09/01/2026
🏃♀️ Hreyfing, heilsa og félagsskapur fyrir 60+
Við eigum nokkur laus pláss á námskeiðið okkar á vorönn 2026.
📩 Hafðu samband og fáðu að kíkja á prufuæfingu eða skráðu þig hér: https://www.abler.io/shop/fh/frisk
12/11/2025
🌿 Frábær mæting og ánægja með fræðslu um næringu 🌿
Við viljum færa öllum sem mættu á fræðslufyrirlesturinn um næringu í Hraunseli innilegar þakkir fyrir komuna og frábæra þátttöku!
Fyrirlesturinn fór fram fimmtudaginn 23. október og var haldinn af Agnesi Þóru Árnadóttur, næringarfræðingi (BSc í næringarfræði, MSc í íþróttanæringarfræði).
Agnes fór yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan og deildi fjölmörgum hagnýtum ráðleggingum sem þátttakendur geta nýtt í daglegu lífi.
Það var frábær mæting og mikil ánægja með fyrirlesturinn – gestir tóku virkan þátt, spurðu spurninga og sköpuðu líflega og skemmtilega stemningu.
Við þökkum Agnesi Þóru kærlega fyrir fræðandi og hvetjandi erindi – og öllum sem mættu fyrir áhugann og góða samveru.
Fræðslufyrirlesturinn var haldinn í samstarfi við Frísk í FH, Hafnarfjarðarbæ og Félag eldri borgara í Hafnarfirði (FEBH).
📸 Sjá mynd frá viðburðinum hér að neðan📸
20/10/2025
🌿 Fræðslufyrirlestur um næringu 🌿
Við bjóðum íbúa Hafnarfjarðar, 60 ára og eldri, velkomna á fræðslufyrirlestur um næringu með Agnesi Þóru Árnadóttur, næringarfræðingi (BSc í næringarfræði, MSc í íþróttanæringarfræði).
📍 Hraunseli, Flatahrauni 3, 220 Hafnarfjörður
📅 Fimmtudaginn 23. október
🕐 Kl. 13:00
Á fyrirlestrinum verður farið yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan, og þátttakendur fá hagnýtar ráðleggingar sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi.
Eitt af markmiðum okkar er að stuðla að auknu heilsulæsi þátttakenda og annarra íbúa Hafnarfjarðar – því þekking á eigin heilsu og næringu er lykillinn að betri lífsgæðum.
Fræðslufyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Frísk í FH, Hafnarfjarðarbæ og Félag eldri borgara í Hafnarfirði (FEBH).
✨ Við hvetjum alla til að mæta, hlusta, spyrja spurninga og taka þátt í fræðandi og skemmtilegri samveru.
25/07/2025
Skráning er hafin fyrir haustönn 2025.
Villt þú vera hluti af skemmtilegum hóp og æfa undir handleiðslu fagmenntaðs þjálfara? Þá gæti Frísk í FH verið eitthvað fyrir þig.
Frísk í FH er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri. Starfsemi Frísk í FH er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2x í viku, fyrir hádegi á miðviku- og föstudögum.
Haustönn stendur yfir frá 18. ágúst- 19. des 2025.
Skráning fer fram hér: https://www.abler.io/shop/fh/frisk?country=IS
Ef þig vantar aðstoð við skráningu ekki hika við að hafa samband hér eða í gegnum netfangið [email protected]
03/02/2025
Hefur þú áhuga á að vera hluti af skemmtilegum æfingarhóp fyrir einstaklinga 60 ára og eldri?
Við eigum en nokkur laus pláss í hópnum okkar sem æfir klukkan 08:45 á miðvikudögum og föstudögum. Við hvetjum alla áhugasama um að hafa samband en velkomið er að prófa æfingu.
Hægt er að hafa samband hér á facebook eða á netfangið [email protected]
Frísk í FH er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu FH. Starfsemin er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á að stuna líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara.
02/01/2025
Villt þú vera hluti af skemmtilegum æfingahóp fyrir einstaklinga 60 ára og eldri?
Frísk í FH er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu FH
Starfsemi Frísk í FH er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara.
Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2X í viku, fyrir hádegi á miðvikudögum og föstudögum kl 08:45, 09:30 eða 10:15.
