2. sæti en voru í 1. sæti á dýnu og trampi. Það er vert að nefna það, að ekkert lið frá Sindra hefur fengið eins mörg stig og 1. flokkurinn eða 39,395 stig.
Við enduðum fimleikaveturinn á lokahófi þar sem haldin var sýning og veittar voru viðurkenningar sem styrktar hafa verið síðustu ár af Króm Og Hvítt. Við þökkum þeim kærlega fyrir veittan stuðning. Einnig þökkum við Iceguide.is fyrir styrk á þjálfarafatnaði deildarinnar.
Að sýningu lokinni fengu 75 iðkendur viðurkenningarpening með þökk fyrir veturinn. Við veittum svo verðlaun fyrir mestu framfarir hjá öllum keppnishópum. Í 5. flokki fékk Björg Sveinsdóttir, 4. flokkur mix fékk Guðlaug Gísladóttir, í 3. flokki fékk Magndís Lóa Aðalsteinsdóttir, í strákahóp fékk Kári Hjaltason og í 1. flokki var það Hildur Margrét Björnsdóttir. Einnig var veitt verðlaun fyrir besta félagann hjá deildinni og var það Aðalheiður Sól Gautadóttir. Að lokum var Fimleikamaður Sindra 2019 krýndur og hlaut Friðrik Björn Friðriksson þann titil.
Þjálfarar og stjórn Fimleikadeildar Sindra þakka kærlega fyrir veturinn og við viljum einnig þakka þeim sem lögðu hönd á plóg í að ganga frá og stilla upp fimleikasal okkar í Mánagarði í vetur og þeim sem komið hafa að starfinu með einum eða öðrum hætti.
Fyrir hönd Fimleikadeildar Sindra,
Einar Smári Þorsteinsson - Yfirþjálfari
28/04/2019
4. flokkur mix stóð sig frábærlega á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum og bættu sig á öllum þremur áhöldum frá síðasta móti.
27/04/2019
3 lið frá Sindra eru að keppa um helgina á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum. Keppt er í íþróttahúsinu Digranesi. 5.flokkur hefur keppni og hér eru þær ásamt þjálfurum
03/03/2019
Þessar flottu stelpur í 3. flokk eru að keppa í dag á bikarmóti unglinga í hópfimleikum á Selfossi. Þær eru síðustu fulltrúar Sindra sem keppa á bikarmótinu þetta árið, 5 lið talsins.
02/03/2019
4.fl mix nældu sér í bikar í dag á bikarmóti unglinga í hópfimleikum á Selfossi
02/03/2019
Þessar stelpur eru að keppa á sínu fyrsta móti á bikarmóti unglinga í hópfimleikum á Selfossi
21/11/2018
Síðastliðinn laugardag fór fram síðari hluti haustmóts í hópfimleikum á Akranesi. Sindri sendi frá sér tvö lið til keppni. Kke enduðu í 3 sæti samanlagt en gerðu sér litið fyrir og enduðu í 1 sæti á dýnustökki. 1.fl b enduðu í 3 sæti einnig og stóðu sig frábærlega.
17/11/2018
Í dag eru tvö lið frá Sindra að keppa á haustmóti í hópfimleikum á Akranesi. Fyrst byrja strákarnir hjá okkur og síðan endar 1.fl b mótið. Endilega ef þið eruð ekki á staðnum þá getið þið kíkt á því á streymi hér fyrir neðan :
ÍA TV Beinar útsendingar og upptökur frá viðburðum aðildarfélaga Íþróttabandalags Akraness.
12/11/2018
3.flokkur Sindra keppti í gær á haustmóti í hópfimleikum. 21 lið voru að keppa í flokknum. Stelpurnar stöðu sig mjög vel. Voru með glænýjar gólfæfingar sem þær voru einungis búnar að æfa í einn og hálfan mánuð. Stelpurnar lentu í 13. sæti. Það er gaman að segja frá því að stelpurnar enduðu í 7. sæti á dýnu
10/11/2018
4.fl mix keppti í dag á haustmóti í hópfimleikum. Mótið var haldið í Versölum, Kópavogi. Krakkarnir stóðu sig með stakri prýði og enduðu í 1.sæti