Hlín Markþjálfun

Hlín Markþjálfun

Share

Þessi síða er um starf mitt sem markþjálfi. Hér getur þú haft samband og fengið ýmsar uppl

24/02/2026

Fimmti tími námskeiðsins fjallar um frelsi 🦋

Frelsi er auðvitað ótrúlega stórt hugtak sem teygir anga sína víða, inn í öll svið lífsins og alla okkar hugar- og tilfinningaheima.

Ert þú frjáls? ✨

Taktu eftir þínum fyrstu viðbrögðum við þessari spurningu.
Vonandi upplifir þú frelsi í öllum lífsins kringumstæðum, ég held að það hljóti að vera frábær tilfinning. Að finna ekki fyrir neinum hömlum eða takmörkunum að innan og að geta út á við gert hvað það sem mann lystir.

Einhverjar líkur eru á að þú upplifir töluvert mikið frelsi í flestu sem snertir líf þitt, en að hugsanlega séu líka einhverjar takmarkanir til staðar t.d. varðandi heilsufar, tíma, fjárhag, vinnu eða jafnvel huga. Það hversu mikið frelsi við upplifum hefur mikið með hugarfar að gera, vissulega, en svo getur líka ákveðið ófrelsi verið til staðar sem ekki er hægt að líta framhjá.

Ef þú upplifir ófrelsi á einhverju sviði, hvort finnst þér það koma innan frá eða utan❓

Ert ÞÚ að stoppa ÞIG, eða er einhver annar að gera það❓

Ef við tengjum frelsi við sjálfræði, það að hafa það um líf okkar að segja sem við viljum - frelsi til að velja, verður mikilvægi þess augljóst. Við viljum öll hafa eitthvað val um hlutina, en á námskeiðinu fjöllum við einmitt um sjálfsákvörðunarkenninguna úr jákvæðu sálfræðinni sem rammar inn okkar sálrænu grunnþarfir sem manneskjur: Sjálfræði - Hæfni - Félagstengsl

Ég hvet þig í öllu falli til að rannsaka eigið líf með augum frelsisins og spyrja þig:

✅ Hvar er ég frjáls og hvernig líður mér þá?
- Vil ég fleiri þannig stundir?

Spurðu þig svo:

❎ Hvar er ég ófrjáls og hvernig líður mér þá?
- Vil ég færri þannig stundir?

Hvað getur þú gert til að koma þér inn í aukið frelsi❓

Hvaða litlu skref munu færa þér það sem þú þarft mest á að halda í tengslum við þitt persónulega frelsi, í dag❓

Leyfðu þér að skoða allar hugsanir og tilfinningar í þessu samhengi, það gæti verið að einhver partur af þér vilji fá áheyrn.

Við eigum alltaf eitthvað inni til að skapa okkur meira frelsi í lífinu, okkar er að koma auga á það og stíga svo skrefin 👣

17/02/2026

Fjórði tími námskeiðsins fjallar um framtíðina 💫

Það er mjög mismunandi hvernig við tengjum við framtíðina, allt þetta ókomna sem framundan er í tíma í lífi okkar. Enda á það við um jafnt næsta andartak sem næsta mánuð, næstu áramót sem næstu áratugi. Við eigum flest fullt eftir af dýrmætum tíma framundan, þótt enginn viti í raun sína ævina fyrr en öll er. Tíminn er afstæður og fer auðvitað mest eftir sjónarhorni þess sem horfir, þó vissulega séu til mælingar og meðaltöl af flestu sem mæla má í tíma - okkur jarðarbúum til hægðarauka í daglegu lífi.

Það hvernig við tengjum við framtíðina fer þó eftir ótalmörgum þáttum; persónukarakter, uppeldi og æsku, hvað við erum að ganga í gegnum þá stundina s.s. varðandi heilsu, fjölskyldu, vini, fjármál, vinnu, nám o.fl., hvort við höllumst almennt að tilhlökkun eða kvíða, hversu skipulögð og langt fram í tímann okkur þykir gott að hugsa og setja hluti á dagskrá osfrv. osfrv.

