Kvennastyrkur

Kvennastyrkur

Share

Líkamsrækt fyrir konur á Strandgötu 33 í Hafnarfirði.

13/08/2021

Á MÁNUDAGINN!! Nýtt tímabil hefst í næstu viku. Vertu með og nældu þér í síðustu plássin 👊🏻 er að fyllast í alla tímana hjá okkur. Skráning á www.kvennastyrkur.is

*Mynd úr ræktarsalnum hjá okkur*

12/08/2021

Boðorð 3:
“Eina sem ég get stjórnað er ég, mín viðbrögð, mínar gjörðir og mitt viðhorf. Ég ætla að àtta mig à því hvað ég hef mikil áhrif og taka ábyrgð á því.”

Í gluggum Kvennastyrks má lesa hvað við stöndum fyrir. Skemmtileg áminning fyrir konurnar okkar þegar þær koma á æfingu og þeirra sem ganga þar framhjá.

✨Ef þú tengir við þetta eða vilt komast nær þessu hugarfari þá viljum við fá þig með í hópinn. Ef þú skráir þig á námskeið hjá okkur færðu þennan boðskap og orku beint í æð nokkrum sinnum í viku.✨

Nýtt tímabil hefst vikuna 16. ágúst og fara skráningar fram á www.kvennastyrkur.is

Minnum á að við höfum misst aðganginn að Facebook síðunni okkar og getum því ekki svarað fyrirspurnum þar.

11/08/2021

Boðorð 2:
“Ef ég dæmi mig eða aðra ætla ég að taka skref tilbaka og skoða afhverju. Ég ætla að átta mig á því hvað allir eru einstakir þar á meðal ég. Það er engin eins og allir eiga rétt á sér.”

Í gluggum Kvennastyrks má lesa hvað við stöndum fyrir. Skemmtileg áminning fyrir konurnar okkar þegar þær koma á æfingu og þeirra sem ganga þar framhjá.

✨Ef þú tengir við þetta eða vilt komast nær þessu hugarfari þá viljum við fá þig með í hópinn. Ef þú skráir þig á námskeið hjá okkur færðu þennan boðskap og orku beint í æð nokkrum sinnum í viku.✨

Nýtt tímabil hefst vikuna 16. ágúst og fara skráningar fram á www.kvennastyrkur.is

Minnum á að við höfum misst aðganginn að Facebook síðunni okkar og getum því ekki svarað fyrirspurnum þar.

09/08/2021

Í gluggum Kvennastyrks má lesa hvað við stöndum fyrir. Skemmtileg áminning fyrir konurnar okkar þegar þær koma á æfingu og þeirra sem ganga þar framhjá.

Við köllum þetta boðorðin okkar.

Boðorð 1:
“Ég ætla að taka mér nákvæmlega eins og ég er í dag og leyfa mér að vera eins og ég þarf. Ég er alltaf að gera mitt besta miðað við aðstæður og dagsform”.

✨Ef þú tengir við þetta eða vilt komast nær þessu hugarfari þá viljum við fá þig með í hópinn. Ef þú skráir þig á námskeið hjá okkur færðu þennan boðskap og orku beint í æð nokkrum sinnum í viku.✨

Nýtt tímabil hefst vikuna 16. ágúst og fara skráningar fram á www.kvennastyrkur.is

Minnum á að við höfum misst aðganginn að Facebook síðunni okkar og getum því ekki svarað fyrirspurnum þar.

Photos from Kvennastyrkur's post 05/08/2021

✨Bananamuffins - tilvalið millimál ✨

Þessi verður hluti af matarbanka Kvennastyrks sem er í vinnslu.

Innihald
- 2 þroskaðir bananar (230 gr)
- 5 eggjahvítur úr flösku (150 gr)
- ½ tsk vanilludropar (1 gr)
- 2 dl grískt jógúrt (250 gr)
- 4 dl hafrar (160 gr)
- ½ tsk sjávarsalt (1 gr)
- ½ tsk matarsódi (3 gr)
- ½ tsk lyftiduft (3 gr)
- 7 döðlur skornar niður (50 gr)

Aðferð
1. Hita ofn á 200 gráður
2. Bananar stappaðir
3. Eggjahvítum bætt við og hrært í ca 1 mín þannig komi loft í þær
4. Öðrum innihaldsefnum bætt við og sett síðan í 12 muffins form
5. Bakað í 20 mín á 200 gráðum
6. Leyfið að kólna á grind

Gott að geyma í ísskáp eða frysti ef það verður afgangs. Skella síðan í örbylgju til að hita.

Gott td sem millimál með smá möndlu- eða hnetusmjöri.

Hver muffins er ca 18 gr kolvetni, 1 gr fita og 5 gr prótein.

