Ungmennasambandið Úlfljótur - USÚ

Ungmennasambandið Úlfljótur - USÚ

Share

Ungmennasambandið Úlfljótur var stofnað 28. maí 1932

Heiðranir á 93. ársþingi USÚ – Ungmennasambandið Úlfljótur 10/04/2026

Ný frétt á heimasíðu 👉 https://usu.is/heidranir-a-93-arsthingi-usu/
Íþróttamaður ársins og hvataverðlaun sem veitt voru á 93.þingi sambandsins ✨

Heiðranir á 93. ársþingi USÚ – Ungmennasambandið Úlfljótur Birt þann 09/04/2026 eftir USÚHeiðranir á 93. ársþingi USÚ Á 93. ársþingi USÚ, sem fram fór í Stekkhól, félagsheimili Hestamannafélagsins Hornfirðings, 7. apríl sl., var íþróttamaður USÚ fyrir árið 2025 heiðraður. Einnig fengu fimm ungir iðkendur hvatningarverðlaun. Íþ...

Sigurður Óskar sæmdur Gullmerki UMFÍ - Ungmennafélag Íslands 09/04/2026

Okkar maður Sigurður Óskar Jónsson var sæmdur gullmerki UMFÍ á ársþingi USÚ um helgina. Hann er vel að því kominn og verður eftirsjá af honum. Til hamingju Siggi og takk fyrir þitt framlag fyrir USÚ!

Sigurður Óskar sæmdur Gullmerki UMFÍ - Ungmennafélag Íslands „Þetta var ágætis mæting og tókst vel til fyrir fyrsta þing hjá mér,“ segir Bjarni Malmquist Jónsson, formaður Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ), en 93. þing sambandsins fór fram í félagsheimili Hestamannafélagsins Hornfirðings á þriðjudag. 

09/04/2026

Ungmennafélagið Máni leitar eftir frjálsíþróttaþjálfara í sumar!

Við leitum að þjálfara fyrir sumarið! Ert þú til?

93. ársþing USÚ – Ungmennasambandið Úlfljótur 23/03/2026

93.ársþing héraðssambandsins verður þriðjudaginn 7.apríl.
Vakin er sérstök athygli á því að óska er eftir að minnsta kosti einu framboði til stjórnar. Langar þig til að láta gott af þér leiða fyrir íþróttir í héraðinu? Göfugt starf sem skilar til samfélagsins! Hafið samband við núverandi stjórn ef áhugi er fyrir hendi á email eða í skilaboðum✨

93. ársþing USÚ – Ungmennasambandið Úlfljótur Birt þann 23/03/2026 eftir USÚ93. ársþing USÚ 93. ársþing USÚ verður haldið þriðjudaginn 7. apríl næstkomandi, klukkan 17:30. (Við uppfærum þessa færslu þegar staðsetning liggur fyrir.) Um fulltrúa á ársþingi segir m.a. í lögum USÚ: Á ársþingi hafa allir sambandsaðila....

Stefnumótun: Árangur næst með gleðina að vopni - Ungmennafélag Íslands 06/03/2026

Aldrei tapa gleðinni!

Stefnumótun: Árangur næst með gleðina að vopni - Ungmennafélag Íslands „Það er gott að geta átt samtal við forvígisfólk í íþróttahreyfingunni og finna saman út úr því hvar bæta má starfið,“ segir Bjarni Malmquist Jónsson, formaður Ungmennafélagsins Visis í Suðursveit og formaður Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ). Hann var á meðal rúml...

Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki - Vísir 03/03/2026

Algerlega frábært 👏🏼

Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki - Vísir Mikill uppgangur hefur verið í borðtennis hérlendis undanfarin ár. Um helgina fór fram sögulega fjölmennt Íslandsmót unglinga á Selfossi. Athygli vakti að tvær ungar borðtenniskonur með fötlun unnu titil í flokki ófatlaðra.

27/02/2026

Mættu og hafðu áhrif 🫵🏼

Samtal um íþróttir - Ungmennafélag Íslands 27/02/2026

🌟Raddir ungs fólks🌟
Hvetjum alla á aldrinum 16-25 ára sem hafa áhuga á íþrótta- og æskulýðsstarfi að mæta á þennan flotta viðburð!
🌍 Austurland
📍 Menntaskólinn á Egilsstöðum
🗓️ 6. mars
⏰ 16:00 – 18:00
👉📝 Skráning í hlekk
Raddir ungs fólks er samtal um þátttöku í samfélaginu, upplifun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og leiðir til framtíðar við forystufólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. Fundirnir eru samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ og fara fram um allt land vorið 2026.
Markmið samtalsins er að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks á aldrinum 15 –25 ára og skapa vettvang til að koma sjónarmiðum á framfæri í samtali á jafningjagrundvelli við forsvarsfólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar.
Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði, stýrir fundunum í samstarfi við Ungmennaráð UMFÍ og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á hverjum stað.

Samtal um íþróttir - Ungmennafélag Íslands Raddir ungs fólks er samtal um þátttöku í samfélaginu, upplifun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og leiðir til framtíðar við forystufólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. Fundirnir eru samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMF....

Photos from hlaup.is's post 14/02/2026

Þorsteinn Roy Jóhannsson sem keppir fyrir Ungmennafélag Öræfa var á dögunum valinn, utanvegahlaupari ársins 2025! Til hamingju Þorsteinn!!

03/01/2026

Hér má sjá frábært viðtal við Bjarna Malmquist Jónsson, Íþróttaeldhuga ársins 2025.

Stjórn USÚ óskar honum innilega til hamingju með verðskuldaða útnefningu!

Það er rétt að taka fram að hann skrifaði þennan texta ekki sjálfur.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Höfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Höfn