Pílukastfélag Hafnarfjarðar

Pílukastfélag Hafnarfjarðar

Share

Pílukast

13/03/2026

Barna og unglingastarf PFH hefst mánudaginn 9. febrúar í Skarðshlíðarskóla á völlunum.

Kristján Sigurðsson fyrverandi landsliðsþjálfari sér um æfingar.

Val er um það hvort fólk komi með eigin pílur.

Photos from Pílukastfélag Hafnarfjarðar's post 30/12/2025

Laugardaginn 27. des var haldið jólamót í samstarfi við Ölhúsið Hafnarfirði og https://stjornuljos.is/ þar sem Kiddi Páls vann A mótið og Albert B mótið. Einstaklega góð stemning var á staðnum og þökkum við fyrir gott mót.

Gleðilegt nýtt ár!

Stjörnuljós 26/12/2025

Það eru enn nokkur sæti laus í jólamótið á Ölhúsinu á morgun sem byrjar kl 18:00

https://fb.me/e/5Iyzm8Uvd

Stjörnuljós munu veita verðlaunin.
https://stjornuljos.is/

Stjörnuljós Við bjóðum viðskiptavinum okkar eingöngu upp á hágæða skotelda, sem framleiddir eru við strangt gæðaeftirlit í verksmiðjum Union Fireworks.

Jólamót PFH og Ölhússins 13/12/2025

🎄🎯 JÓLA PÍLUMÓT PFH OG ÖLHÚSSINS! 🎯🎄

27. desember ætlum við að halda pílumót í samstarfið við Ölhússið 🍺

🎯 Pílumótið hefst kl. 18:00
🎯 Scolia mót – enginn þarf að skrifa ✍️❌
🍻 Bjór á krana
🔞 20 ára aldurstakmark
💰 Þátttökugjald: 3.500 kr.
👥 Aðeins 24 laus pláss – ekki bíða of lengi! ⏳🔥

Stjörnuljós mun kosta vinninga

🎸🚀 Seinna um kvöldið koma Geimfararnir og halda stuði gangandi!

📝 Skráning hér https://docs.google.com/forms/d/1lkcr1g3hpFTa-J2GQxwV6SgHl9QpYzwNkLWbxC2dx7U/edit 👈

👉 Mældu þig gegn öðrum, fáðu þér kaldan og njóttu kvöldsins! Sjáumst! 🎄🎯🍺

Jólamót PFH og Ölhússins 🎄🎯 JÓLA PÍLUMÓT PFH OG ÖLHÚSSINS! 🎯🎄 📅 27. desember 🍺🎯 Komdu og taktu þátt í pílumóti PFH og Ölhússins þar sem jólastemning og keppni fara saman! 🕕 Pílumótið hefst kl. 18:00 🎯 Scolia mót – enginn þarf að skrifa! ✍️❌ 🍻 Bjór á krana 🔞 20 ....

Photos from Pílukastfélag Hafnarfjarðar's post 01/12/2025

Nú um nýliðna helgi var haldið fyrsta mót á vegum PFH í langan tíma, Hafnarfjarðarmeistari PFH og Ölhússins.
Mótið var í samstafi við Ölhúsið og var haldið í húsakynnum þeirra í Hafnarfirði.
16 keppendur voru skráðir til leiks að þessu sinni og var orðið á götunni að vel hefði tekist til og vel flestir ef ekki allir farið sáttir heim.
Spilað var í 4 riðlum þar sem allir komust áfram en þeir keppendur sem féllu út í úrslitum fóru í B- úrslit eða Forsetabikarinn eins og hann er stundum nefndur.
Í B-úrslitum var það hún Sara Heimis sem hafnaði í 3ja sæti,
Egill Birgisson hafnaði í 2 sæti
Albert Guðmundsson hafnaði í 1 sæti.

Í úrslitum um Hafnarfjarðarmeistarann 2025 léku þeir Karl Helgi Jónsson og Kristinn Sveinn Pálsson.
Leikurinn var ansi jafn á köflum léku báðir spilarar vel.
Í 3ja sæti hafnaði Alexander Baldvin,
En það var síðan hann Karl Helgi Sem hafi betur gegn Kristinn S. Páls.
Karl Helgi var því krýndur Hafnarfjarðarmeistarinn en þetta er í 3ja sinn sem hann hampar þessum titli.
Þess ber einnig að nefna að vinningar voru ekki af verri gerðinni og erum við ævinlega þakklát velunnurum okkar fyrir að styrkja okkur í þessu móti, en þeir eru:

Kastid.is
pingpong.is
Toyota
Ölhúsið Hafnarfirði

Við óskum öllum þeim spilurum sem lentu í sæti til hamingju með árangurinn.

Að loklum látum við nokkrar myndir fylgja með frá mótinu og þökkum öllum þeim sem mættu og tóku þátt í þessu með okkur.
Kveðja,
Stjórn PFH

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Hafnarfjörður
220