06/08/2026
BMX æfingar
Brettafélag Hafnarfjarðar og BMXbrós bjóða upp á BMX æfingar fyrir byrjendur og lengra komna. Æfingar fara fram í nýjum húsakynnum félagsins að Selhellu 7 í Hafnarfirði.
Þjálfara á BMX æfingum eru BMXbrós þeir Anton, Benni,Maggi og síðan verður Bjarki með þeim líka :)
Fyrsta æfing 2.sept
Loka æfing 9.des
Æfingar á Miðvikudögum frá 17:00-22:00
Skipt verður í 2-3 hópa og hver æfing er 90mín
Hægt að nota frístundastyrki frá sveitarfélögum og hægt að skipta greiðslum í 3 hluta.
Einnig er 10% systkinaafsláttur
Einnig verða mikið af skemmtilegum viðburðum í vetur t.d. halloween fjör, litlu jól BFH og fleiri skemmtilegar uppákomur.
Við hlökkum gríðarlega mikið til komandi vetrar/vor og viljum minni á að það eru takmörkuð pláss á æfingar
05/08/2026
Brettafélag Hafnarfjarðar býður upp á hjólabrettaæfingar fyrir byrjendur og lengra komna.
Æfingar fara fram í húsakynnum félagsins að Selhellu 7 í Hafnarfirði.
Skráning opnar 1.ágúst
Fyrsta æfing 3.sept
Loka æfing 17.des
Æfingar á mánudögum 17:00-22:00 og fimmtudögum 17:00-22:00
Skipt verður í 4 hópa. Æfingar hjá 2012 og yngri eru í 60mín en hjá 2011 og eldri í 90 mín
Hægt að nota frístundastyrki frá sveitarfélögum og hægt að skipta greiðslum í 4 hluta.
Einnig er 10% systkinaafsláttur
Einnig verða mikið af skemmtilegum viðburðum í vetur/vor t.d. Halloween skate, BFH-mót, litlu jól BFH og aðrir viðburðir
Við hlökkum gríðarlega mikið til komandi vetrar og viljum minni á að það eru takmörkuð pláss á æfingar, og gaman að segja frá því að aðsókn á sumarnámskeið BFH og æfingar á liðinni haustönn var mjög mikil, það var fullt á öll námskeið í sumar og vor 2026
Alltaf hægt að hafa samband með því að senda póst á [email protected]
29/07/2026
Við byrjum aftur með sumarnámskeið 4.ágúst
Skráning og allar upplýsingar: www.BFH.is
10/06/2026
Ný styttist í fyrstu námskeið sumarsins. Fullt er á fyrstu 6 námskeið sumarsins og góð skráning á önnur námskeið. Ef þú vilt vera með þá er skráning inn á: www.BFH.is
02/06/2026
Opið hús í sumar :) svona verður þetta hjá okkur í sumar, ath ef veður er gott munum við tilkynna lokun samdægurs og hvetjum ykkur til að leika úti :)
20/04/2026
Snjóbrettamót Íslands 18.4.26
09/04/2026
Brettafélag Hafnarfjarðar býður upp á hjólabrettanámskeið fyrir byrjendur og lengra komna í allt sumar. Námskeiðið fer fram í glæsilegustu hjólabretta aðstöðu landsins í húsakynnum félagsins að Selhellu 7 í Hafnarfirði.
Krökkunum verður skipt upp í hópa eftir aldri og getu. Farið verður yfir grunnatriði hjólabrettaiðkunar en einnig verður þeim sem lengra eru komnir leiðbeint í flóknari æfingum. Þegar veður er gott er farið með hópana út á hjólabretti.
Hægt að fá búnað til láns.
Markmið námskeiðanna:
• Kynna hjólabrettaíþróttina fyrir stelpum og strákum á aldrinum 6 til 13 ára
• Hafa gaman saman á hjólabretti
• Læra grunnatriði á hjólabretti
• Kynnast hjólabrettasiðum á hjólabrettasvæðum
• Fyrir lengra komna, æfa flóknari æfingar
Námskeið bæði fyrir og eftir hádegi. 09:00-12:00/ 13:00-16:00
Fyrsta námskeið sumarsins er 15.júní