mflhaukarkvk

mflhaukarkvk

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from mflhaukarkvk, Professional Sports Team, Hafnarfjörður.

04/06/2022

🔥 L E I K D A G U R 🔥
⚽️ HAUKAR - HK
🔴 Lengjudeild kvenna
🏟 Ásvellir
⏰ Klukkan 13
🍔 Geggjaðir hamborgarar frá Kjötkompaní

🔴 MÆTUM SNEMMA, FYLLUM ÁSVELLI OG HVETJUM HAUKA TIL SIGURS 🔴

20/05/2022

⚽️ HAUKAR - FYLKIR
🔴 Lengjudeild kvenna
🏟 Ásvellir
⏰ Föstudaginn 20.maí kl 19:15
🍔 Geggjaðir hamborgarar

🔴 MÆTUM Í RAUÐU OG HVETJUM HAUKA TIL SIGURS 🔴

05/05/2022

Íslandsmótið hefst í dag🥳🔥
⚽️ HAUKAR - FH
🍔 Hamborgarar á grillinu
Sjáumst á vellinum ❤️
ÁFRAM HAUKAR

🎟 Miðasala í Stubb og við innganginn. Einnig er hægt að kaupa ársmiða á frábæru verði í Stubb. Frítt inn fyrir Hauka í horni, iðkendur og börn 17 ára og yngri.

29/04/2022

GEGGJAÐUR 3-0 sigur á Fylki í Mjólkurbikarnum💥⚽️💪🏼

29/04/2022

MJÓLKURBIKAR Í KVÖLD🤩 hlökkum til að sjá ykkur í Árbænum! Áfram Haukar❤️

06/03/2022

Mikaela Nótt hefur undanfarna viku æft á Marbella á Spáni með LSK kvinner ⚽️🥳 Í dag kom hún við sögu í æfingaleik gegn Stabæk og fór LSK með 2-1 sigur af hólmi 🤩

05/02/2022

Kaldur en skemmtilegur leikur í gær á móti Þór/KA. Leikurinn fór 1-1 og skoraði eftir flotta stoðsendingu frá 🤩
Næsti leikur er fyrsti í Lengjubikarnum á móti HK þann 24.feb. 🤠

24/11/2021

😍😍😍😍

Anna Rut, Guðrún Inga, Ragnheiður og Rut semja við knattspyrnudeild Hauka

Fjórir leikmenn í 3. flokki kvenna hafa skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka til næstu þriggja ára en þær hafa verið valdar í yngri landslið síðustu misserin og fengið tækifæri til að æfa með meistaraflokki kvenna. Um er að ræða leikmenn sem eru hluti af stórum og efnilegum 2006 og 2007 árgöngum í knattspyrnudeild Hauka.

Anna Rut Ingadóttir er fædd árið 2006 og spilar jafnan sem hafsent en hún spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki á síðasta tímabili í Lengjudeildinni. Anna var í síðasta úrtaki U16 ára landsliðs kvenna.

Guðrún Inga Gunnarsdóttir er fædd árið 2006 og spilar jafnan sem hægri kantur. Hún var einnig í síðasta úrtaki U16 ára landsliðs kvenna og kom inn á í æfingaleik með meistaraflokki gegn KR á dögunum þar sem hún átti góðan leik.

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir er fædd árið 2007 og spilar jafnan sem framherji. Hún hefur fengið sín fyrstu tækifæri á æfingum með meistaraflokki í haust og kom inn á í sínum fyrsta leik gegn KR á dögunum þar sem hún skoraði eitt mark í 3-1 sigri, enn aðeins 13 ára gömul. Ragnheiður var í síðasta úrtaki U16 ára landsliðs kvenna.

Rut Sigurðardóttir er fædd árið 2007 og spilar sem miðjumaður. Hún hefur einnig fengið sín fyrstu tækifæri með meistaraflokki í haust og var í síðasta úrtaki U15 ára landsliðs kvenna.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar samningum við þær Önnu, Guðrúnu, Ragnheiði og Rut.

Mynd fv. Rut, Ragnheiður, Anna og Guðrún

Ljósm. Hulda Margrét ljósmyndari / photography

13/11/2021

Emily Armstrong hefur undirritað nýjan samning við knattspyrnufélag Hauka og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni á næsta tímabili 😍🤝

Emily er 28 ára markmaður og lék með Haukum á síðasta tímabili þar sem hún stóð sig mjög vel en hún er frá Bandaríkjunum. Þá lék hún með ÍBV í Pepsídeildinni 2018 þannig að hún er orðin mikill Íslandsvinur. Hún hefur einnig leikið í Svíþjóð í næst efstu deild þar, WPSL deildinni í USA og efstu deild í Noregi.

