Lína G. - ÍAK Einkaþjálfari

Lína G. -  ÍAK Einkaþjálfari ÍAK Einkaþjálfari - Keilir 2012
Foam Flex kennari - 2013
TFW (Traning for warriors) Instructor level 1 - 2013
TFW Instructor level 2 - 2014 www.keilir.net

Lína Guðnadóttir heiti ég og er menntaður ÍAK Einkaþjálfari frá Keili. Ég er með einka - hóp - og fjarþjálfun. Einkaþjálfun er í boði 2x eða 3x í viku eftir því hvort fólk vill. Hópþjálfun er í boði 2x í viku. Í fjarþjálfun hitti ég einstaklinga í byrjun og lok tímabilsins. Í hverri viku er sendur út matseðill ásamt ýmsum fróðleik til gagns og gamans.. Hvert tímabil er 4 vikur.
Ég fitu- og ummálsm

æli, líkamsstöðugreini og bý til prógrömm fyrir einstaklinga útfrá greiningu ásamt þeim markmiðum sem hver og einn setur sér og vill stefna að.
Ég starfa hjá HRESS á Ásvöllum í Hafnarfirði. Endilega hikaðu ekki við að hafa samband ef þú hefur frekari fyrirspurnir. [email protected] eða í síma 698 7713

Hvað er ÍAK Einkaþjálfari og hver eru markmiðin með því námi? Markmiðið með náminu er að skapa framúrskarandi einkaþjálfara sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á heilbrigði einstaklingsins og hæfni til að búa til einstaklingsmiðaðar þjálfunaráætlanir á sviði styrktar- og þolþjálfunar sem miða að því að hámarka árangur og lágmarka meiðsl.
Þau atriði sem aðskilja ÍAK einkaþjálfaranámið frá öðrum einkaþjálfaranámum eru:
Áhersla er á heilbrigði einstaklingsins, meiðslaforvarnir og uppbyggingu eftir meiðsl. Kennt er hvernig er ákjósanlegast að setja upp æfingarkerfi með meiðslaforvarnir í huga og hvernig er hægt að þjálfa einstaklinga með væg stoðkerfameiðsl. Kenndar eru fjölda margar æfingar sem eru viðeigandi við þjálfun á einstaklingum með bak-, axlar- eða hnémeiðsl. Mikil áhersla er á verklega kennslu samhliða þeirri bóklegu þar sem starf einkaþjálfarans er fyrst og fremst verklegt starf. Farið er sérstaklega vel í allar æfingar og teygjur og nemendum skipt niður í hópa til að læra þær sem best.
Þjálfunarfræðin miðast ekki við “eitt æfingakerfi fyrir alla” heldur er nemendum kennt að greina stoðkerfi einstaklinga út frá líkamsstöðu og hreyfingu. Styrktar- og teygjuþjálfun í kjölfarið byggir á þessum greiningum til að ná hámarksárangri og lágmarka meiðsl.
Í ÍAK einkaþjálfaranáminu er kennd sálfræði með áherslu á æfingasálfræði sem snertir starf einkaþjálfara að stórum hluta. Farið er í markmiðssetningu, samskiptatækni, hvatningu og margt fleira því tengt. Djúpt er farið í næringarfræði í ÍAK einkaþjálfaranáminu þar sem skjólstæðingar einkaþjálfara gera miklar kröfur um næringarfræðiþekkingu hjá þeim. Megin áhersla er lögð á hefðbundna næringarfræði en einnig eru fleiri fletir næringarfræðinnar kynntir í formi gestafyrirlestra.
ÍAK módelið
ÍAK módelið var hannað með þjálfunarhugmyndafræði ÍAK einkaþjálfunar að leiðarljósi; að hámarka árangur og lágmarka meiðsl. Öll þjálfun hefst á neðsta þrepinu og svo er unnið upp á kerfisbundinn hátt í átt að hámarks árangri eftir því sem styrkur eykst.

Address

Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 06:00 - 23:00
Tuesday 17:00 - 23:00
Wednesday 17:00 - 23:00
Thursday 17:00 - 23:00
Friday 17:00 - 23:00
Saturday 17:00 - 23:00
Sunday 07:00 - 23:00

Telephone

+3546987713

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lína G. - ÍAK Einkaþjálfari posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share