Ungmennafélagið Vísir

Ungmennafélagið Vísir

Share

Stofnað 8. apríl 1912.

04/04/2026

Keppt verður í tvíliðaleik, og einliða ef tími gefst.

31/03/2026

Krakkaglens og búninga mátun í Hrollaugsstöðum kl. 10:30-12:30 í dag þriðjudag 31. Mars.
Einnig verður hægt að máta búninga eftir Aðalfundur Umf. Vísis á Föstudaginn langa.
Ef þið viljið fá að máta á öðrum tíma hafið þá bara sambandi við Bjarni Malmquist Jónsson

Björgvin Ingi og Anna Karen sigruðu á Íslandsmóti fatlaðra | Borðtennissamband Íslands 09/03/2026

Vísir eignaðist Íslandsmeistara í einliðaleik um helgina!!! Stærsta bikar sem hægt er að vinna í borðtennis fatlaðra á Íslandi!! Húrra!!

Smá til útskýringa fyrir þá sem eru ekki alveg inni í stigagjöfinni...
Til að vinna lotu í borðtennis þarf að ná 11 stigum og vinna með amk. 2 stigum og til að vinna leik þarf að vinna 3 lotur.
Anna lenti 0-2 undir bæði í undanúrslitaleiknum og úrslitaleiknum en náði að snúa þeim við og vinna 3-2 í báðum leikjum, þar af endaði ein lotan í úrslitaleiknum 16-14 þar sem Anna var 1 stigi undir en náði að jafna til skiftis alveg úr stöðunni 9-10 uppí 14-14 þegar hún náði yfirhöndinni! Andrúmsloftið var vægast sagt spennuþrungið! 🥳

Nánar er hægt að lesa um úrslitin í fréttinni hér að neðan en Anna spilaði einnig til úrslita bæði í tvenndarleik og tvíliðaleik þar sem hún hlaut silfur ásamt því að hreppa brons í flokki 6-10 sem er flokkur standandi keppenda.
Til fróðleiks þá er það þannig að flokkar 1-5 eru fyrir þá sem keppa í hjólastól. Anna er í flokki 6, því hærri sem flokkurinn er þeim mun minni er hreyfihömlunin. Í flokki 6 eru t.d. þeir sem eiga erfitt með gang og þ.a.l. eiga erfitt með að hreyfa sig mikið við borðið, en Anna hefur sýnt framfarir í hreyfigetu eftir að hafa byrjað að stunda borðtennis sem er frábært og hjálpar henni í daglegu lífi. Við hvetjum félaga okkar til að mæta á borðtennis æfingar hjá Vísi í Hrollaugsstöðum, það er holl, góð og skemmtileg hreyfing.

Næstkomandi helgi mun Vísir svo eiga amk. 3 keppendur á Íslandsmótinu í 2. flokk sem fram fer í Hafnarfirði!!!

Áfram Vísir!!!

Björgvin Ingi og Anna Karen sigruðu á Íslandsmóti fatlaðra | Borðtennissamband Íslands 08.03.2026 Frettir Björgvin Ingi og Anna Karen sigruðu á Íslandsmóti fatlaðra Björgvin Ingi Ólafsson og Anna Karen Malmquist sigruðu í opnum flokki á Íslandsmóti fatlaðra, sem fram fór í Íþróttahúsi ÍFR laugardaginn 7. mars. Keppendur á mótinu voru 28 frá fjórum félögum, l...

Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki - Vísir 01/03/2026

Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir (9 ára) gerði sér lítið fyrir og lék til úrslita í einliðaleik 11 ára þar sem hún fékk silfur eftir mjög jafnan og spennandi úrslita leik🥈

sama gerði hún í tvenndarleik 13 ára þar sem hún lék með Brynjari Malmquist (10 ára) frá HK🥈

Svo keppti hún með Agnesi Lovísu æfinga félaga sínum úr ÍFR í tvíliðaleik 15 ára en þær stöllur eru báðar með mikið skerta hreyfigetu, hvor á sinn hátt og árangurinn því enn eftirtektarverðari, reyndar svo mikið að nafnar okkar á visir.is skrifuðu smá grein um afrekið sem má lesa hér að neðan.
Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Vísis í borðtennis! 🏆🥳
En þegar borðtennisdeild Vísis var stofnuð fyrir rétt rúmu ári þá var markmiðið að senda 1-2 keppendur á Íslandsmót að ári liðnu, því markmiði hefur heldur betur verið náð!
Áfram Vísir!!

https://www.visir.is/g/20262849833d/stelpur-med-fotlun-unnu-i-opnum-flokki

Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki - Vísir Mikill uppgangur hefur verið í borðtennis hérlendis undanfarin ár. Um helgina fór fram sögulega fjölmennt Íslandsmót unglinga á Selfossi. Athygli vakti að tvær ungar borðtenniskonur með fötlun unnu titil í flokki ófatlaðra.

20/02/2026

Æfingamót í kvöld, allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.

Fimmtán nýir landsdómarar | Borðtennissamband Íslands 16/02/2026

Þrjú úr borðtennisdeild Vísis stóðust landsdómarapróf í borðtennis í gær með glæsibrag. Þetta voru þau Sigrún Elfa Bjarnadóttir, Bjarni Malmquist Jónsson og formaður deildarinnar Atli Már Björnsson 🏓

Fimmtán nýir landsdómarar | Borðtennissamband Íslands 16.02.2026 Frettir Fimmtán nýir landsdómarar Sunnudaginn 15. febrúar fór fram dómaranámskeið og landsdómarapróf í húsnæði ÍSÍ. Jóhannes Bjarki Urbancic, alþjóðadómari, hafði umsjón með námskeiðinu og prófinu. 15 af 17 þátttakendum náðu prófinu og öðlast þar með la...

