Listdansskóli Hafnarfjarðar

Listdansskóli Hafnarfjarðar

Share

Fjölbreytt, metnaðarfullt og hvetjandi dansnám fyrir allan aldur!

Listdansskóli Hafnarfjarðar býður uppá kennslu í : barnadansi, klassískum ballett, djassdansi, nútímadansi, silki, lyra og dans með foreldrum. Hægt er að leigja salina fyrir ýmsar uppákomur og einnig bjóðum við uppá mismunandi pakka fyrir barna afmæli.

27/08/2025

Fullkomið 5 vikna námskeið fyrir bæði nýja og gamla dansara!

Á námskeiðinu verða kenndar fjölbreyttar dansrútínur með viðeigandi dívustælum ásamt því að styrkja okkur með barre burn styrktaræfingum.

Lofum góðri stemmingu og miklum svita! Frír kynningartími er mánudaginn 1. september 19:30-20:30, skráning í tímann fer fram á [email protected]📩

Kennari námskeiðisins er Rebecca.

Fyrir fullorðna - Listdansskóli Hafnarfjarðar 21/08/2025

Komdu að dansa, salsanámskeið fyrir fullorðna! Hinn vinsæli salsakennari Mike Salsanchez kennir 5 vikna salsanámskeið í LDH fyrir byrjendur sem og lengra komna.

Nýtt námskeið hefst 3. september!

Kennt er 1x í viku á miðvikudagskvöldum.
Salsa 1 milli 19-20 er byrjendanámskeið.
Salsa 2 milli 20-21 er hugsað fyrir þá sem hafa lokið byrjendanámskeiði hér eða annarstaðar eða hafa einhverja dansreynslu.

Við hvetjum bæði pör og einstaklinga að skrá sig!

Mike kemur frá Guatemala og segir dansinn vera í sér blóði borinn í gegnum menninguna þar en ástríðan hans liggur í að kynna dansinn og tónlistina fyrir öðrum, við hlökkum mikið til að fá Mike til okkar!

Nánari upplýsingar varðandi skráningu: listdansskoli.is
Hafðu samband á: [email protected]

Fyrir fullorðna - Listdansskóli Hafnarfjarðar Fjölbreytt dansnámskeið fyrir fullorðna hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar. Í boði eru salsa, svíkudans, loffimleikar.

16/08/2025

Í sumar mættu 250 krakkar á frí sumarnámskeið hjá okkur og biðlistar voru í flesta hópa. Þau lærðu allskonar dansa, leiklist og söng ásamt því að þau héldu sýningar fyrir aðstandendur í lok hverrar viku. Við skemmtum okkur konunglega og þökkum kærlega fyrir sumarið. Minnum á að haustönn hefst 1. september!☀️

Hér er mynd af síðasta 7-9 ára hópnum sem kláraði í gær!

19/07/2025

ÞVÍLÍK BYRJUN FYRIR TEAM LDH Á KEPPNINNI😭🏆 Tvö silfurverðlaun, tvö brons og eitt 4. sæti í mjög sterkum flokkum á Global Dance Open í Birmingham !

Til hamingju elsku nemendur við erum SVO stolt af ykkur❤️

Beasts🥈 í senior large group showdance
danshöfundur: Kata

Atlantis🥈 í intermediate ensamble musical theatre
höfundar: Diljá & Erla

Cinderella🥉 í senior small group show dance
danshöfundur: Kata

Dracula🥉 í intermediate small group showdance
danshöfundur: Baldvin

Walled 4 sæti í senior small group jazz
danshöfundur: Kata

Sara okkar negldi svo song and dance sólóinn sinn Pulled!!!
danshöfundur: Baldvin

ÁFRAM TEAM LDH🥹

Photos from Hafnarfjarðarbær's post 21/05/2025

Fengum skemmtilega heimsókn í skólann!

Photos from Listdansskóli Hafnarfjarðar's post 21/05/2025

Nokkrar skemmtilegar myndir frá MAMMA MÍA vorsýningunni okkar sem var í Borgarleikhúsinu 1. maí✨🪩🩶

Photos from Listdansskóli Hafnarfjarðar's post 24/02/2025

Frábær DWC keppnishelgi að baki í Borgarleikhúsinu! Öll atriðin okkar komin áfram og við að rifna úr stolti af glæsilegu nemendunum okkar🌟

Til hamingju öll, hlökkum til að halda þessu ferðalagi áfram saman! Næst er það undankeppni í maí🩶

13/01/2025

VORÖNN HEFST Í DAG❤️‍🔥 Það er frí prufuvika hjá okkur þessa vikuna! Við bjóðum nýnema velkomna að prófa og hvetjum þá til að hafa samband við skrifstofu skólans uppá hvaða hóp þau fara í. Einnig hvetjum við núverandi nemendur til að nýta vikuna í að prófa allskonar valfög!

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.
💌 [email protected]

30/12/2024

KRAKKASKAUPIÐ 2024💫🪩 Nokkrir dansarar frá okkur fengu það frábæra tækifæri að dansa í krakkaskaupinu í ár, við erum svo stolt af ykkur stelpur!

Takk kærlega fyrir okkur & 💥

Viljum nýta tækifærið og óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka kærlega fyrir 2024, við hlökkum til að skapa fleiri skemmtilegar minningar saman 2025. Nú styttist í að næsta önn hefjist en hún er stútfull af skemmtilegheitum og endar á vorsýningu í Borgarleikhúsinu🙌

Dansarar: Elín Dögg, Andrea Gyða, Ísól Erna, Brynja & Kolbrún Erla.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Helluhraun 14-16
Hafnarfjörður
220