Það er heldur ekkert sérstaklega rétt eða rangt í þessu samhengi, við eigum að nálgast framtíðina á okkar hátt, eins og okkur finnst best og virkar best fyrir okkur þá stundina.

En þurfum við eitthvað að spá í framtíðina, kemur hún ekki bara?
Er ekki best að lifa bara í núinu? 🤷‍♀️

Við vitum að það eina sem við raunverulega eigum er núið, þetta andartak sem við drögum andann í hverju sinni. Okkur hættir reyndar til að gleyma því í amstri hversdagsins, það er helst þegar við stöndum frammi fyrir lífi og dauða að við erum rækilega minnt á það að lífið er einmitt núna.

⏳ Ekki í gær og ekki á morgun, það er bara N✨Ú✨N✨A

Núið er vissulega stærsta gjöf lífsins, en stefnur okkar kalla líka á að annað slagið sé hjarta, hug og ógnarkrafti ímyndunaraflsins hleypt á sprett inn í ókominn tíma til að planta þar dýrmætum óskafræjum og ókomnum sigrum. Við skyggnumst inn í framtíðina með alls kyns spurningar til að rétta, mögulega, af stefnu hversdagsins.

Í upphafi skyldi endinn skoða - eins og máltækið segir⌛️

Hverju ætla ég að koma í verk á morgun❓
Hvað langar mig til að gera núna í sumar❓
Hvernig langar mér til að líða í lok þessa árs❓
Hvernig hljómar draumadagurinn minn frá morgni til kvölds eftir 10 ár❓
Hvernig vil ég kveðja þetta líf, þegar minn tími kemur❓

Framtíðin mun opnast bæði mér og þér á einhvern hátt og af einhverri lengd og mörgu getum við vissulega ekki stjórnað. Okkur er þó gefið vald yfir ákveðnum hluta okkar eigin framtíðar, skyldum við kjósa að nýta okkur það.

Ert þú að vinna með allt það sem í þínu valdi stendur til að fylla upp í frjósama og innihaldsríka framtíð fyrir þig❓
Styðja gjörðir þínar í dag við þann morgundag sem þú vilt upplifa❓
Ert þú með allt það besta í huga þegar þú leiðir hugann að þér og þinni líðan og blómstrun í allri ókominni framtíð❓
Hvernig líður annars hugarfarinu og hvernig viltu helst hafa það❓

🌻 Það er nú eiginlega stóra spurningin þegar öllu er á botninn hvolft

Í þessu samhengi skiptir máli að spyrja sig mikilvægu spurninganna, - hvað vil ég, raunverulega❓ - og finna einhverjar leiðir til að koma svörum út úr höfðinu og á fast form:

🧭 Gera draumakort eða vision board, skrifa niður drauma framtíðarsýnina í bók eða tölvu, taka upp eigin rödd og svör eða eiga í öllu falli gott samtal sem fær upp á yfirborðið þetta sem okkur raunverulega mest langar til að upplifa í ókominni framtíð, sama hversu langt við kjósum að horfa.

Ef þú þarft smá aðstoð má líka alltaf skrá sig á námskeið🩷

Megi framtíðin birtast þér eins og þú allra helst vilt hafa hana 💫

12/02/2026

Blessað sjálfstraustið!

Þriðji kafli námskeiðsins fjallar um sjálfstraust. Þetta eina innihaldsefni sem skiptir svo ótrúlega miklu máli í öllu sem við erum og gerum ❤️

Hvað þýðir það annars að hafa gott og heilbrigt sjálfstraust?
Ég skora á þig að pæla aðeins í því og finna þannig þín orð á fyrirbærið. Fyrir mér þýðir það alls ekki að það hálfpartinn rigni upp í nefið á manni eða að maður efist aldrei nokkurn tímann um sjálfan sig. Það tengist öllu heldur því að hafa einhverja og einhvers konar trú og traust á eigin sjálfi.

