02/08/2026
Drottningin er á eldi - 106 laxa holl!
Það hefur verið ævintýraleg veiði í Laxá síðustu daga og áin er hreinlega á eldi. Sterkar göngur skila sér inn og fiskur veiðist upp um alla á. Hollið sem lauk veiðum í dag endaði með 106 laxa á land og langt er síðan slíkar tölur hafa sést í Laxá í Aðaldal.
Harðsnúið lið var við veiðar síðustu daga - veiðihópur frænda sem kenndir eru við Grafarbakka á Húsavík, í bland við heimamenn úr Aðaldal. Þessi hópur lét hvorki rok, rigningu né allt að því skafrenning stoppa sig við veiðarnar, og það skilaði sér svo sannarlega. Þegar upp var staðið var útkoman hvorki meira né minna en 106 laxar.
Aflinn var blandaður af fallegum nýgengnum smálaxi og tveggja ára laxi, auk þess sem nokkrir stórir hængar komu á land - 92, 95, 96 og 97 cm - sem sýnir að þeir stóru eru farnir að gefa sig að flugum veiðimanna. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu á þessari glæsilegu veiði hér í Laxá í Aðaldal.
30/07/2026
Síðasta holl endaði í 50 löxum! 🏆🎉 Það er þvílíkt líf í ánni að við höfum varla undan að mæla og mynda. Hér eru allir á bakkanum spilandi kátir yfir þessu ótrúlegu göngum síðustu daga og vikna og fólk spennt fyrir komandi vikum. Látum nokkrar myndir úr síðasta holli fylgja með.
27/07/2026
Þrátt fyrir hvassviðri og erfiðar aðstæður í síðasta holli þá náðust 38 laxar á land (þar að auki fjölmargar tökur og einhverjir misstir). Það verður að teljast vel gert þar sem helminginn af veiðitímanum var svo hvasst að veiðifólk g*t hreinlega ekki kastað. En við erum rúmum 60% yfir sama tíma og í fyrra hvað veiðitölur varðar. Það er skemmtilegt hvað er að ganga mikið af stórlaxi og enn eru að landast glænýjir 80 og upp í 95cm fiskar. Við látum fylgja nokkrar góðar myndir frá árbakkanum í síðasta holli. Já krakkar mínir, það er líf og fjör við ána.
23/07/2026
Góðir dagar í Laxá.
Frábær veiði hefur verið síðustu daga í Laxá. Það komu 11 laxar á land í morgun fyrir neðan fossa og einn af þeim var 101 cm fiskur sem Benjamín Kári Matthíasson landaði. Hollið endaði í 45 fiskum. Miklar göngur í gangi og okkur hlakkar til framhaldsins.
19/07/2026
Tveir fallegir úr Fossbrún. Annarsvegar 85cm og hinsvegar 80cm.
16/07/2026
Sjöfn Hulda með glæsilegan 83 cm lax á Heiðarendaflúð (hann tók Laxablá nr. 6) og Björn Gunnar með 82 cm fisk úr Brúarstreng (hann tók Dimmblá nr.10) - en þess má geta að vaktin í kvöld var 10 laxa vakt og áin fyrir neðan fossa teppalögð af laxi svo annað eins hefur varla sést!
15/07/2026
Þrátt fyrir krefjandi sunnanátt síðustu daga endaði síðasta holl í 30 löxum. En 10 laxar komu á einni vakt í fyrrakvöld. Það eru miklar göngur í fossunum og hefur fólk séð tugi fiska þar nokkrar vaktir í röð. Hérna er myndaveisla frá síðasta holli.
13/07/2026
Glæsilegur 85cm fiskur á Fossbrún. Hann tók fluguna Abbadís. 👌🏽