30/12/2025
Íþróttakarl Hafnarfjarðar 2025
Taekwondodeild Bjarkanna. Ólympíu bardagalist frá Kóreu
30/12/2025
Íþróttakarl Hafnarfjarðar 2025
05/01/2025
Taekwondofólk Íslands 2024 bæði úr Björk Ingibjörg Erla Grétarsdóttir . Leo Speight
11/11/2024
https://www.mbl.is/sport/frettir/2024/11/11/islendingar_atkvaedamiklir_a_moltu/
Íslendingar atkvæðamiklir á Möltu Leo Anthony Speight vann til gullverðlauna á Malta Invitaional-leikunum í Taekwondo á Möltu um nýliðna helgi.
10/11/2024
Gull á G-1 Malta invitational games
10/11/2024
Silfur á G-1 Malta invitational games
07/11/2024
24/04/2024
https://www.mbl.is/sport/frettir/2024/04/24/tveir_islenskir_evropumeistarar/
Tveir íslenskir Evrópumeistarar Leo Anthony Speight og Guðmundur Flóki Sigurjónsson unnu báðir til gullverðlauna á Evrópumóti smáþjóða í bardagaíþróttinni taekwondo í Tallinn í Eistlandi.
24/04/2024
Landslið íslands í Taekwondo á geggjaðri siglingu :) Leo Speight og Guðmundur Flóki Sigurjónsson Evrópumeistarar smáþjóða
Ísland eignast tvo Evrópumeistara smáþjóða í taekwondo - Vísir Guðmundur Flóki Sigurjónsson úr KR og Leo Anthony Speight úr Björk urðu báðir Evrópumeistarar smáþjóða í bardaga á taekwondomóti í Tallinn í Eistlandi.
11/03/2024
Ingibjörg Erla Grétarsdóttir og Leo Speight kepptu um helgina á úrtökum fyrir Ólympíuleikana í París 2024 :)
Þá hafa Ingibjörg og Leo lokið keppni á Olympíu úrtökunum 2024. Því miður náðu þau ekki að tryggja sér sæti fyrir París 2024 þrátt fyrir að standa sig vel. Þau enda mótið bæði í 9 sæti sem er alls ekki slæmt á móti þar sem sterkustu keppendur evrópu eru saman komnir.
Ingibjörg byrjaði keppnina í -57 á laugardeginum gegn sterkum finskum keppanda. Ingibjörg kom sterk til leiks og gerði sér lítið fyrir og sigraði fyrri lotuna 11-2 og þá seinni 4-2 og þar með bardagann 0-2. Okkar kona því komin áfram og næsti bardagi gegn Grískri konu sem situr í 12. sæti heimslistans. Grikkinn var því miður aðeins of stór biti fyrir Ingibjörgu í þetta sinn og varð hún að játa sig sigraða 2-0. Ingibjörg lauk því keppni þar og endaði í 9. sæti.
🇫🇮 0-2 ✅
🇬🇷 2-0 ❌
Á sunnudeginum var svo komið að Leo sem keppir í -68 flokkinum. Leo fann fyrir veikindum á laugardeginum og var kominn með flensu þegar hann vaknaði á sunnudeginum fyrir keppni. Fyrsti bardagi hjá honum var gegn fyrna sterkum keppanda frá Georgíu sem situr í 57. sæti heimslistans. Leo byrjaði bardagann ekki vel og tapaði fyrstu lotu. Í lotu tvo fór okkar maður svo í gang og sigraði hann tvær seinni loturnar og þar með bardagann 1-2. Næst var svo komið að Grikkja sem er í 8. sæti heimslistans. Leo kom ákveðinn til leiks og stóð sig ótrúlega vel þrátt fyrir veikindin. Lota 1 fór 6-6 en Grikkjanum dæmdur sigur og lota tvö fór 12-10 þannig að Leo stóð vel í hárinu á honum þrátt fyrir veikindin. Gunnar landsliðsþjálfari sagði eftir bardagann að Leo hefði unnið hann ef ekki hefði verið fyrir veikindin en við komum víst aldrei til með að vita það ;) Leo tapaði því bardaganum og var úr leik. Hann endaði því líka í 9. sæti sem er ekki það sem var stefnt að en alls ekki slæmur árangur.
🇬🇪 1-2 ✅
🇬🇷 2-0 ❌
Þó svo að úrslitin hafi ekki verið þau sem stefnt var að megum við vera stolt af okkar fólki. Þau eru að bæta sig milli móta og verður spennandi að fylgjast með mótum ársins.
07/03/2024
Leo og Ingibjörg mætt fyrir Ísland í Olympíu úrtökur fyrir París 2024
Íslenska Senior bardagalandsliðið er mætt til Búlgaríu ásamt Gunnari Bratli landliðsþjálfara til að taka þátt í úrtökum fyrir Olympíuleikana 2024. Þau munu keppa þar um helgina við sterkustu keppendur evrópu um 2 laus sæti í hverjum flokki á Olympíuleikana í París 2024 .
Ingibjörg Erla Grétarsdóttir keppir í -57 og byrjar keppnina á laugardag. Leo Anthony Speight keppir svo í -68 á sunnudaginn. Við birtum svo bardagatré og aðrar uppl. hér að neðan í commentum þegar þau koma. Einnig munum við pósta link á beina útsendingu hér að neðan.
25/02/2024
Leo Speight í 5. sæti og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir í 9. sæti á Slovenía Open :)
Þá hafa Leo og Ingibjörg lokið keppni á Slovenia Open. Okkar fólk var mjög flott og greinilegt að allt er á réttri leið
Leo vann fyrstu tvo bardagana sína en þurfti svo að láta í minni pokann fyrir JOZSA Levente frá Ungverjalandi sem er rankaður númer 6 í heiminum og vann seinasta Grand Prix final. Leo endar mótið í sæti 5.
🇭🇷 0-2 ✅
🇸🇮 0-2 ✅
🇧🇬 2-0 ❌
Ingibjörg vann fyrsta bardagann sinn örugglega og rétt tapaði seinni bardaganum sem tapaðist á einu stigi í lotu 3 . Hún endar mótið í sæti 9.
🇩🇪 0-2 ✅
🇭🇷 2-1 ❌
Flott hjá okkar fólki og spennandi tímar framundan :)