Zumba fitness með Ingu

Zumba fitness með Ingu

Share

Ef þú hefur gaman af því að dansa við taktfasta tónlist í góðum hópi og taka vel á því ertu á réttum stað! Zumba hentar öllum og má aðlaga að eigin getu.

Endilega sendið mér skilaboð fyrir skráningu og frekari upplýsingar. Hlakka til að sjá ÞIG!

Zumba fitness með Ingu júní 2026 11/06/2026

Hæhæ🌞

Heilsan er með mér í liði í dag svo við dönsum gleðina í gang í dag í Hörðuvallaskóla kl.17.15 💃

Átt ÞÚ nokkuð eftir að skrá ÞIG???

Zumba fitness með Ingu júní 2026 Tímarnir eru alla þriðjudaga og fimmtudaga kl.17.15 í sal Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Merktu við alla þá tíma sem þú ætlar að mæta í. Ef þú kemst ekki í tíma sem þú hefur skráð þig í vinsamlegast láttu vita með því að senda skilaboð á FB - Zumba fitness með Ingu ...

09/06/2026

Hæhæ elsku bestu ❤️

Ég lenti í því að fara óvart inn í myglað húsnæði um helgina (ég er með bráðamygluofnæmi) og er búin að vera veik síðan þá😪 ég hélt að ég væri orðin nógu hress til að kenna í dag en ég held að ég verði að vera skynsöm og hvíla í dag😵‍💫

Sjáumst vonandi sem flest hress á fimmtudaginn ❤️

Zumba fitness með Ingu júní 2026 04/06/2026

Hæ hó og jibbí jei það er kominn Júní 💃

Ætlar ÞÚ nokkuð að missa af danspartý af bestu gerð? Sé ykkur vonandi sem flest í Hörðuvallaskóla kl.17.15 í dag 💃

Hérna er hlekkur fyrir skráningu júnímánaðar

https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfoodgE1Fkl8bxQKYDagdyHnkpA7iqikrQ8X9TA4MKLt4kgOg/viewform?usp=publish-editor

Zumba fer í frí EFTIR tímann fimmtudaginn 18.júní en ég geri ráð fyrir að byrja aftur vikuna 10.-14. ágúst 💃

Ég er með það í athugun hvort ég gæti fengið salinn frekar á mánudögum og miðvikudögum í haust en læt vita þegar ég veit meira um það 💃

Ef tækifæri verða til þess að dansa úti í sólinni í sumar er aldrei að vita nema ég smelli í popup tíma en þá borgar sig að fara inn á síðuna öðru hverju þar sem fólk virðist ekki alltaf fá tilkynningu frá fb þegar ég set inn pósta😵‍💫

Zumba fitness með Ingu júní 2026 Tímarnir eru alla þriðjudaga og fimmtudaga kl.17.15 í sal Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Merktu við alla þá tíma sem þú ætlar að mæta í. Ef þú kemst ekki í tíma sem þú hefur skráð þig í vinsamlegast láttu vita með því að senda skilaboð á FB - Zumba fitness með Ingu ...

02/06/2026
02/06/2026

Zumba útkall 😍😍😍

Ætlar ÞÚ nokkuð að missa af zumba á eftir í Hörðuvallaskóla kl.17.15???

Öll velkomin eina sem þarf að hafa með sér er góða skapið 😍💃😍

Hlakka til að sjá ykkur 💃

01/06/2026

Góða kvöldið gleðipinnar 💃 þá er ég búin að hrista af mér þessa leiðindapest og get ekki beðið eftir því að dansa með ykkur á morgun 💃 ég á eftir að græja nýjan skráningarhlekk fyrir júní en endilega réttið.upp hönd hér undir ef þið ætlið ekki að missa af besta danspartýinu💃💃💃

28/05/2026

ATH! Zumba fellur niður í dag (fimmtudagur 28.maí) vegna veikinda😭

Ég held að ég verði að játa mig sigraða og taka skynsemina á þetta 🙈

Vonandi sjáumst við sem flest í brakandi dansstuði á þriðjudaginn næsta💃💃💃

Zumba fitness með Ingu maí 2026 19/05/2026

Góðan daginn 🌞

Mikið hlakka ég til að dansa með ykkur í Hörðuvallaskóla kl.17.15 í dag 💃

Átt ÞÚ nokkuð eftir að skrá ÞIG?

Zumba fitness með Ingu maí 2026 Tímarnir eru alla þriðjudaga og fimmtudaga kl.17.15 í sal Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Merktu við alla þá tíma sem þú ætlar að mæta í. Ef þú kemst ekki í tíma sem þú hefur skráð þig í vinsamlegast láttu vita með því að senda skilaboð á FB - Zumba fitness með Ingu ...

14/05/2026

Góðan daginn 🌞

Við látum rauða daga á dagatalinu aldeilis ekki stoppa okkur og dönsum í Hörðuvallaskóla kl.17.15 í dag 💃

Það væri gaman að sjá sem flesta 🙏❤️ þið megið endilega rétta upp hönd ef þið ætlið að mæta 👋

12/05/2026

Takk svo mikið fyrir dásemdartíma elsku frábæru þið❤️💃❤️

Það verður tími á fimmtudaginn að venju kl.17.15 og mikið sem ég hlakka til að tjútta með ykkur❤️💃❤️

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Hafnarfjörður