14/02/2026

*** Styrktaraðilar á búninga Vísis óskast!! ***
Góðan daginn, nú ætlum við að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið með búningapöntun í haust. Það kom í ljós að hvítir bolir eru ekki löglegir í borðtenniskeppni og hættum við því snarlega við þann lit og ákváðum í kjölfarið að endurskoða búningakaupin alveg. Niðurstaðan er sú að bolirnir verða ☀️gulir íþróttabolir☀️ (til að skera sig úr fjöldanum á mótum), samhliða þessu alveg frá því í haust erum við búin að vera að teikna og þróa logo fyrir Vísi og sést það hér að neðan, þar eru nokkur af helstu sérkennum Suðursveitar... Tignarleg fjöll með jökulhettum, ísjaki, ásamt greniskóginum sem Umf. Vísir gróðursetti á síðustu öld. Í bakgrunni gerir svo Suðursveitar sólin himininn gulann og þaðan kemur liturinn á bolina!
***
En nú leitum við eftir styrktaraðilum á bolina!!
Til að leyfa sem flestum að vera með þá er hugmyndin að setja ca. 5 styrktaraðila á bolinn, þar af væri einn aðalstyrktaraðili sem fengi stærsta plássið framan á honum.
Við erum búin að hugsa þetta fram og aftur hvernig eigi að snúa sér í því að leita eftir styrktaraðilum, en okkur langar fyrst að athuga hvort við fáum ekki styrktaraðila innan Suðursveitar eða nærsveita, það þætti okkur vænst um áður en við færum að leita lengra. Styrkupphæðin sem kæmi inn yrði nýtt að hluta til að niðurgreiða bolina svo þeir séu á verði sem stoppar engann til að eignast bol, en aðal peningurinn færi til áhalda og búnaðar kaupa fyrir völlinn okkar og til þess að geta keypt inn það sem þarf til að gera mótið okkar í sumar sem veglegast.
Verði afgangur af upphæðinni þá lofum við að honum verði vel varið til frekari uppbyggingar Vísis og skemmtana- og íþróttalífs í Suðursveit 🥳
Við reiknum með að bolirnir verði á bilinu 100-200 stk, og er þetta kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki að sýna hvar hjartað slær!
Upphæðirnar sem við höfum hugsað okkur væru eingreiðslur á bilinu 300-500 þúsund krónur og allir bolir sem framleiddir yrðu á árinu 2026 verði prentaðir með þeim styrktaraðilum.
Ef þú eða þitt fyrirtæki ert til í að leggja slíka upphæð í styrk til Vísis og fá þitt merki á bolina okkar þá endilega sendið okkur tölvupóst, á messenger eða á annan hátt fyrir 22. febrúar, Bjarni Malmquist Jónsson ([email protected] S:661-4172) eða Aðalbjörg Bjarnadóttir ([email protected] S: 691-2541).
Vísir er að fara að senda 3-5 keppendur á Íslandsmót unglinga og fullorðinna í borðtennis, í byrjun mars, það væri því frábært ef við gætum verið komin með staðfestingu frá styrktaraðilum nógu snemma svo keppendur geti klæðst nýju Vísis búningunum á Íslandsmótunum
***
Við viljum svo þakka Þorrablótsnefndinni fyrir að gefa okkur dósapeninginn eftir þorrablótið hann kemur sér vel og tökum við fegin við slíku framlagi ef fólk eða fyrirtæki vilja styrkja Vísi með dósapening, látum við hér reikningsupplýsingar fylgja.
Kt. 700992-2339
Rknr: 0172-15-380491
***
Svo má bæta við að lokum, þau sem spila Lottó, Lengjuna eða annað hjá Íslenskri getspá þá hvetjum við ykkur til að merkja miðana ykkar með getraunanúmeri Vísis sem er 784!! Þá fær Vísir smá styrk sem munar alveg um án þess að það kosti neitt aukalega fyrir viðkomandi.

Sameinuð stöndum vér! 👊
Áfram Vísir!

Photos from Malmö Open's post 12/02/2026

Anna Karen Malmquist keppti um helgina á Malmö Open í Svíþjóð, sem er eitt stærsta opna mótið í Evrópu fyrir hreyfihamlaða. Hún stóð sig eins og hetja vann 4 leiki þrátt fyrir að vera yngsti keppandinn (9 ára ) en komst samt í A-úrslit 15 ára og yngri. Hér sjást fáeinar myndir á Facebook síðu mótsins, þ.a.m. er okkar kona einbeitt að gera uppgjöf!
Næst á döfinni hjá borðtennisdeild Vísis er íslandsmót unglinga og Íslandsmót í 2. Flokk en amk. 3 keppendur munu keppa frá Vísi á þessum mótum! 🏓
Við minnum jafnframt á borðtennis kvöldin hjá okkur í Hrollaugsstöðum alla föstudaga klukkan 20:00. Ef þið hafið áhuga endilega sendið á okkur skilaboð og við getum bætt ykkur í spjall-hóp, það kemur nefnilega fyrir að tíminn hliðrast. Og um daginn tókum við líka auka æfingu! 🏓🏓

Photos from Ungmennafélagið Vísir's post 24/01/2026

Ungmennafélagið Vísir gerði gott mót í dag á BH open í Hafnarfirði. Bjarni Malmquist Jónsson náði 2. Sæti í opnum flokki D. Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir (9ára) gerði sér svo lítið fyrir og vann 11 ára flokkinn og náði líka 2. Sæti í 13 ára flokk (ófatlaðra)! 🏓🥳

11/01/2026

Æsispennandi oddalota hjá Bjarni Malmquist á síðustu helginni í deildarkeppni í 4 deild. Leikurinn endaði 11-8 fyrir umf Selfossi!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Höfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Hrollaugsstaðir
Höfn
781