Ég hugsa þetta þannig að ég treysti mér, fyrir mér - mínum líkama, hug, tilfinningum, ákvörðunum, mörkum, vali, gjörðum og svo framvegis.

Gott sjálfstraust segir: Ég trúi á þig, þú getur 🌟

Gott og heilbrigt sjálfstraust greiðir svo til allar leiðir í lífinu, það þýðir samt ekki að maður viti allt og geti allt. Þvert á móti! Það þýðir miklu fremur það að maður einmitt veit hvað maður er fær um og hvað ekki og innra kerfið er alveg til friðs hvort sem maður er í aðstæðum þar sem manni finnst maður allt vita og geta, sem og þar sem manni finnst maður ekkert vita eða geta.

Gott sjálfstraust tengist fyrir mér þannig ákveðnum innri frið í raun, að geta staðið í lappirnar með eigin hæfileikum ásamt því að stíga skrefin í að nýta þá í lífinu en að finna einnig ákveðið innra akkeri þegar á móti blæs þannig að það fari ekki allt úr tilfinninga böndunum þótt mótlæti af einhverju tagi, s.s. neikvæð gagnrýni, berist. Það er auðvitað mun auðveldara að vera bjartsýn/n og hafa trú á manni sjálfum þegar vel gengur, það er fyrst þegar mótlætið berst sem raunverulega reynir á fyrir marga - og mótlætið getur N.B. borist jafnt að innan sem utan.

Við viljum þannig hafa góða og heilbrigða trú á okkur sjálfum í helst öllum aðstæðum og það krefst ákveðinnar sjálfsskoðunar og ákvörðunar um að vilja okkur sjálfum allt það besta, ekki satt?

Gott sjálfstraust snýst þannig um ákveðna sjálfsþekkingu og er meðvitað val um að hafa trú á eigin styrk og getu, þrátt fyrir að ytri aðstæður reyni e.t.v. að telja manni trú um annað. Það innifelur líka að geta tekið almennilega hrósi frá öðrum, fremur en að slíkar gjafir lendi eins og vatn á gæs. Það er nefnilega ekki alltaf sem okkur reynist auðvelt að þiggja fallega sýn á okkur sjálf.

Það er ótrúlega margt verðmætt sem kemur undan teppinu þegar fólk er spurt: Hvað einkennir hið fullkomna sjálfstraust að þínu mati?

Ég ætla að koma með nokkur dæmi af fyrri námskeiðum:

✨✨✨✨✨
Þakklæti - Gleði - Tilhlökkun - Að geta brosað - Myndað augnsamband - Gefa af sér - Geislandi - Að taka gagnrýni á uppbyggjandi hátt - Sátt í eigin skinni - Bein í baki að horfa framan í heiminn og fólk - Örugg í mér - Lífsgleði - Virðing - Annað yfirbragð - Útgeislun - Samgleðjast - Að fylgja sínum gildum - Frá hjartanu - Spenntur - Hlusta á sjálfan sig - Leika mér - Í flæði - Ekki láta aðra hafa áhrif á mig - Líður vel í eigin skinni - Öryggi í ákvarðanatöku - Fullnægja - Jákvæð orka - Eitthvað vibe - Mildi - Að hafa orku - Vissa með sjálfa mig og hvað ég er - Að koma vel fram - Góð samskipti - Að hugsa áfram og upp 🔥
✨✨✨✨✨

. og þetta er alls ekki tæmandi upptalning!

Við vitum það og sjáum allt í kringum okkur að ákveðið fólk virðist einhvern veginn hafa fæðst með rosa gott sjálfstraust á meðan annað fólk virðist einhvern veginn hafa farið heldur mikinn varhluta af því í byrjun.

