FH Esports

FH Esports

Share

Upplýsingasíða rafíþróttadeildar FH

05/06/2020

Spennan er gífurleg!

Næsta sunnudag mætast Rafíþróttadeild Fylkis og FH Esports í úrslitum Stórmeistaramóts Vodafone í CS:GO.

Leikurinn verður sýndur beint í opinni dagskrá á Stöð 2 esport og á twitch rásinni okkar /rafithrottir. Ekki missa af síðasta keppnisleiknum í CS:GO fyrir langt sumarfrí! Vísir.is hafa staðið sig frábærlega í að flytja fréttir af rafíþróttum og hægt er að skoða allar fréttir tengdar rafíþróttum hér visir.is/f/idrottir10

01/06/2020

Shhhhhhhhh
Dusty ✅
*
*
*
Næsti leikur er svo gegn Fylki næstu helgi í úrslitum stórmeistaramóts Vodafone deildarinnar í beinni á stöð 2 esports!

Rafithrottir - Twitch 22/04/2020

FH mætir Dusty í sjónvarpsviðureign umferðarinnar í Vodafone deildinni í kvöld klukkan 20:00.

Stöð2 Esport í almennum sjónvarpsafruglurum og einnig í beinni á vísi.is og á twitch.tv/rafithrottir

Rafithrottir - Twitch Vodafone Deildin - Umferð 1 - Fylkir vs Þór

08/04/2020

Í kvöld í beinni á stöð2 Esports, vísir.is eða twitch.tv/rafithrottir. Ekki missa af þessu!

30/03/2020

Annar leikur FHinga í Vodafone deildinni í CSGO yfirstaðinn og 2-0 sigur feikisterkra Fylkismanna staðreynd.

Við þökkum Rafíþróttadeild Fylkis fyrir góðan leik og óskum þeim góðs gengis í komandi leikjum!

FH á næst liðið Tilt í sjónvarpsleik í næstu viku sem verður í beinni á stöð 2 esport og við látum ykkur vita af því þegar nær dregur.

Þangað til næst, farið vel með ykkur.

24/03/2020

Fyrsti leikur FH í CS:GO í Vodafone deildinni var að klárast rétt í þessu.

2-1 sigur FH staðreynd í frumraun úrvalsdeildar Counter-Strike!

Í næstu viku verður svo sjónvarpaður leikur hjá okkar mönnum og látum við ykkur vita af því.

Þangað til næst, farið vel með ykkur!

18/03/2020

Fantasy deild fyrir þá sem ætla að fylgjast með Vodafone deildinni í endilega skráið ykkur til leiks!

Draumadeildin

Ný sjónvarpsstöð fyrir rafíþróttir - Vísir 18/03/2020

Algjör snilld þegar það er einmitt íþróttaþurrð á heimsvísu. Ekkert vit í öðru en að stilla á Stöð 2 Esports og fylgjast með FHingum og öðrum íslenskum rafíþróttamönnum keppast um titla í hinum og þessum rafíþróttum!

Ný sjónvarpsstöð fyrir rafíþróttir - Vísir Í þessum mánuði fer í loftið ný sjónvarpsstöð, Stöð 2 ESPORT, sem sýna mun frá keppni í rafíþróttum á Íslandi.

01/03/2020

Smá frétta update af meistaraflokksliðunum okkar:

liðið okkar var að tryggja sér sæti í úrvalsdeild rétt í þessu með 2-0 sigri á Keflavík. Áður en deildin hefst verður samt haldið meistaramót með 8 bestu liðum landsins þar sem okkar menn verða í eldlínunni.

liðið okkar er í harðri baráttu með nokkrum af bestu liðum norðurlandana í riðlakeppni Norðurlandadeildarinnar og einnig eiga þau sæti í íslensku úrvalsdeildinni eftir árangur síðustu leiktíða.

leikmaður okkar FHinga er í undirbúningi fyrir íslandsmótið í FIFA sem haldið verður af KSÍ núna í byrjun mars og einnig er hann í landsliðshóp KSÍ í eFótbolta.

Allt í blóma hjá meistaraflokks fólkinu okkar sem eru fyrirmyndir fyrir þá krakka sem koma og æfa hjá okkur í Fiskabúrinu í Kaplakrika. Við viljum að okkar iðkendur geti séð hversu mikið er í boði ef maður vinnur hart að bætingu með markvissri þjálfun til að komast í meistaraflokks lið og keppa fyrir hönd FH á íslenskum og erlendum vettvangi.

Fyrsta landsliðið í e-fótbolta valið 27/02/2020

Jóhann Ólafur Jóhannsson okkar maður í FIFA er í landsliðshóp KSÍ fyrir heimsmeistaramótið í PES.
Við erum afar ánægð með okkar mann og hlökkum til að sjá hvernig þetta verkefni fer en það er ekki mikil menning fyrir PES hér á landi.
Spennandi verkefni framundan!

Fyrsta landsliðið í e-fótbolta valið KSÍ tilkynnti í dag valið á fyrsta íslenska landsliðinu fótboltatölvuleik. Þriggja manna íslenskt landslið í tölvuleiknum PES, eða Pro Evolution Soccer frá Konami var þá kunngjört í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal.

12/02/2020

Athugið! Æfingataflan okkar hefur verið uppfærð sökum þess að þriðjudagsæfingar voru að skarast á við fótboltaæfingar hjá sama aldursflokki.

Einnig viljum við benda á að skráning er enn í fullum gangi inn á fh.felog.is og ef einhver var í veseni með að skrá sig aftur í yngri hóp sem hafði verið í yngri hóp fyrir áramót þá ætti það vandamál að vera úr sögunni.

Kveðja úr Kaplakrika.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address


Kaplakriki
Hafnarfjörður
220