Ár í lífi fuglaáhugamanns

Ár í lífi fuglaáhugamanns

Share

Fuglaskoðari, birder, fuglaáhugamaður, fuglaljósmyndun.

17/06/2026

Hæ, hó ..... 17. júní, kærkominn rigningardagur svo maður g*t slakað á og gert alls ekki neitt, engin fuglaskoðun í dag (smá sorglegt) en sá samt skógarþresti á lóðinni. Held bara áfram að sýna ykkur gamlar myndir, þessi er af kvöldfálka, kvenfugli tekin í Einarslundi 2013.

16/06/2026

Fór í morgun í síðasta mófuglasniðið fyrir Náttúrstofuna, það sem maður leggur á sig, þurfti örugglega að fara 20 sinnum yfir skurði og yfir nokkrar girðingar, þetta er ekki auðvelt verk fyrir mann á sjötugs aldri. Síðan tók bara við mýrlendi og þýft land, en þetta hafðist allt saman en ekki var maður brattur á eftir svo lítið annað var gert í dag. Myndin er úr safni og er af turnfálka, tekin á Höfn haustið 2010.

15/06/2026

Byrjaði morguninn á að setja upp nokkur net í Einarslundi, merkti skógarþröst og endurheimti 2. Heima á lóð komu 3 tyrkjadúfur, 2 bjargdúfur, skógarþrestir og auðnutittlingar. Tvö verkefni fyrir Náttúrstofuna í dag, pöddugildran við Þveit tæmt í fyrsta skipti í sumar og svo talið mófuglasnið á Heinabergsaurum, þar eru mest spóar, hrossagaukar og kjóar. Myndin er úr safni, fullorðinn fjallkjói.

14/06/2026

Taldi leirurnar í Skarðsfirði í dag fyrir Náttúrstofuna, mjög lítið af fuglum, vaðfuglarnir farnir hjá og ekki mikið af öðrum fuglum. Fór í Dilksnes, sá m.a. svartþröst við Hjarðarnes. Tvær tyrkjadúfur voru í H5rossabithaga og heima á lóð sást tykjadúfa, skógarþrestir og auðnutittlingar. Myndin er af tyrkjadúfunni sem kom á lóðina.

Photos from Ár í lífi fuglaáhugamanns's post 13/06/2026

Var rólegur í fuglaskoðuninni fram eftir degi, fór í Einarslund og gróðursetti nokkur reyniviðartré, ekkert nýtt þar að sjá. Heima á lóð sást ein tyrkjadúfa nokkrum sinnum, einnig skógarþrestir og auðnutittlingur. Bjössi skrapp aðeins í Kvísker og fann þar gjóð, seinnipartinn fór ég svo sá gjóðinn (ný tegund á árslistann) og það í mjög góður færi til að mynda hann, sjá meðfylgjandi myndir af fuglinum.

12/06/2026

Lítið sem ekkert skoðað í dag, setti nokkur net upp í Einarslundi, merkti 5 skógarþrestir og endurheimti 2 auðnutittlinga. Loksins er að verða nægjanlega þurt svo hægt verið að slá framan við lundinn, og byrjaði aðeins á því í dag. Myndin er af stélinu á skógarþrastar unga á viktinni, eitt af einkennu ungfuglanna eru þessir spíssar á stélfjörðunum.

Photos from Ár í lífi fuglaáhugamanns's post 11/06/2026

Verkefni dagsins var á Breiðamerkursandi, vorum að telja skúmshreiður beggja vegna Jökulsárlóns, fundum 8 hreiður sem er ósköp dapurt þó það hafi sést slakara því miður. Sá innan við 15 skúma og Hóffý með um 20 í viðbót. Rakst á rjúpnapar við Nýgræðukvíslar og reytingur af helsingjapörum með unga öll á rólegri austurleið. Eftir að heim var komið fór ég á Ægissíðu og í Ósland, ekkert nýtt að sjá og heima á lóð komu 2 fullorðnar tyrkjadúfur, skógarþrestir og auðnutittlingur. Myndirnar eru af skúm austan við Jökulsárlón, skúmshreiður og vinnudótið, jaðrakan og stelkur á Ægissíðu á Höfn og rjúpnakarri á Breiðamerkursandi.

Photos from Ár í lífi fuglaáhugamanns's post 10/06/2026

Fór í Ingólfshöfða í dag með Náttúrstofustelpunum og einni annari til, verkefni dagsins voru talning á skúmahreiðrum en ég var svo að mynda fjögur snið í bjarginu fyrir Náttúrstofu Norðurlands Eystra. Allt gekk þetta bara þokkalega þrátt fyrir óþarflega mikinn vind á bjargbrúninni. Nánast engir lundir sátu upp á bjargbrúninni í dag og því er engin lundamynd sem fylgir með. Ég fór svo aðeins að heilsa upp á skúmana og tóku þeir mér vel að vanda, þetta minnir of svolítið á ærslaganginn í hundum þegar þeir fagna manni. Var á leiðinni að hitta Erp og lundarallarana hans þegar ég fékk fréttir af merktum skúm og var þá fljótur að snúa við, Erpur og félagar verða bara að bíða betri tíma. Náði að mynda merkið á skúmnum og var þetta fugl Sem Fuglaathugunarstöð Suðausturlands merkti í höfðanum 2019. Eftir að heim var komið sá ég svo tyrkjadúfu og skógarþresti á lóðinni, góður dagur eins og alltaf þegar maður fer í höfðann. Myndirnar eru af skúmum og 3 myndir úr sniðmyndatökunni.

Photos from Ár í lífi fuglaáhugamanns's post 09/06/2026

Jæja, þá hafði ég mig loksins aðeins í fuglaskoðun, heima á lóð kom tyrkjadúfa, 2 bjargdúfur og skógarþrestir. Fór hring í Óslandinu og sá við Óslandstjörn 2 múrsvölunga, bæjasvölu og 2 landsvölur auk hefðbundinna fugla þar, 54 ritur voru í Óslandsskeri. Fór svo aðeins í Nesin, skoðaði við hesthúsin, Kríutjörn og Þveit en þar var byrjað að rigna ótæpilega, náði tveimur tjaldsungum við Stapa. Svo ég fór aftur heim og kom þá við í Óslandinu aftur og myndaði múrsvölungana, ekki það auðveldasta sem manni dettur í hug að gera. Myndirnar eru af múrsvölungum, nýmerktum tjaldsunga, kjóa við Kríutjörn og tyrkjadúfunni heima á lóð.

08/06/2026

Lítið sem ekkert skoða í gær og ekki mikið í dag heldur, heima á lóð voru skógarþrestir og auðnutittlingar. Fór smá hring í Óslandinu og náði einum stelksunga, þeim fyrsta í sumar, sjá mynd. Það var ánægjulegt að sjá hvað var komið af kríum í Óslandi, einhver hundruð fuglar og margar orpnar, í fyrra urpu bara um 10 pör.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Höfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hag*tún 8
Höfn
780