🤔 Af hverju virðist þetta vera svona misskipt?

Trúin á okkur sjálf er að einhverju leyti bundin þeim karakter einkennum sem við berum, en svo er þetta vitaskuld einn af þeim þáttum sem uppeldið markar okkur sterkt af.

Ég held að við þurfum samt öll að æfa sjálfstraustið og þjálfa á fullorðinsárum, sama hve mikill meðbyrinn frá æskuárunum er. Fullorðinsárin færa með sér nýjar áskoranir, mótlæti og hindranir sem auðveldlega geta hrist upp í annars ágætu sjálfstrausti. Jákvætt og uppbyggilegt sjálfstal ásamt hæfilegri markmiðasetningu hvern dag eru t.a.m. frábær innlegg í bankann í þessu samhengi.

Æfum sjálfstraustið, því gott sjálfstraust gerist ekki bara af sjálfu sér 😊

02/02/2026

Í öðrum tíma námskeiðsins í síðustu viku fjölluðum við um sköpunarkraftinn og það að vera skapandi vera sem manneskja. Við erum öll með þennan kraft innbyggðan í kerfið okkar, vissirðu það? 💡

Spurningin er bara hvernig hann fær best útrás hjá hverju og einu okkar 💖

Orðið að "skapa" þýðir einfaldlega að "búa til" eitthvað.
Ert þú stundum að búa eitthvað til? Ég er handviss um að þú ert að skapa miklu fleira en þig grunar, á hverjum degi.

👉 Mat? Tækifæri? Gott andrúmsloft? Umhverfi?

Það er vissulega ákveðinn greinarmunur á því að til dæmis búa til kvöldmatinn á sjálfstýringu (einhvern rétt sem þú kannt og þarft lítið sem ekkert að hugsa um) eða að fylgja glænýrri uppskrift eða að bregða aðeins út af vananum og breyta hlutunum smá.

Í öllum tilfellum ertu samt að búa til eitthvað nýtt - já! - en þegar þú ert tengd/ur kjarnanum í þér sköpuninni ferðu í annað ástand innra með þér heldur en þegar þú ert á sjálfstýringu.
Þá er einhver gerjun í gangi, eitthvað svolítið spennandi og ánægjulegt sem fær þig mögulega til að gleyma stað og stund í verkinu sjálfu 🌟 meira um þetta í síðasta kaflanum, Flæði 🌊

Það er mjög áhugavert að skoða hvernig fólk tengir við orðið sköpun og það að vera skapandi, en það er mjög mismunandi hef ég tekið eftir! Mín tilfinning er sú að mjög margir tengi lítið við orðið einfaldlega af því að þeir eru ekki mikið með hljóðfæri eða pensil við hönd. Ég hef meira að segja heyrt fólk algjörlega þvertaka fyrir það að vera skapandi en svo þegar vel er að gáð eru fullt af skapandi verkefnum í gangi sem þau hafa einfaldlega ekki gert sér grein fyrir að flokkist þar undir. Það er eins og hugsunin sé sú að sköpun sé einhvern vegin frátekin og bundin við örfáar greinar og þá sem kjósa að gera listgreinar að ævistarfi sínu. Sem betur fer er til fjöldi fólks sem gerir það, við værum svo mikið fátækari án listarinnar og ég bara get hreinlega ekki ímyndað mér lífið án hennar 🩵 - en það er líka gott að muna það að við erum öll í kjarna okkar skapandi verur.

