Laxá í Aðaldal - Big Laxá

Laxá í Aðaldal - Big Laxá

Share

Fréttir af veiðisvæðum Laxárfélagsins Laxárfélagið er samtök áhugamanna um stangveiði og náttúrutöfra Laxár í Aðaldal.

Félagið skiptist í deildir með heimilisfesti á Akureyri, Húsavík og í Reykjavík og rekur veiðiheimilið Vökuholt í landi Laxamýrar. Í öllu starfi sínu vill Laxárfélagið stuðla að alhliða laxavernd í villtri náttúru, beita sér fyrir hófsemi og háttvísi við veiðar og vinna að öðrum áhugamálum fluguveiðimanna.

23/06/2021

Mjósund klikkar ekki.

29/03/2021

Þeir hafa oft verið stórir laxarnir í Laxá.

28/03/2021

Æðarfossarnir vetrarlegir.

21/03/2021

Mikið í Laxá og Brúarstrengur ekki veiðilegur. En það styttist í sumarið.

10/01/2021

Stundum eru laxarnir stærri en leiðsögumaður í þjálfun.
Big salmon and a small guide in training.

24/12/2020

Gleðileg jól. Happy christmas.

05/12/2020

Myndin er af Snorra Jónssyni að veiða Háfholu. Háfhola efri og neðri ásamt Stallinum eru þeir staðir sem að mestu lögðust af þegar fluga var tekin alfarið upp við veiðar í Laxá. Oft voru holurnar kallaðar "hálfvitaholur" því þarna var auðvelt fyrir óvana að fá fisk. Reyndar var það ekki sanngjörn nafngift því það g*t verið feikileg gaman að leiða stórlax niður úr holunum niður alla Kistukvísl. Stundum þurfti reyndar að elta stóra laxa úr Háfholu alla leið út á Kistuhyl.

Laxá í Aðaldal 11/11/2020

Hér er frábært myndband frá veiðum við Laxá. Gaman að sjá Jón Helgi Þorbergsson stórbónda á Laxamýri drífa menn út í söng. Þetta var víst siður hjá honum. Kannski hugmynd fyrir nýja staðarhaldara við Vökuholt.

Laxá í Aðaldal Svipmyndir af veiðum í Laxá í Aðaldal. Ártal óþekkt.

04/11/2020

Breytt skipulag í Laxá í Aðaldal

Á fjölmennum fundi Veiðifélags Laxár í Aðaldal var ákveðið breytt skipulag á veiðleyfasölu fyrir árið 2021. Öll áin verður seld sem ein heild og fækka þær jarðar sem taka þátt í samstarfinu stöngum úr 17 í 12. Utan þessa samstarfs verða jarðirnar Árbót og Jarlsstaðir. Rekin verða tvö veiðihús, veiðihúsið í Nesi og veiðihúsið Vökuholt á Laxamýri. Stefnt er með því að geta veitt veiðimönnum góða persónulega þjónustu í minni hópum. Gert er ráð fyrir að veiðmenn muni veiða alla ánna á þrem dögum, en um 70 ár eru síðan hægt var að veiða Æðarfossana, Mjósund, Brúarsvæðið, Núpafossbrún; Höfðahyl, Presthyl, Vitaðsgjafa, Hólmavaðsstíflu og Óseyrina í einum veiðitúr.

Aðalfundur ákvað jafnframt að semja við félag í eigu þeirra bræðra í Nesi Árna Péturs og Hermóðs Hilmarssona og félags landeigenda á Laxamýri um umboðssölu og umsjá með móttöku veiðimanna. Þeir Árni Pétur og Hermóður hafa um árabil rekið Nessvæðið við góðan orðstír. Landeigendur á Laxamýri hafa nýlega keypt allar eignir Laxárfélagsins á jörðinn þar með talið veiðiheimilið Vökuholt.

Markmiðið með þessu samstarfi er að minnka veiðiálag og auka það pláss sem veiðimenn hafa til veiða. Fækkun stanga er veruleg eða um 30 prósent sem ætti að auka gæði veiðanna til muna. En meðalveiði í Laxá í Aðaldal síðan 2010 860 laxar og laxar yfir 20 pund hafa verið vel á þriðja tug. Aðalfundurinn samþykkti jafnframt fiskræktaráætlun sem leggur áherslu á bætingu búsvæða með grjóti og uppbyggingu hrygningasvæða með útkeyrslu hrygningarmalar. Lögð er áhersla á uppbyggingu hrygningarstofnsins og vernd þessa merkilega stórlaxastofns.

Þeir sem hafa verið að veiða á Laxárfélagssvæðunum og vilja festa sér holl í þessu nýja fyrirkomulagi sendi póst á [email protected].

02/11/2020

Fallegur.

24/10/2020

Góð veiði úr Kistukvísl.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Húsavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Vökuholt
Húsavík
621