Vorönn stendur yfir frá 8.janúar - 6.júní 2025 og fyrir þá sem vilja tryggja sér pláss þá höfum við opnað fyrir skráningu hér https://www.abler.io/shop/fh/frisk
Hægt verður að koma og prófa æfingar fyrstu vikuna í janúar en gott væri að fá að vita af því með því að senda okkur póst á [email protected] eða hér á facebooksíðu verkefnisins.
Annars viljum við óska öllum gleðilegrar hátíðar og hlökkum til að hefja næstu önn af krafti á nýju ári.
Hlökkum til að sjá ykkur 😀
27/12/2024
Villt þú vera hluti af skemmtilegum æfingahóp fyrir einstaklinga 60 ára og eldri?
Frísk í FH er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu FH
Starfsemi Frísk í FH er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara.
Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2X í viku, fyrir hádegi á miðvikudögum og föstudögum kl 08:45, 09:30 eða 10:15.
Vorönn stendur yfir frá 8.janúar - 6.júní 2025 og fyrir þá sem vilja tryggja sér pláss þá höfum við opnað fyrir skráningu hér https://www.abler.io/shop/fh/frisk
Hægt verður að koma og prófa æfingar fyrstu vikuna í janúar en gott væri að fá að vita af því með því að senda okkur póst á [email protected] eða hér á facebooksíðu verkefnisins.
Annars viljum við óska öllum gleðilegrar hátíðar og hlökkum til að hefja næstu önn af krafti á nýju ári.
Hlökkum til að sjá ykkur 😀
Abler | Shop
13/08/2024
Kynningarfundur klukkan 13:00 á morgunn í veilsusalnum Sjónarhóli í Kaplakrika. Ef þú villt skrá þig fyrir fundinn er það hægt hér: https://www.abler.io/shop/fh/frisk
Hlökkum til að sjá ykkur :)
01/08/2024
Frísk í FH verður með kynningarfund miðvikudaginn 14.ágúst klukkan 13:00 í veislusal FH, Sjónarhól. Hvetjum þá sem hafa áhuga að kíkja til okkar og kynna sér starfsemina.
Haustönn hefst miðvikudaginn 21.ágúst af fullum krafti 🙂
Búið er að opna fyrir skráningar og hvetjum við alla sem vilja tryggja sér pláss að skrá sig sem fyrst en einnig verður hægt að skrá sig að kynningarfundi loknum.
Skráning fer fram hér https://www.abler.io/shop/fh/frisk
Ef það eru einhverjar spurningar endilega sendið á okkur póst á netfangið: [email protected]
Hlökkum til að sjá ykkur :)
Frísk í FH
Frísk í FH er verkefni sem miðar að heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri innan íþróttafélagsins FH. Markmið verkefnisins er að bæta líkamlega, félagslega og andlega heilsu þátttakenda.
Skráning hér: https://www.abler.io/shop/fh/frisk
27/06/2024
Mynd frá síðustu æfingu á vor námskeiðinu hjá okkur. En á fyrsta námskeiði voru tæplega 40 þátttakendur. Námskeiðið var 12 vikur og voru framkvæmdar líkamlegar mælingar í upphafi og lok námskeiðs. Mælingarnar eru staðlaðar og hluti af prófi sem kallast "the senior fitness test". Niðustöður hópsins voru fram úr björtustu vonum stjórnenda og langaði okkur því að deila með ykkur meðaltölum hópsins.
Þol jókst um 14% að meðaltali á tímabilinu.
Styrkur í efri líkama jókst um 35% á tímabilinu.
Styrkur í neðri líkama jókst um 36% á tímabilinu.
Kæru þátttakendur takk kærlega fyrir þetta fyrsta námskeið og við hlökkum til að taka á móti ykkur aftur í haust 🥰
Skráning á haustnámskeiðið sem byrjar 21 ágúst er hafin og fer skráning fram hér: https://www.abler.io/shop/fh/frisk
Ef það eru einhverjar spurningar endilega sendið á okkur á netfangið: [email protected]
21/03/2024
Glæsilegir þátttakendur hjá okkur 🤩
3 vika farin af stað 💪🏼