Siglingaklúbburinn Þytur

Siglingaklúbburinn Þytur

Share

Siglingaklúbburinn Þytur er staðsettur við Strandgötu 88 í Hafnarfirði. Klúbburinn býður upp á siglinganámskeið og æfingar fyrir börn og fullorðna

11/06/2026
10/06/2026

abler.io/shop/thytur/1

09/06/2026

Þytur hélt Opnunarmót Kæna 2026 þetta var góður og skemmtilegur dagur, þökkum öllum sem tóku þátt í keppninni og þeim sem komu að keppninni.
myndvinnsla: Thura Z Thordar

Siglingasamband Íslands
Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey
Siglingafélagið Ýmir

29/05/2026

Það er EKKI OPIÐ HÚS á morgun laugardag því að það er mót ⛵️

26/05/2026

Ennþá laus pláss á sumarnámskeiðunum í Þyt ⛵️
Skemmtileg námskeið fyrir 10-16 ára börn þar sem lært er að umgangast sjóinn af ábyrgð og bregðast við síbreytilegum aðstæðum á sjó undir öruggri handleiðslu faglærðra þjálfara 🙌🏻🩵

Skráning fer fram á Abler - https://www.abler.io/shop/thytur/1

Photos from Hafnarfjarðarbær's post 22/05/2026

Alltaf nóg að gera í Þyt og ekkert skemmtilegra en að sjá sumarstarfið ganga í garð 💙🌞⛵️🛶

03/05/2026

Á morgun mánudagskvöld er svokallað bryggjukaffi og eitthvað gott með því hjá Þyt kl 20:00 á seglaloftinu Strandgötu 88. Þau eru á dagskrá fyrstu mánudaga í hverjum mánuði.

Þetta er staður og stund sem er hugsuð fyrir alla sem vilja, en sérstaklega fyrir fólk sem hefur stóra eða litla tengingu við Þyt í gegnum árin með einhverjum hætti til að koma saman, ræða málin og kannski plana eitthvað skemmtilegt. Aðallega þó til að ræða siglingar eða sjóinn vítt og breitt.

Til að fylgjast betur með má skrá sig í þennan hóp: https://www.facebook.com/groups/2277413792776295

Photos from Siglingaklúbburinn Þytur's post 29/04/2026

Þytur fékk til sín í kvöld góða gesti.

Annars vegar hina indversku Vartika Joshi, fyrrum aðstoðarskipherra í indverska sjóhernum. Hún leiddi árið 2017 hinn indverska Navika Sagar Parikrama leiðangur, þar sem s*x indverskar konur sigldu hringinn í kringum jörðina á 254 dögum, en um var að ræða fyrsta slíka leiðangur á vegum asíuríkis sem var eingöngu skipaður konum. Sagði hún frá hringsiglingunni og aðdraganda hennar.

Hins vegar sagði Hjördís Ýrr Skúladóttir, fyrrum formaður MS-félags Íslands stuttlega frá Oceans of Hope Challenge, en það eru sjálfboðaliðasamtök sem fara í siglingar sem eru eingöngu skipaðar fólki með MS-taukasjúkdóminn.

Var þétt setið yfir þessum frábæru fyrirlestrum, á fjórða tug gesta. Þökkum fyrirlesurunum og öllum sem mættu kærlega fyrir.

22/04/2026

Sumardagskráin tekur gildi 3.maí

---

Sumardagskrá 2026
Mánudagar
16:30–19:30 Kænuæfingar fyrir 10 til 18 ára
18:00–22:00 Kænuæfingar fyrir 18 ára og eldri

Þriðjudagar
18:00–22:00 Secret 26 æfingar

Miðvikudagar
16:30–19:30 Kænuæfingar fyrir 10 til 18 ára

Fimmtudagar – Opið hús
17:00–20:00 Secret 26 siglingar
17:00–20:00 Kænur, árabátar, kajakar og SUP bretti

Föstudagar
16:30–19:30 Kænuæfingar fyrir 10 til 18 ára

Laugardagar – Opið hús
10:00–13:00 Secret 26 siglingar
10:00–13:00 Kænur, árabátar, kajakar og SUP bretti

Sunnudagar
16:30–19:30 Kænuæfingar fyrir 10 til 18 ára
11:00–13:00 Samróður á kajak

Stefnt er að námskeiði á gæslubát í sumar eftir áhuga.

Vakin verður athygli á samróðri og Secret 26 siglingum á viðeigandi facebook síðum. Siglingar eru háðar veðri og að skipuleggjandi fáist til að halda utan um.

Siglingar á Secret hefjast síðar í maí.

22/04/2026

Það er opið hús hjá okkur á morgun frá kl.10-13 🌞
Allir velkomnir og einnig þeir sem er vilja hjálpa til með opið hús 💪

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Strandgata 88
Hafnarfjörður
220