Á elliheimilinu var verið að baða Sigga, gamla, sjóara og var fengin til þess stór og stæðileg kona, komin nokkuð við aldur.
Hún drífur sig í verkið og er ekki lengi að.
Á eftir, í kaffipásu segir konan, "vitið þið hvað. Það er tattoverað á tippið á honum Sigga, orðið ADAM. Ég hef bara aldrei vitað annað eins"
Næst þegar baðað var, var þessi kona í fríi svo önnur, og yngri kona, var fengin til verksins.
Í næstu kaffipásu sagði hún.
"Bölvuð vitleysa er þetta í kellingunni. Kann hún ekki að lesa?
Það stendur Amsterdam á tippinu á Sigga, ekki Adam."
RagnarRúnar Brandarahornið
Stýrimaður/Yfirvélstjóri. .
Siggi vinur minn dreymdi eina nóttina töluna 3 á sitt hvorri
rasskinninni. Hann átti það til að vera bergdreyminn.
Hann rauk beint í símann og hringdi í happdrætti Háskóla Íslands
og bað um miða númer 33 og viti menn, hann var til og hann var
fljótur að kaupa hann.
Spenntur beið hann eftir úrdrættinum, og þegar sá dagur rann upp
Þá kom fyrsti vinningur á miða númer 303.
Stína litla var með belju í taumi, þegar hún mætti prestinum
á þjóðveginum.
Presturinn stöðvaði hana og spurði: Hvert ert þú að fara?
Kristín litla.
Ég er að fara með þessa belju til að leiða hana undir naut,
svaraði hún og brosti sakleysislega til prestsins.
Hefði nú ekki verið heppilegra að láta föður þinn um þetta?
spurði prestur og gerðist all strangur á svipinn.
Nei, prestur minn, það verður að vera naut,
svaraði stína undrandi.
Maður hringir í móðursýkiskasti í sjúkrahúsið.
Konan mín er ólétt og hún er kominn
með hríðir.
Er þetta þetta hennar fyrsta barn?
spyr læknirinn.
,,Nei, fíflið þitt,
Þetta er maðurinn hennar,
sagði maðurinn æstur.
Mig bráðvantaði nokkra daga í frí frá vinnu en ég vissi að yfirmaður minn myndi aldrei samþykkja það svo ég ákvað að leika mig sturlaðan og sjá hvort hann myndi ekki gefa mér veikindaleyfi.
Ég hengdi mig því upp í loft á fótunum og hékk þar þegar samstarfsmaður minn (blondína) spurði mig hvað ég væri að gera.
Ég svaraði að ég væri að leika ljósaperu svo yfirmaðurinn myndi senda mig í nokkra daga veikindaleyfi.
Nokkrum mínútum síðar kom yfirmaðurinn, spurði hvað ég væri að gera og ég svaraði að ég væri ljósapera.
Þú ert augljóslega búinn að vinna yfir þig, farðu heim í nokkra daga og hvíldu þig, sagði yfirmaðurinn.
Ég stökk niður og flýtti mér heim.
En þegar samstarfsmaður minn (blondínan) strunsaði út á eftir mér spurði yfirmaðurinn hana auðvitað hvert hún væri að fara?
Ég er líka að fara heim, svaraði hún.
Ég get ekki unnið í þessu myrkri!
Keyptu sér sjónvarp með fjarstýringu.
Farandsölumaður sem var að selja sjónvarpstæki af nýjustu og bestu gerð bankaði uppá hjá Jónasi og Möggu. Hann sýndi þeim tækið sem hann var að selja og m.a. til að sýna þeim hvað fjarstýringin var öflug þá fór hann inn á klósettið og notaði hana þaðan. Það er óþarfi að taka það fram að Jónasi og Möggu leist svo vel á tækið að þau keyptu það strax.
Núna finnst þeim mjög gaman að horfa á 50 tommu sjónvarp í lit, dólbí steríó, surránd hljóði og hvað sem nöfnum tjáir að nefna. Það eina sem fer í taugarnar á þeim er að þurfa að fara inn á klósett til að skipta um rás.
Rússi, Amríkani og íslendingur hittust á kaffihúsi og voru að spjalla saman.
