05/01/2026
Varst þú eina af þeim sem gerðir áramótaheit um breytingar í lífinu þínu. Þú þarft ekki nýtt ár eða nýjan dag til að gera breytingar í lífinu þínu. Það sem þú þarft að gera er að breyta þínu hugarfari.
✨✨✨
25/12/2025
🎄Gleðilega og kærleiksríka jólahátíð.🎄
Jólakveðjur
Helga
❤️❤️❤️❤
24/12/2025
✨24 desember✨
Aðfangadagur er runnin upp. Það er búið að vera yndislegt að fylgja þér inn í þennan fallega jólamánuð. Ég vona að þú eigir yndislega jólahátíð framundan.🥰
Njóttu hátíðinnar, mundu að hlúa að þér og veita þér innri frið.
Gleðilega jólahátíð.🎄
✨✨✨
23/12/2025
✨23 desember✨
Nú er aðeins einn dagur í jólahátíðina. Hvernig væri ef þú settist niður með sjálfri þér og myndir skrifa niður hvað þú ert þakklát fyrir og hvernig jólaundirbúningurinn þinn hefur verið.
Hvað ert þú þakklát fyrir í þessum fallega jólamánuði?
✨✨✨
22/12/2025
✨22 desember✨
Þú ert mikilvægasta manneskjan í þínu lífi.
Þú þarft meira á þér að sjálfri þér að halda heldur en nokkrum öðrum í öllum heiminum.
✨✨✨
21/12/2025
✨21 desember✨
Þú getur valið að vera í stressi og hafa áhyggjur af framtíðinni eða þú getur valið að vera í deginum sem er í dag.
✨✨✨
20/12/2025
✨20 desember ✨
Bara ein lítill jákvæð hugsun að morgni getur breytt öllum deginum þínum til hins betra.
✨✨✨
19/12/2025
✨19 desember✨
Hversu oft yfir daginn ertu að taka utanum einhvern sem þér þykir vænt um?
Nýttu daginn í dag til að auka knúsið. Ekki gleyma sjálfri þér, taktu utanum þig og gefðu þér knús.
✨✨✨
18/12/2025
✨18 desember✨
Krefjandi samskipti
Ertu að eiga krefjandi samskipti við fjölskyldu,vini,samstarfsfólk eða aðra í kringum þig?
Það verður erfitt að eiga friðsæl samskiptiu við aðra ef þú er sjálf langt frá því að vera með innri frið.
Þú verður fyrst að byrja þar ef þú vilt eiga betri samskipti við aðra.
✨✨✨
17/12/2025
✨17 desember✨
Hvernig lýst þér á að gefa þér smá tíma fyrir þig sjálfa í kvöld?
Áttu góða bók sem bíður eftir að þú kíkir á hana? Er langt síðan að þú tókst hugleiðslu?
Gætir þú gefið þér smá dekur tíma heima?
Þetta þarf ekki að vera mikið enn margt smá gerir eitt stór.
Og þá á svo sannarlega við alheimsorkuna líka. Því meira og betur þú hlúar að þér því meira jafnvægi ert þú í sjálf.
✨✨✨
16/12/2025
✨16 desember✨
Ertu að burðast með þungan bakpoka af ýmiskonar málum sem þú heldur fast í. Þessi bakpoki er að verða alltof þungur og þú hefur verið að burðast með einhverja hluti sem þú getur ekki breytt.
Hvernig væri að leggja frá sér bakpokan og sleppa tökum á þessari þyngd sem þú ert að burðast með.
✨✨✨
15/12/2025
✨15 desember✨
Nú er desember orðin hálfnaður og margir búnir að plana og gera ýmsar samverustundir með fjölskyldu og vinum.
Enn ertu búin að eiga samverustundir með sjálfri þér?
✨✨✨