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir segir þetta vera frábær tíðindi. ,,Emily er mjög góður markvörður og því lögðum við ríka áherslu á að semja aftur við hana og þá er hún frábær manneskja sem fellur vel inn í hópinn.“

Að sögn Jónu á að styrkja hópinn enn frekar. ,,Við erum að leita að leikmönnum í ákveðnar stöður og karakterum sem passa vel með okkar ungu og efnilegum leikmönnum enda er það okkar markmið að búa til öflugt og skemmtilegt lið.“

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagna nýjum samningi við Emily.

Ljósm.

12/11/2021

❤️‍🔥❤️‍🔥❤️‍🔥

Emily Armstrong hefur undirritað nýjan samning við knattspyrnufélag Hauka og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

Emily er 28 ára markmaður og lék með Haukum á síðasta tímabili þar sem hún stóð sig mjög vel en hún er frá Bandaríkjunum. Þá lék hún með ÍBV í Pepsídeildinni 2018 þannig að hún er orðin mikill Íslandsvinur. Hún hefur einnig leikið í Svíþjóð í næst efstu deild þar, WPSL deildinni í USA og efstu deild í Noregi.

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir segir þetta vera frábær tíðindi. ,,Emily er mjög góður markvörður og því lögðum við ríka áherslu á að semja aftur við hana og þá er hún frábær manneskja sem fellur vel inn í hópinn.“

Að sögn Jónu á að styrkja hópinn enn frekar. ,,Við erum að leita að leikmönnum í ákveðnar stöður og karakterum sem passa vel með okkar ungu og efnilegum leikmönnum enda er það okkar markmið að búa til öflugt og skemmtilegt lið.“

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagna nýjum samningi við Emily.

Ljósm. Hulda Margrét ljósmyndari / photography

Photos from mflhaukarkvk's post 08/11/2021

Uppskeruhátíð knattspyrnufélag Hauka árið 2021 fór fram í lok tímabils og voru veitt verðlaun fyrir efnilegasta og besta leikmann mfl kvk, kosið af leikmönnum liðsins❤️🤩

Mikaela Nótt var valin efnilegasti leikmaðurinn 2021 🤩🥳❤️

Hildur Karítas var valin besti leikmaðurinn 2021 😍🤩 jafnframt var Hildur valin knattspyrnu kona Hauka (valið af þjálfurum og stjórn)❤️

Innilega til hamingju stelpur ❤️🤝
📸

07/11/2021

Nýtt teymi🤩🥳
“Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Katrín Ómarsdóttir hafa gert samning við knattspyrnudeild Hauka um þjálfun meistaraflokks kvenna fyrir komandi tímabil. Þá verður Agnes Þóra Árnadóttir styrktarþjálfari liðsins.

Guðrún Jóna var þjálfari meistaraflokks kvenna á síðasta tímabili en hún hefur starfað innan knattspyrnudeildar Hauka síðan haustið 2017. Hún spilaði tæplega 200 leiki með meistaraflokk KR og á að baki 25 A landsleiki en hún hefur m.a. þjálfað meistaraflokka KR, FH og Þróttar R. Jóna mun áfram sinna afreksæfingum innan Hauka þannig að hún þekkir vel til ungra og efnilegra leikmanna félagsins.

Katrín kemur ný inn í teymið en hún býr yfir afar mikilli reynslu sem leikmaður og þá var hún í þjálfarateymi KR á síðustu leiktíð. Hún á að baki 189 leiki með meistaraflokki KR þar sem hún skoraði 57 mörk auk þess sem hún spilaði 69 A landsleiki og skoraði 10 mörk. Þá spilaði hún með Orange CW í Bandaríkjunum, Kristianstad í Svíþjóð og Liverpool þar sem hún varð m.a. enskur meistari. Katrín mun eins og Jóna vera með sérstakar afreksæfingar.

Agnes Þóra kemur einnig ný inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna sem styrktarþjálfari liðsins og næringafræðingur en hún á að baki 177 leiki með meistaraflokki, flesta með KR og Þrótti R. Agnes er Master of Sports Nutrition frá University of Colorado og hefur m.a. lokið starfsnámi við styrktarþjálfun þróttamanna. Hún var þjálfari hjá Toppþjálfun þar sem hún var með meistaraflokk kvenna hjá Þrótti og þá hefur hún þjálfað yngri flokka í knattspyrnu.

Halldór Jón Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Hauka, segir að stjórn knattspyrnudeildar bindi miklar vonir við þær Jónu, Katrínu og Agnesi. ,,Okkar markmið er skýrt. Við ætlum að vera með öflugt lið á næsta tímabili sem mun berjast um að komast í deild þeirra bestu. Við ætlum okkur að styrkja liðið með ákveðnum leikmönnum og viljum m.a. fá reynslubolta og góða karaktera sem miðla áfram til okkar yngri leikmanna.”
Ljósm. Brynjólfur Jónsson

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Hafnarfjörður
220