Allt í einu hrópaði Rússinn:
Þegar öll skipinn leggja samtímis úr höfn hjá okkur þá sést ekki í sjóinn.
ÞÚ LÝGUR ÞVÍ segir Íslendingurinn.
Rússinn: Ég segi það ekki kannski smá bil á milli þeirra.
Þá segir Amríkaninn: Þegar flugflotinn hjá okkur fer á loft þá sést ekki í himininn.
ÞÚ LÝGUR ÞVÍ segir Íslendingurinn.
Amríkaninn: Ég segi það ekki kannski smá bil á milli þeirra.
Íslendingurinn brosti og svaraði um hæl, þegar ég tók hann vininn út um daginn þá settust tólf hrafnar á vininn.
ÞÚ LÝGUR ÞVÍ sögðu Rússinn og Amrikaninn í kór.
Ég segi það ekki,
kannski smá bil á milli þeirra
Voruð þið búin að heyra um gaurinn sem ákvað að fara á grímuball. Efri hlutinn af búningnum var klukka og sá neðri jarðarber.
Þegar hann mætti á svæðið spurði fólk furðu lostið
hvað hann væri eiginlega.
"Nú úr að ofan, ber að neðan" var svarið!
Pervisinn fastagestur á Enska barnum í Austurstræti sat í sínu hefðbundna sæti eitt kvöldið í vikunni og öll önnur sæti voru setin líka. Þá kom inn spengilegur og vöðvastæltur maður sem sýnilega var í góðri þjálfun. Hann gekk að fastagestinumm og heimtaði að hann stæði upp og léti eftir sætið, en sá fyrrnefndi neitaði. Sá vöðvastælti sló fastagestinn eldsnöggt og sagði þetta var shotokan-karate högg frá Kóreu. Fastagesturinn stóð upp, hristi hausinn en settist svo niður aftur. Þá sló sparkaði sá vöðvastælti í hann og sagði, þetta var kung-fu spark frá Kína. Fastagesturinn stóð aftur upp, hristi sig og settist svo niður aftur. Þá tók sá vöðvastælti sig til, stökk upp í loftið, sparkaði með tilþrifum í fastagestinn og sagði, þetta var karate-hringspark frá Japan. Fastagesturinn stóð þá upp, hristi hausinn og gekk út. Sá vöðvastælti settist niður, en á að giska 45 mínútum síðar gekk fastagesturinn inn og rakleiðis að þessum vöðvastælta.
Örlítill þytur heyrðist og skyndilega lá sá vöðvastælti rotaður í gólfinu.
Fastagesturinn settist þá í sætið sitt og sagði,
þetta var kúbein frá BYKO!
Suma hluti er ekki hægt að útskýra.
Bóndi situr á þorpsbarnum og er frekar fullur, þegar maður kemur inn og spyr bóndann; "Hei, af hverju situr þú hérna á þessum fallega degi útúrdrukkinn?"
Bóndinn: "Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra"
Maðurinn: "Nú hvað gerðist svona rosalegt?"
Bóndinn:"Nú ef þú þarft að vita það... Í dag var ég að mjólka kúnna mína og sat við hliðina á henni. Um leið og fatan varð full, sparkaði beljan fötunni niður með vinstri fætinum.
Maðurinn: "Nú það er ekki svo rosalegt, hvað er svona mikið mál við það?
Bóndinn: "Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra"
Maðurinn: "Nú hvað gerðist næst?"
Bóndinn: "Ég tók vinsti fót hennar og batt hann við stólpann á básnum með reipi. Svo settist ég niður og mjólkaði. Um leið og fatan var að verða full. Sparkaði beljan í hana með hægri fætinum og velti henni líka.
Maðurinn: "Aftur?"
Bóndinn: "Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra"
Maðurinn: "Hvað gerðirðu þá?"
Bóndinn: "Ég tók þá hægri fótinn og batt hann líka við stólpa á básnum."
Maðurinn: "Og hvað gerðirðu þá?"
Bóndinn: "Ég settist niður og hélt áfram að mjólka hana, og um leið og fatan var að verða full þá velti helvítis beljan fötunni niður með halanum..."
