23/05/2020
Flogið í blíðunni á Hamranesi.
Flugmódelfélagið Þytur var stofnað árið 1970.
Félagið hefur í gegnum árin verið öflugur bakhjarl þeirra sem smíða og fljúga fjarstýrðum flugmódelum og vettvangur fyrir fræðslu, félagsstarf og þjálfun á því sviði.
23/05/2020
Flogið í blíðunni á Hamranesi.
31/12/2019
Hvetjum áhugasama til að kíkja á Flugmódelárið 2019 og sjá það helsta sem gerðist í flugmódelsportinu á árinu sem er að líða!
Flugmódelárið 2019 er nú aðgengilegt á rafrænu formi, gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!
https://frettavefur.net/Timarit/tolublod/Timarit_Frettavefsins_2019.pdf
06/07/2019
Spennandi mót í dag. 😊
Íslandsmeistaramótið í hástarti F3B - 11.júlí 2015 - Sandskeið (Síða 1) / Spjallið / Módelspjallið - flugmodel.net Mótið í dag verður sennilega lengi í minnum haft en þrjár vélar fóru í sund og ein fór í jarðgangnagerð og var komin hálfa leið til Kína þegar hún stoppaði en nóg um það í bili.
02/07/2019
Flott mót! :)
Sumarmótið í F3F var haldið í gærkvöldi, nánari umfjöllun og myndir má finna á Fréttavefnum.
https://flugmodel.net/viewtopic.php?id=11104
Minnum á vinnudag á Hamranesi nk. laugardag(22/6) kl. 10.
24/12/2018
Allt það helsta sem gerðist á árinu er nú aðgengilegt á einum stað á rafrænu formi.
Flugmódelárið 2018 er nú aðgengilegt á rafrænu formi, gleðileg jól! 😎
https://frettavefur.net/Timarit/tolublod/Timarit_Frettavefsins_2018.pdf
AÐALFUNDARBOÐ 2018
Aðalfundur Flugmódelfélagsins Þyts verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar 2018 í félagsheimili flugklúbbs Mosfellsbæjar að Tungubökkum og hefst klukkan 20:00.
Aðalfundur Þyts hefur æðsta vald í málefnum félagsins og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þannig virkan þátt í mótun félagsins.
Við viljum líka hvetja áhugasama um setu í stjórn eða nefndum að senda póst á [email protected] og gefa kost á sér skv. 7., 8., 9., og 10. lið dagskrár aðalfundarins.
DAGSKRÁ AÐALFUNDAR
1. Formaður setur aðalfund Þyts.
2. Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins.
3. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
6. Skýrslur nefnda.
7. Kosning formanns skv. 8.gr.
8. Kosning ritara og tveggja meðstjórnenda skv. 8.gr.
9. Kosning endurskoðenda.
10. Kosning í nefndir.
11. Tillögur um lagabreytingar.
12. Önnur mál.
Kosningarétt og kjörgengi ásamt rétti til fundarsetu á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Atkvæði eru óframseljanleg.
Kosningar skulu vera skriflegar nema fundurinn samþykki annað.
Þeir sem öðlast vilja rétt til fundarsetu verða að hafa greitt félagsgjöld a.m.k. viku fyrir aðalfund.
Kæri félagi
Desemberfundur Þyts verður haldinn miðvikudagskvöldið 6. desember í aðstöðu Flugklúbbs Mosfellsbæjar á Tungubakkaflugvelli klukkan 19:00.
Fundurinn verður með með svipuðu sniði og í fyrra, ætlunin er að vera með matarfund þar sem boðið verður upp á eitthvað góðgæti sem hirðkokkur Þyts (Gjaldkerinn) mun töfra fram.
Eins og áður sagði mun Bjarni gjaldkeri sjá um að elda ofaní okkur og er því ætlunin að byrja fundinn klukkutíma fyrr en venjulega, eða klukkan 19:00.
Til þess að hægt sé að framkvæma þetta vandræðalaust er nauðsynlegt að við fáum að vita hverjir ætla að mæta, verðinu fyrir máltíðina verður stillt í hóf eða aðeins 2000 krónur og eru drykkjarföng (malt og appelsín)ásamt kaffi eftir máltíðina með einhverju góðgæti innifalið í verðinu.
Ath !!! Þeir sem það kjósa geta keypt bjór á staðnum.
Þeir sem ætla að mæta þurfa að skrá sig, annaðhvort hérna fyrir neðan eða senda póst á [email protected] og þarf skráning að hafa farið fram eigi síðar en sunnudaginn 3. desember, einnig er hægt að láta Bjarna gjaldkera vita í síma: 8479891.
Ath! Ekki verður posi á staðnum þannig að menn verða koma með reiðufé, eða semja við gjaldkera um aðrar greiðsluaðferðir.
Það er von okkar í stjórninni að menn taki vel í þetta og fjölmenni þannig að úr verði ánægjuleg kvöldstund.
Kveðja stjórnin
07/09/2016
Sáu ekki örugglega allir Fjarkann hans Birgis í kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 2. september sl.?
http://www.visir.is/flugmodel-af-geysi-flygur-i-fyrsta-sinn/article/2016160909710
Vísir - Flugmódel af Geysi flýgur í fyrsta sinn Eftirlíking af Loftleiðavélinni Geysi, sem brotlenti á Vatnajökli haustið 1950, þykir eitt glæsilegasta flugmódel sem smíðað hefur verið.
AÐALFUNDARBOÐ 2016
Aðalfundur Þyts verður haldinn miðvikudaginn 24.febrúar 2016 í Skátaheimilinu að Hjallabraut 51, Hafnarfirði og hefst kl. 20:00.
Aðalfundur Þyts hefur æðsta vald í málefnum félagsins og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þannig virkan þátt í mótun félagsins.
Við viljum líka hvetja áhugasama um setu í stjórn eða nefndum að senda póst á [email protected] og gefa kost á sér skv. 7., 8., 9., og 10. lið dagskrár aðalfundarins.
DAGSKRÁ AÐALFUNDAR
1. Formaður setur aðalfund Þyts.
2. Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins.
3. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
6. Skýrslur nefnda.
7. Kosning formanns skv. 8.gr.
8. Kosning ritara og tveggja meðstjórnenda skv. 8.gr.
9. Kosning endurskoðenda.
10. Kosning í nefndir.
11. Tillögur um lagabreytingar.
12. Önnur mál.
Kosningarétt og kjörgengi ásamt rétti til fundarsetu á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Atkvæði eru óframseljanleg.
Kosningar skulu vera skriflegar nema fundurinn samþykki annað.
Þeir sem öðlast vilja rétt til fundarsetu verða að hafa greitt félagsgjöld a.m.k. viku fyrir aðalfund.
Aðalfundur Þyts verður haldinn miðvikudagskvöldið 24. febrúar klukkan 20:00 í skátaheimilinu í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar koma fljótlega.
Kveðja stjórnin.
Lyklaskipti á Hamranesi
Skipt verður um lykla (númer) á Hamranesi miðvikudaginn 24. júní.
Ný félagsskírteini verða afhent þeim sem hafa borgað félagsgjöldin. Þeir sem ekki hafa greitt félagsgjöldin, en ætla að gera það, eru hvattir til að greiða þau sem fyrst.
Þeir sem ekki koma á morgun að sækja félagsskírteini sín fá þau send í pósti.