Minnum á að við höfum misst aðganginn að Facebook síðunni, ef þið eruð með spurningu biðjum við ykkur um að vera í sambandi á Instagram eða á email [email protected]

01/08/2021

✨Sumaropnunartími í verslun í ágúst✨

Opið í verslun á Strandgötu 33, Hafnarfirði þriðjudaginn 3. ágúst kl. 11-13 og
mánudaginn 9. ágúst kl. 11-13

Frá 16. ágúst tekur aftur við hefðbundinn opnunartími virka daga frá kl. 10-15

Alltaf opið í netverslun www.kvennastyrkur.is

28/07/2021

✨GRUNNSTYRKUR✨

Við erum svo stoltar af Grunnstyrk sem er í umsjón 🤍
Grunnstyrkur er námskeið sem er kennt einu sinni í viku og er fyrir allar konur sem langar til þess að stíga sín allra fyrstu skref inn í líkamsrækt eða koma til baka eftir langa pásu.

Það hefur verið svo mikið þörf á svona námskeið og svo dásamlegt að sjá konurnar sem mæta í Grunnstyrk blómstra og halda svo áfram í Styrk eða Basic hjá okkur🌸

Það sem einkennir Grunnstyrk er að hér er ekki einungis verið að huga að æfingum heldur einnig andlegu hliðinni og fá þáttakendur einnig heimaverkefni í hverri viku sem hugsað er til þess að finna jákvætt viðhorf til skipulagðar hreyfingar.

Námskeiðið er lokað og er kennt miðvikudaga kl: 18:15.
Verð 10.990

Skráning inn á kvennastyrkur.is

23/07/2021

OPIÐ Á SKRÁNINGAR FYRIR NÆSTA TÍMABIL ✨

Núna er hægt að skrá sig á næsta tímabil sem að hefst 16.ágúst.
Allar upplýsingar um tímana má finna í highlight undir “um tímana” eða inn á kvennastyrkur.is.

Erum virkilega spenntar fyrir haustinu með ykkur 🍂🍁

20/07/2021

KVENNASTYRKUR ER 1 ÁRS 🥳

Í dag er ár frá opnun Kvennastyrks og hófust fyrstu tímarnir þá í júlí í miðjum Covid faraldri. Á þeim tíma var eini starfsmaðurinn, en í dag hefur eru starfsmennirnir orðnir fjórir og í fullu starfi.
Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með litlu stöðinni okkar blómstra og við erum spenntar fyrir komandi tímum 🌸😍💪🏼

16/07/2021

🔆 Við hlökkum mikið til þess að geta byrjað aftur með þjálfun á staðnum 16.ágúst eftir sumarfrí, andinn hérna með konunum okkar er engu líkur! 💪🏼💪🏼

Ef þú vilt vera með - kynntu þér nýju stundarskrána okkar og námskeiðin sem verða í boði inni á www.kvennastyrkur.is 🔆

12/07/2021

🔅🔅 P Ó S T L I S T I 🔅🔅

Við mælum eindregið með því að skrá sig á póstlista fyrir næsta námskeiðstímabil sem hefst 16.ágúst til þess að eiga möguleika á því að ná plássi á óskatímasetningu og námskeið.

1️⃣ www.kvennastyrkur.is
2️⃣KVENNASTYRKUR
3️⃣Námskeið í Kvennastyrk
4️⃣Þá birtist þessi mynd ásamt nánari upplýsingum um hvert námskeið.

🔅 Vertu með í haust 🔅

24/06/2021

Erum ótrúlega þakklátar fyrir góðar viðtökur á Grindarbotns pop up tímanum ✨

Það fylltist í tímann á einum degi sem sýnir okkur að það er mikil nauðsyn á svona tímum. Við höfum því tekið ákvörðun um að hafa slíka pop up tíma reglulega og er næsti tími þriðjudaginn 24.ágúst og hefjast skráningar í hann viku á undan og munum við auglýsa það hér þegar að því kemur.

Einnig er hægt að skrá sig á póstlista inn á kvennastyrkur.is undir kvennastyrkur ➡️ námskeið ☺️

Tíminn er opin öllum konum hvort sem þær eru iðkendur í Kvennastyrk eða ekki og hvort sem þær hafa átt barn eða ekki. Við biðjum hinsvegar konur sem eru nýlega búnar að eiga (allt innan við 6 vikur frá fæðingu) um að bíða með að mæta.

Við munum hafa tímana reglulega í haust/vetur 🍂☃️

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Strandgata 33
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 08:30 - 02:30
Tuesday 08:30 - 14:30
Wednesday 08:30 - 14:30
Thursday 08:30 - 14:30
Friday 08:30 - 14:30