Maðurinn: "Vá þú hlýtur að hafa verið orðið pirraður þá?"
Bóndinn: "Suma hluti er bara ekki hægt að útskýra"
Maðurinn: "Og hvað gerðirðu næst?"
Bóndinn: "Sko...ég hafði ekki meira reipi svo ég tók af mér beltið og batt þannig halann á henni upp. Akkúrat þá, duttu niður buxurnar mínar niður og konan mín gekk inn."
þegar ég fór í mína fyrstu meðferð þá var okkur kennt að skrifa sjálfum okkur bréf. Eg skildi það ekki þá hvað það þýddi og hvernig það á að hjálpa mér. Fannst það vera bull.
En ég skil það í dag. Tökum dæmi.
Mér líður kannski illa og hugsanir mínar eru þannig að ég er alltaf að hugsa sömu hugsanir mínar aftur og aftur og er kominn í vítahring.
Ef ég set þessar hugsanir mínar á blað og er hreinskilinn þá fer það á blaðið. Og það skrítna við það að þessar hugsanir fara á blaðið og manni líður mikið betur, miklu betur.
Svo kannski eftir nokkra daga þá dettur maður inn í hugsanir sínar aftur og fer inn í vítahringinn en þá les maður bara blaðið aftur og líður miklu betur.
Það er ótrúlegt hvað þetta gerir fyrir mann því,
það er máttur í pennanum.
Og skrifa hvað maður er að hugsa og það geymist á blaðinu og þetta geymir maður handa sjálfum sér og enginn fær að lesa þetta. Og lesa svo þetta eftir tvö til 3 ár og þá brosir maður og finnur hvað maður hefur þroskast
Eg geri það ef ég fer til læknis og þarf að segja honum helling þá skrifa ég það á blað og rétti honum og segi þetta sé allt sem segja þarf. Læknar eru hrifnir að þessu og segja að þetta sé óvenjulegt.
Tökum annað dæmi: Eg skrifa líka til að sleppa við að reiðast.
Eg keypti mér síma í byrjun maí og eftir tvo mánuði þá datt skjár af hulstrinu sem var utanum símann. Ég hefði verið nokkrar mínútur að líma skjáinn á en af því hann var í ábyrgð þá fór ég með hann til þeirra.
Efir 4 vikur þá hafði ég samband. Jú þeir ætluðu að hafa samband. En núna eru komnar 7 vikur að líma einn skjá og ekkert bóla á þeim og ég var verulega reiður og langaði að fara til þeirra og hella mig yfir þá og vera verulega reiður.
En ég gerði bara enn betra að ég settist í morgun og skrifaði þeim bréf og kvartaði og lýsti því hvað ég var óánægður með þetta. Eg skrifaði þetta á tvö A4 blöð fór svo inn í Reykjavík og kom inn og þegar það kom að mér þá setti ég blöðin á borðið og sagði: Mér finnst best að gera þetta svona. Hún las þetta og fór inn og kom aftur og sagði að sá sem er með þetta væri ekki að vinna í dag og hún skyldi hafa samband við hann.
Eina sem ég sagði: Haltu blaðinu og með það fór ég hæstánægður með mig. Enginn reiði eða neitt og ég fór ánægður út í bíl. Og ég veit að þetta hefur sko áhrif af því að blaðið var eftir.
Ps: þegar ég var rétt að klára þetta bréf þá hringdu þeir frá Símanum og báðu mig margfalt afsökunar á þessu og buðu mér 3000 kr afslátt í 3 mánuði í heimilispakkanum og 3 fríar bíómyndir sem ég má taka inn í sjónvarpinu.
Hugsið þið ykkur hvað ég græddi á að fara þessa leið heldur en að ausa mig yfir fólkið sem er bara að vinna þarna.
Af því að ég skildi bréfið eftir þá var farið með það til yfirmannsins og hann fékk þær upplýsingar að þetta yrði tilbúið í næstu viku.
Eg er 100% ánægður með mig að hafa farið þessa leið.
Langaði svo að segja ykkur þetta.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Telephone
Website
Address
Gauksás 39
Hafnarfjörður
221