08/06/2023
muniði þegar ég var alltaf að tala um hvað ég væri lélegur hlaupari? ég er hætt því 🤪
ég held að ég hafi sjaldan verið jafn stolt af sjálfri mér og í kvöld - fyrsta keppnishlaupið og draumurinn var að vera undir 60 mín með 10km en fannst það samt eiginlega ekki raunhæft .. (díses það hefur örugglega engin skrifað svona dramatískt um 10km 😂) en allavegana þá gerði ég gott betur en það og flögutíminn minn 57:37 🥰
takk fyrir mig & 🫶🏼
| samstarf ✨
27/12/2022
ÁRAMÓTA ✨GJAFALEIKUR✨
Veglegur pakki frá FALSCARA sem inniheldur:
💜 Starter Kit
💜 Overnighter
💜 Eyelash Wisp Multi 01 & 02
💜 Remover
Einfaldar leikreglur: fylgja .thjalfun & merkja vin/vinkonu 🤝🏼
FALSCARA eru augnháralengingar sem þú getur gert hvar og hvenær sem er. Augnhárin eru sett undir þín eigin augnhár og hægt að byggja upp að vild. Augnhárin er bæði hægt að hafa í einn dag eins og hefðbundin gerviaugnhár eða í allt að 10 daga með því að nota „Overnighter“. Þau valda ekki skemmdum á þínum eigin augnhárum og til þess að taka þau af er best að setja olíufrían farðahreinsi í bómul og halda yfir augunum í 10 sekúndur áður en augnhárin eru tekin varlega af.
Dreg út 30. desember 🤍
04/02/2022
Mánuður í settan dag og við mæðgur fögnum með góðri heimaæfingu 🐳✨
27/01/2022
Margar konur upplifa grindarverki á meðgöngu. Yfirleitt gera þeir vart við sig á öðrum eða þriðja þriðjungi meðgöngu en geta þó komið fyrr.
Grindarverkir eru óþægindi eða verkir að framan og/eða aftan í mjaðmagrindinni en þeir geta einnig leitt út í mjaðmir og læri.
Hér eru nokkur ráð sem gott er að tileinka sér snemma á meðgöngu til að hjálpa líkamanum að takast á við þær breytingar sem eiga sér stað og þannig eiga möguleika á að fyrirbyggja grindarverki 🤍