Við erum í það minnsta öll að skapa okkar eigið líf á hverju andartaki og það eru líka fullt af þáttum innan dagsins hjá hverju og einu okkar sem geta kallað fram okkar innri listamann eða listagyðju, hversu stóran part af okkur sem hann/hún/það fyllir 🌱🌿🌳

Gleymdu ekki þínum skapandi kjarna, hann er uppspretta krafts og lífsfyllingar sem þú vilt ekki missa af að njóta í þínu lífi - ég lofa 🥰

27/01/2026

Í fyrsta tíma námskeiðsins sem hófst í síðustu viku ræddum við og spáðum í styrkleika. Þessa ólíku innri krafta og persónueinkenni sem við berum öll, hvert og eitt á okkar einstaka hátt. Ég trúi því að við viljum innst inni alltaf vera séð fyrir það góða sem í okkur býr, sama hvaða nafni það nefnist og sama hvað við erum gömul. Að þessir innri kraftar okkar birtist bæði okkur sjálfum og umheiminum á fallegan hátt og í góðu jafnvægi.

Þá er samt ekki þar með sagt að það sé endilega einfalt, alls ekki! Lífið er ein stór æfing í alls konar og þar með talið beitingu á styrkleikum. Okkur líður almennt vel þegar við nýtum t.a.m. góðvildina, heiðarleikann, seigluna, samskiptahæfnina, forvitnina, dómgreindina, leiðtogahæfileikann, þakklætið, húmorinn eða hugrekkið á góðan hátt, svo til mikils er að vinna.

Stundum hittum við fljótt á hinn allra besta stað - og stundum þurfum við að prófa okkur áfram á hinum ýmsu stöðum, á alls konar mismunandi hátt áður en fundið er út að lokum hvar og hvernig best megi rækta eigin styrkleika svo þeir blómstri til fulls 💛🌼 Æfingin skapar meistarann!

Vertu sjálffræðingur styrkleikaspil eru frábært verkfæri í þessu samhengi. Ný prentun er væntanleg í hús í byrjun febrúar, sendu línu og fáðu stokk sendan til þín um hæl 💫

Photos from Hlín Markþjálfun's post 23/01/2026

Góða helgi 🥰🌹

- mæli alltaf með að renna í gegnum VIA prófið ef mann langar að opna á styrkleikapælingar - viacharacter(punktur)org

Frítt próf sem gefur góða innsýn í þína ríkjandi styrkleika 🌟

19/01/2026

Langar þig að setja sjálfa/n þig í brennidepil um stund? 👁️🌸✨

.og spá í eftirfarandi þætti í eigin fari:
⭐️ Styrkleikar
⭐️ Sköpun
⭐️ Sjálfstraust
⭐️ Framtíð
⭐️ Frelsi
⭐️ Flæði

Engar forkröfur, þú tekur þetta á þinni dýpt og á þínum forsendum. Til staðar er góð umgjörð, fræðsla og stuðningur, ásamt krefjandi spurningum um þig - til þín 💖

Byrjum nýtt netnámskeið núna á miðvikudaginn!
Hafðu samband,
[email protected]

Photos from Hlín Markþjálfun's post 14/01/2026

Ert þú ekki örugglega að vinna með þína styrkleika? 💛

Við förum vel í umræðu um styrkleika, eða skapgerðarstyrkleika eins og þeir eru nefndir í jákvæðu sálfræðinni, á námskeiðinu Sjálfsþekking - leið til lífs í flæði.

Við erum að tala um þetta sem við nefnum stundum í daglegu tali karaktereinkenni, en öll höfum við þau einhver að bera og öll þurfum við að læra að vinna með þau.

Þetta eru sterkir kraftar innra með okkur sem geta fleytt okkur kröftuglega áfram í átt að draumum okkar og markmiðum, en þeir geta þó einnig haldið aftur af okkur á ákveðnum sviðum.

Það er því gott að hafa vakandi eftirtekt á þeim og vinna helst markvisst með eigin sterkustu krafta svo þeir lyfti manni upp frekar en dragi niður. Miklu skemmtilegra 💗

Og já, þú ert gangandi tímalaus klassík - bara svona ef þú skyldir vera búin/n að gleyma því 😉✨

💻🧡📒🖊️
Nýtt fjarnámskeið hefst á miðvikudaginn í næstu viku, endilega hafðu samband ef þig langar að vera með - er að byrja að senda út bækur fyrir námskeiðsbyrjun!
Áshildur

11/01/2026

Nýtt ár - ný námskeið ✨

👉 Væri gott fyrir þig að hefja árið á heiðarlegan, jákvæðan og uppbyggilegan hátt?

