15/06/2026
Máttarstólpamót knattspyrnudeildar Hauka í golfi fór fram í síðustu viku. Frábær hópur fyrirtækja, Máttarstólpa, lék við hvurn sinn fingur í einmuna blíðu á Húsatóftavellinum í Grindavík. Að loknum 18 holum hittist hópurinn í veislusalnum á Ásvöllum og átti huggulega kvöldstund í mat og drykk og einhver fór út á Birtuvöllinn og sáu strákana í meistaraflokknum etja kappi við Húnvetninga. Frábær dagur að baki, með golfmóti sem g*t ekki farið betur af stað og verður án nokkurs vafa um ókomna tíð hjá knattspyrnudeild Hauka.
Auðvitað vorum við svo öll sigurvegarar en þau sem sköruðu fram úr voru í liðakeppni Malbikunarstöðin Höfði og einstaklingskeppninni var það Ingvar Magnússon. Þá fengu ófá útdráttarverðlaun, allt frábærir vinningar frá Prósjoppunni.
Kæru Máttarstólpar takk kærlega fyrir okkur!
📸 Viktor Jónsson
14/06/2026
14/06/2026
12/06/2026
12/06/2026
11/06/2026
11/06/2026