👉 Pæla aðeins í þínum einstöku styrkleikum?

👉 Gera góða athugun á sjálfstrausti þínu og finna út hvernig þú vilt raunverulega hafa það?

👉 Skilja betur hvernig þú kemst í þitt flæði?

Þetta og svo margt, margt fleira förum við saman yfir á s*x vikna fjarnámskeiði sem hefst miðvikudaginn 21. janúar kl. 10.30-12 á Zoom.

Lítill hópur, gott andrúmsloft og fullur trúnaður.
Endilega kíktu á umsagnir á heimasíðu sjalfsthekking.is og/eða hafðu samband við mig fyrir nánari upplýsingar.

Námskeiðið er byggt á grunni markþjálfunar, jákvæðrar sálfræði og kennslu, 100 bls. vinnubók fylgir námskeiðinu 📒

Námskeiðið er opið öllum, nýtanlegt hjá ýmsum stéttarfélögum sem og á skrá hjá VIRK starfsendurhæfingu.

Skráning hafin, örfá pláss enn laus 💛
Hlý kveðja, Áshildur

09/01/2026

Velkomin í markþjálfun á nýju ári! 💫

Árið 2026 er ár eldhestsins í kínversku stjörnuspekinni sem táknar mikla orku og frelsisþörf, umbreytingu og framfarir.
Þessi sjaldgæfa samsetning hestsins og eldsins færir okkur þannig aukna ástríðu í hjarta sem og öflugan drifkraft til breytinga þar sem þeirra er þörf. Þetta er ár hugrekkis og djörfungar, en samhliða slíkum kröftum er líka gott að finna fyrir sterkri jarðtengingu og vakandi meðvitund í hverju skrefi.

Þetta hljómar fyrir mér eins og lýsing á góðri markþjálfun ❤️‍🔥

Ég ætla sjálf að nýta mér þennan meðbyr til góðra verka og hvet þig einlægt til þess sama 🐎

Hafðu samband ef þú finnur kallið innra með þér, er með viðtöl bæði á Zoom og á höfuðborgarsvæðinu 🔥🐴
Hlý kveðja,
Áshildur

08/10/2025

Þetta eru svo góð skilaboð 💚

Allt hefur sinn tíma og sú samfélagsklukka sem hvert samfélag hefur myndað sér er engin algild regla um það hvenær hlutir skulu eiga sér stað.

Rífðu þig frá tékklistanum og tímalínunni og finndu frelsið í því að gera hlutina þegar þér hentar ❤️‍🔥🪽

12/08/2025

Í næstu viku hefst glænýtt 6 vikna námskeið þar sem við förum saman í gegnum þessa bók:

Sjálfsþekking - leið til lífs í flæði 💫

Námskeiðið er byggt á kenningum og aðferðum jákvæðrar sálfræði og markþjálfunar, en þessi vinnubók inniheldur marga góða fróðleiksmola þaðan og teflir jafnframt fram dýrmætum spurningum fyrir þig að svara.

Markmið mitt er að þú útskrifist af námskeiðinu sáttari og ánægðari með þig, sem og þú hafir öðlast aukna vitund um þitt eigið ágæti og hvert þig langar helst að stefna í lífinu 💚

Velkomið að hafa samband fyrir meiri upplýsingar, við verðum á miðvikudögum frá kl. 10.30-12 á bókasafni Kópavogs.

Netnámskeið er einnig á döfinni, endilega hafðu samband ef þú hefur áhuga á slíku í haust 😊

Bestu kveðjur!
Áshildur
[email protected]

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Ljósaberg 48
Hafnarfjörður
220